Sýn Sigurðar á málefni Lindarhvols

Sigurður Þórð­ar­son, sem var settur rík­is­end­ur­skoð­andi gagn­vart Lind­ar­hvoli, kemst í sinni grein­ar­gerð að því að fjölda­margt hafi verið athuga­vert við umsýslu félags­ins með stöð­ug­leika­eignir fyrir hönd rík­is­ins. Nið­ur­stöður hans eru aðrar en Rík­is­end­ur­skoð­unar. Sigurður telur til­efni til þess að rík­is­sak­sókn­ari taki starf­sem­ina til skoð­unar.

Sýn Sigurðar á málefni Lindarhvols
Marg­þátt­aðar athuga­semdir Athuga­semdir Sigurðar við starf­semi Lind­ar­hvols eru fjöl­margar. Mynd: Skjáskot/Rúv

Í grein­ar­gerð setts rík­is­end­ur­skoð­anda, Sigurðar Þórð­ar­sonar, um starf­semi Lind­ar­hvols er sett fram gagn­rýni á, og gerðar athuga­semdir við, starf­semi Lind­ar­hvols ehf., sem sýsl­aði með stöð­ug­leika­eignir sem metnar voru á hund­ruð millarða króna. Ekki hafi verið fram­kvæmt verð­mat fyrir sölu á eign­unum, sölu­verð hefði í ein­hverjum til­vikum átt að vera hærra, vinnu­brögð við umsýslu á eign­unum hafi verið gagn­rýni­verð og Sigurður hafi rek­ist á veggi þegar kom að sam­skiptum eða öfl­unar á gögnum við sína vinnu. Telur Sigurður þörf á því að rík­is­sak­sókn­ari taki mál­efni Lind­ar­hvols til athug­unar.

Rík­is­end­ur­skoðun birti í maí 2020 skýrslu um starf­semi Lind­ar­hvols. Nið­ur­staða þeirrar skoð­unar var á annan veg í öllum meg­in­at­riðum og engar við­líka athuga­semdir gerðar við starf­semi Linda­hvols. Sigurður Þórð­ar­son hefur um langa hríð viljað að hans grein­ar­gerð yrði birt, en það hefur strandað á því að for­seti Alþingis, Birgir Ármanns­son, hefur neitað því. Kallað hefur verið eftir því af hálfu fjöl­miðla, af hálfu stjórn­ar­and­stöð­unnar á Alþingi, auk ann­arra, að grein­ar­gerðin líti dags­ljósið en af því hefur ekki orðið fyrr en í gær.

Mat Sigurðar annað en Ríkisendurskoðunar

Sigurður hefur sent frá sér bréf, meðal ann­ars til rík­is­sak­sókn­ara, þar sem hann fer yfir helstu nið­ur­stöður grein­ar­gerðar sinnar. Þar segir meðal ann­ars: „Þar er ljóst að þær upp­lýs­ingar og mat mitt, sem koma fram í grein­ar­gerð minni um Lind­ar­hvol ehf. og tengj­ast fulln­ustu og sölu stöð­ug­leika­eigna, eru önnur en fram koma í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­una frá apríl 2020.“ Hér verður farið yfir helstu atriði þess sem Sigurður setur fram í grein­ar­gerð­inni.

Í grein­ar­gerð Sigurðar kemur fram að sam­kvæmt mati Seðla­banka Íslands, sem fékk stöð­ug­leika­eignir afhentar á tíma­bil­inu nóv­em­ber 2015 til og með jan­úar 2016, hafi verð­mæti eign­anna verið metið 386 millj­arðar króna.

Steinar Þór Guð­geirs­son lög­maður var upp­haf­lega feng­inn til þess af Seðla­bank­anum til að sýsla með eign­irnar og hafði hann til þess ótak­markað umboð. Með stofnun Lind­ar­hvols og samn­ings Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við félagið í lok apríl 2016 færð­ist það hlut­verk til Lind­ar­hvols. Hins vegar breytt­ist í raun ekki margt, þar eð félagið gerði samn­ing við Steinar Þór og réð hann til áfram­hald­andi starfa, á þeim grund­velli að hann hefði umfangs­mikla reynslu og yfir­burða­þekk­ingu á þeim eignum sem um væri að ræða. Reynslu sem hann hafði meðal ann­ars öðl­ast með fyrri samn­ingi við Seðla­bank­ann.

Bar á milli í verðmati

Þegar Lind­ar­hvoll tók við eign­unum fór fram end­ur­mat á virði þeirra og var nið­ur­staðan sú að verð­mæti þeirra væri 372,5 millj­arðar króna, auk 11,8 millj­arða í vara­sjóðum sem skyldi voru eftir í slita­bú­unum. Sigurður Þórð­ar­son lagði hins vegar sjálfu mat á virði eign­anna og bar því ekki saman við fyrra mat. Mat hann eign­irnar út frá árs­reikn­ingum slita­bú­anna og taldi því virði eign­anna sam­kvæmt því 387 millj­arðar króna og umfang vara­sjóðs­ins 26,1 millj­arð. Þar ber því tölu­vert mikið á milli.

Ekki getið um tilvist varasjóða

Í grein­ar­gerð­inni segir Sigurður þá að hvergi í yfir­litum um yfir­færslu stöð­ug­leika­eigna til Lind­ar­hvols né í skýrslum ráð­herra til Alþingis sé getið um til­vist vara­sjóða sem skildir voru eftir hjá slita­bú­unum til að mæta rekstr­ar­kostn­aði þeirra.

Notast við lægra verðmat

Í grein­ar­gerð Sigurðar kemur fram að hann hafi fengið svar frá Seðla­bank­anum, þegar hann óskaði eftir að fá mat bank­ans á virði eign­anna, sem hljóð­aði þannig að virð­is­matið skipti ekki höf­uð­máli. Þessu var Sigurður ekki sam­mála og benti á að nið­ur­staða end­ur­mats­ins á virði eign­anna hefði þannig verið notað til bók­unar í rík­is­reikn­ingi, sem og sem við­mið við ákvörðun á sölu­verði eða lág­marks­verði í fjöl­mörgum til­vikum þegar eign­irnar voru seldar. Ergo, not­ast var við lægra við­mið í ein­hverjum til­vikum við sölu en Sigurður hefði talið eðli­legt.

Öllu var útvistað

Í grein­ar­gerð sinni gerir Sigurður fjöl­margar athuga­semdir við starf­semi Lind­ar­hvols, meðal ann­ars við fram­kvæmd á samn­ingi félags­ins við fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem og við skipu­lag félags­ins. Þannig segir Sigurður að hann sjái ekki hvaða til­gangi sam­þykkt stjórn­skipu­lag Linda­hvols hafi átt að þjóna þar eð öllum verk­efnum félags­ins hafi verið útvi­stað, dag­legum rekstri og lög­fræði­legum mál­efnum til Steinars Þórs, og bók­haldi til Fjár­sýslu rík­is­ins. Þannig hafði félagið aldrei starfs­mann, til að mynda.

Steinar Þór yfir og allt um kring

Sigurður bendir líka á að Steinar Þór hafi staðið allt of nálægt verk­efn­inu, á of mörgum víg­stöðvum. Stjórn­ar­fundir hafi verið haldnir á skrif­stofu lög­fræði­stofu hans, Íslaga, utan­um­hald og skjala­varsla er sneri að eign­unum hafi verið þar til húsa og Steinar Þór hafi sinnt dag­legri fram­kvæmda­stjórn og lög­fræði­legri ráð­gjöf. Á sama tíma hafi hann sinnt fjöl­mörgum við­fangs­efnum tengdum stöð­ug­leika­eign­unum, setið í stjórn fjölda félaga á vegum Lind­ar­hvols, verið skip­aður stjórn­ar­maður í ell­efu félögum í slita­með­ferð sem voru hluti stöð­ug­leika­fram­lag­anna og þá hafi fyr­ir­tæki hans, Íslög, umsjón með sölu á til­teknum eignum, í umboði stjórnar Lind­ar­hvols. Í grein­ar­gerð­inni segir Sigurður þannig, um aðkomu Steinars Þórs: „Er það mat Rík­is­end­ur­skoð­unar, að þessi skipan hafi ekki tekið nægj­an­legt til­lit til krafna um aðskilnað starfa, ábyrgðar og innra eft­ir­lits sem hefði átt að vera til staðar við fram­kvæmd verk­efn­is­ins.“

Tregða við að afhenda gögn

Þá lýsir Sigurður því í grein­ar­gerð­inni að hann hafi mætt mót­stöðu frá stjórn Lind­ar­hvols, frá Steinari Þór, frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu og frá Seðla­bank­anum við störf sín. Þau sam­skipti hafi „valdið honum erf­ið­leikum með að ljúka verk­inu“.

Skoðaði sérstaklega þrennt

Sigurður gerði sér­staka skoðun á sölu á þremur eignum. Það er sala á tæp­lega þriðj­ungs eign­ar­hlut í Klakka ehf, sem áður var Exista hf. en ríkið fékk í þann eign­ar­hlut sem hluta af stöð­ug­leika­fram­lögum slita­búa Glitnis og Kaup­þings. Þá gerði Sigurður sér­staka könnun á sölu á hluta­bréfum í Vöru­kaupum ehf. og sölu á skráðum hluta­bréfum sem Lind­ar­hvoll fékk til umsýslu.

Bréf í Símanum seld með tapi

Meðal skráðra félaga sem Lind­ar­hvoll átti hluti í voru Eimskip, Síminn, fast­eigna­fé­lagið Reitir og Sjóvá. Var verð­mæti þeirra við þá yfir­færslu sam­tals um 6 millj­arðar króna. Sala Lind­ar­hvols á hluta­bréfum í þessum skráðu fjórum félögum fór fram með mis­mun­andi hætti, en sam­tals feng­ust um 7,5 millj­arðar króna fyrir eign­irnar. Hagnaður Lind­ar­hvols af þeim var því rúm­lega 1,5 millj­arðar króna.

Í krónum talið var mestur hagn­aður af sölu hluta­bréf­anna í Reitum, sem skil­aði rúm­lega einum millj­arði í hagnað til Lind­ar­hvols. Sjóvár-hlut­ur­inn skil­aði hálfum millj­arði króna, Eimskip 68 millj­ónum króna í hagnað en bréfin í Símanum voru á end­anum seld með 24 millj­óna króna tapi, þrátt fyrir að Lind­ar­hvoll hafi á tím­anum sem hann hélt á þeim haft fimm millj­ónir króna í arð­greiðslur út úr félag­inu.

Óþörf 20 milljóna króna lækkun?

Varðandi söl­una á Vöru­kaupum gerir Sigurður athug­semdir við að stjórn Lind­ar­hvols hafi lækkað sam­þykkt kaup­verð frá hæsta til­boði um 20 millj­ónir króna. Félagið Xyzeta ehf bauð 151 milljón króna í Vörukaup en stjórn Lind­ar­hvols ákvað að lækka verðið á grund­velli minn­is­blaðs frá Vöru­kaupum sem sagt var unnið af end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Deloitte að beiðni Xyzeta ehf. Segir Sigurður að ekki ahfi verið gengið úr skugga um að minn­is­blaðið væri raun­veru­lega frá Deloitte og auk þess sjái hann ekki að það sem í minn­is­blað­inu kom fram hafi gefið til­efni til þess að lækka sölu­verðið.

Ekki gert verðmat á Klakka

Varðandi söl­una á Klakka vekur Sigurður athygli á að ekki hafi farið fram mat á virði eign­ar­hlut­ans fyrir sölu á honum heldur hafi verið miðað við það virði sem hlut­inn var met­inn á þegar Lind­ar­hvoll tók hann til umsýslu.  Samkvæmt mati Sigurðar var virði eign­ar­hluta rík­is­ins á sölu­deig 2,2 millj­arðar en greiðslan sem til kom nam 1,112 millj­örðum króna.

Óútskýrðar greiðslur

Þá gerðir Sigurður athuga­semdir við ákveðnar greiðslu, nánar til­tekið sex greiðslur að fjár­hæð sam­tal 10,8 millj­arða króna. Á greiðslu­skjölum sem fylgdu umræddum sex greiðslum var aðeins í tveimur til­vikum gefið til kynna hver ástæða greiðsl­unnar var og engin fylgi­skjöl fylgdu þeim. Sigurður fékk ekki svör við fyr­ir­spurnum sínum um hvað verið var að greiða fyrir í umræddum til­vikum.

 

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár