Fylgstu með svaðilför andafjölskyldu um miðbæinn

Fjögurra anda fjöl­skylda hélt heim í Tjörn eftir háska­för í gegnum mið­bæ­inn.

Ferðalangarnir Á leið heim.

Anda­mamma hraðar ung­unum sínum þremur yfir gang­braut í miðbæ Reykja­víkur áður en að risa­stór, gulur strætó númer 12 fer af stað yfir gatna­mótin. Bærinn er fullur af fólki enda er heið­skírt úti og smá gola. Litla fjöl­skyldan kemst yfir á gang­stétt­ina, þökk sé lof. En þá er það næsta gata. Á móti umferð vaggar mamman niður Lækj­ar­götu í átt að heima­stað sínum, Tjörn­inni. Bif­reiðar og áhuga­samt mann­fólk fylgist með þeim. Líklega urðu til í kringum hund­rað ný mynd­bönd á snjall­síma veg­far­enda af önd­unum fjórum arka þessa leið. 

Hindranir

Þegar yfir gatna­mót Banka­strætis og Aust­ur­strætis er komið virð­ist anda­mamman alveg vita hvert hún er að fara. Mat­ar­lykt og mögu­legir afgangar í Aust­ur­stræt­inu freista ekki. Nei. Tjörnin er beint áfram.

Á gang­stétt Lækj­ar­götu eru þó ýmsar hindr­anir sem standa í vegi fyrir átta litlum anda­löppum. Hopphjól, skilti, túristar, stólar og borð. En mamman er ein­beitt og lætur ekk­ert stoppa sig. Hún lítur vart við þegar bíll flautar rétt hjá. Áfram gakk. Ungarnir kvaka örlítið á mömmu sína en eru aldrei langt undan og trítla áfram stað­ráðnir í að kom­ast heim. Í eitt and­ar­tak horfir anda­mamma inn á Hard Rock þar sem heyr­ist í háværri tón­list. Það freistar ekki. Jafnast ekki á við Tjörnina. 

Ferða­menn taka myndir og brosa. Undir borð ungra íslenskra karl­manna fer anda­mamman með ung­ana sína sem labba yfir skó strák­ana og halda áfram endi­langa gang­stétt­ina. „Ætlar þú að taka við­tal við mömm­una?“ spyr túristi. Blaða­kona lætur vaða: „Hvernig gengur veg­ferðin?“ Anda­mamma ansar engu og fer aftur undir borð með ung­ana. Ekkert má trufla leið­ang­ur­inn. Mynda­töku­mað­ur­inn er líka fyrir og einn ung­ana gengur yfir löpp hans. 

Vitlaus beygja

Þá eru það ein önnur gatna­mótin og nú beygir mamman í fyrsta sinn vit­laust. Í átt­ina frá Tjörn­inni. Eftir nokkrar sek­úndur áttar hún sig á mis­tök­unum og réttir sig af leið. 

Einn ung­inn dregst aftur úr í örfáar sek­úndur og hrasar enda er gangan hröð og það er heitt úti. En það er ekki tími til að hika. Unginn rís upp og nær hópnum.

Á loka­sprett­inum fylgir enn fleira mann­fólk þeim yfir allra síð­ustu gatna­mótin og sér til þess að nálægar bif­reiðar hægi á sér. Aftur forð­ast þær spurn­ingar blaða­konu. Þetta er ekk­ert grín, þetta er lífs­ins alvara.

Mamman eykur ferð­ina þegar hún sér tjörn­ina, flýtir sér undir lítið tré og niður ramp­inn hjá Iðnó og gatna­mótum Kvennó. Frammi fyrir ung­unum stendur íslenskur pabbi. Hann er fyrir en þeir hugsa í lausnum, fara hver á eftir öðrum á milli lappa pabbans og hoppa ofan í. Þær eru komnar heim. Loksins.

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár