Umræddir varasjóðir sem nefndir eru hér að framan voru stofnaðir með stoð í samningum Seðlabankans við slitabúin, til að tryggja efndir á ágreiningskröfum og til að mæta öðrum mögulegum kröfum í íslenskum krónum, auk þess að greiða innlendan kostnað á árunum 2015 til 2018. Alls voru sem fyrr segir skilinn eftir 26,1 milljarður króna í varasjóðum.
Í samningi fjármála- og efnahagsráðuneytisins við Lindarhvol var kveðið á um að félagið hefði eftirlit og umsjón með þeim fjársópseignum sem áfram yrðu í vörslu og umsýslu slitabúanna. Fjársópseignir þessar voru eignir sem slitabúin héldu eftir og seldu en áttu svo að skila afrakstri þeirra. Virði þessara eigna var samkvæmt yfirliti Lindarhvols áætlað 4,9 milljarðar króna. Til ársloka 2017 höfðu slitabúin hins vegar skilað samtals 13,3 milljörðum vegna þeirra, 8,4 milljörðum umfram áætlun. Skýringar á því eru fyrst og fremst hærri skattendurgreiðslur en einnig að sumar eignanna höfðu verið áætlaðar einskis virði en skiluðu umtalsverðum fjármunum.
Þá voru settir á fót rekstrarsjóðir innan slitabúanna. Þrátt fyrir óskir ríkisendurskoðanda um að fá svör um það frá slitabúi LBI ehf, Glitnis ehf. og Kaupþings ehf. um ráðstöfun á varasjóðum í þeirra vörslu var fátt um þau svör og báru slitabúin fyrir sig að þau væru bundin trúnaði við Seðlabankann. Seðlabankinn féllst á fyrir sitt leyti á að aflétta þeim trúnaði en aðeins eitt slitabúið svaraði, að hluta, beiðni setts ríkisendurskoðanda um upplýsingar.
Samkvæmt þeim gögnum sem Lindarhvoll afhenti Ríkisendurskoðun var uppgjörum tveggja varasjóða lokið í árslok 2017 og byrjun árs 2018. Þau sýna að hjá LBI voru teknir til hliðar 6 milljarðar í varasjóð vegna ágreinings- og skattamála og af þeim voru eftirstöðvarnar, 3,9 milljarðar, greiddar til ríkissjóðs. Þá sýna gögnin að teknir voru til hliðar 5,6 milljarðar króna vegna rekstrar hjá Glitni og af þeim voru endurgreiddir 2,2 milljarðar. Innlendur rekstrarkostnaður Glitnis, greiddur af stöðugleikaframlögum nam um 3,2 milljörðum króna.
Spurningin er ekki hvort keisarinn er berassaður heldur hvort þjóðin vilji að henni sé stjórnað og beri skilyrðislaust traust.... til kurteisra nauðgara ?