Staða kvenna í íslenskum fangelsum lakari en karla

Konur fá hvað minnsta aðstoð innan refsi­vörslu­kerf­is­ins til að ná tökum á fíkni­vanda og atvinnu­tæki­færi þeirra eru tak­mörkuð. Núver­andi staða sýnir að heild­ar­sýn í mála­flokknum skortir að mati umboðs­manns Alþingis en eldri umbóta­til­lögur hafa ekki komið til fram­kvæmda.

Hólmsheiði
Hólms­heiði Fang­elsið á Hólms­heiði er aðal­vist­un­ar­staður kven­fanga. Þar af leið­andi vist­ast kven­fangar að meg­in­stefnu til í lok­uðu fang­elsi þar sem örygg­is­stig er hátt. Mynd: Kristinn Magnússon

Færri vist­un­ar­úr­ræði fyrir kven­kyns fanga er ein helsta ástæða þess að staða kvenna í fang­elsum á Íslandi er almennt lak­ari en staða karla. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá umboðs­manni Alþingis þar sem aðstæður kvenna í fang­elsum voru bornar saman við aðstæður karla í sömu sporum.

Skýrslan sem ber tit­il­inn Konur í fang­elsi: Athugun á aðbún­aði og aðstæðum kvenna í afplánun er fyrsta þema­skýrsla umboðs­manns Alþingis á grund­velli svo­kall­aðs OPCAT-eft­ir­lits með stöðum þar sem frels­is­sviptir dvelja.

Tekið er fram í skýrsl­unni að í eldri skýrslum Fang­els­is­mála­stofn­unnar hafi verið settar fram til­lögur um hvernig bæta megi aðstöðu kvenna til vist­unar í fang­elsi.

Staðan sýni að heildarsýn í málafokknum skorti

Til­lög­urnar sneru meðal ann­ars að því að fjölga vist­un­ar­mögu­leikum til að koma þannig betur til móts við þarfir kven­kyns fanga, auk þess sem vikið var að mik­il­vægi þess að móta heild­stæða stefnu um vistun kvenna í fang­elsum. „Til­lög­urnar, eins og þær voru kynntar í skýrsl­unum tveimur, komu ekki til fram­kvæmda. Ekki varð heldur úr að móta heild­ræna stefnu um vistun kvenna í fang­elsum og ber núver­andi staða með sér skort á heild­ar­sýn í mála­flokknum,“ segir í skýrsl­unni.

Kven­kyns­fangar eru í miklum minni­hluta af heild­ar­fjölda fanga, hlut­fallið hefur verið í kringum sex pró­sent á und­an­förnum árum. Þessi minni­hluta­staða er „almennt til þess fallin að koma niður á mögu­leikum þeirra til að afplána í ólíkum úrræðum,“ segir í skýrsl­unni en kven­fangar eru ein­ungis vistaðir í tveimur af fjórum fang­elsum sem Fang­els­is­mála­stofnun rekur, á Hólms­heiði og Sogni.

„Aðal­vist­un­ar­staður kven­fanga er Fang­elsið Hólms­heiði sem er að öðru leyti fyrst og fremst hugsað sem mót­töku- og gæslu­varð­halds­fang­elsi. Þar af leið­andi vist­ast kven­fangar að meg­in­stefnu til í lok­uðu fang­elsi þar sem örygg­is­stig er hátt,“ segir í til­kynn­ingu frá umboðs­manni Alþingis sem send var út sam­hliða útgáfu skýrsl­unnar. Þrátt fyrir að ýmis­legt sé gert til að koma til móts við þær konur sem þar dvelja, þá „ber skortur á virkni­starfi og þjón­ustu í fang­els­inu vitni um að það hentar illa sem lang­tíma­úr­ræði.“

Atvinnutækifæri bundin við þrif og handverk

Skortur á virkni­starfi og þjón­ustu birt­ist meðal ann­ars í því að minna fram­boð er af vinnu fyrir kven­fanga og þeirra tæki­færi eru að mestu bundin við hefð­bundin kvenna­störf, svo sem þrif og hand­verk. Því hefur umboðs­maður Alþingis komið því á fram­færi að leita skuli leiða til að auka fram­boð af atvinnu fyrir kven­fanga. Umboðs­maður hefur einnig sent ábend­ingu til mennta- og barna­mála­ráð­herra þess efnis að skoða þurfi, í sam­ráði við fang­els­is­mála­yf­ir­völd, hvort hægt sé að bæta mennta­mál kven­kyns fanga.

Hitt fang­elsið sem hýsir konur er á Sogni en þar vist­ast bæði karlar og konur. Konurnar eru þar í miklum minni­hluta, mest þrjár miðað við átján karlfanga á hverjum tíma. Það geti skýrt hvers vegna konur vilji heldur taka út sína afplánun á Hólms­heiði. Líkt og fram kemur í skýrsl­unni þá stendur konum ekki lengur til boða að afplána á Kvía­bryggju, „sem af ýmsum ástæðum þykir eft­ir­sókn­ar­vert.“

Gera þurfi kvenföngum kleift að afplána í opnum fangelsum

„Mögu­leikar kvenna til að afplána í opnu fang­elsi eru þannig lak­ari en karla í sömu stöðu án þess að sá munur verði útskýrður með öðru en skorti á við­eig­andi úrræðum,“ segir í til­kynn­ingu umboðs­manns. Hann bendir á að staðan sé ósam­rým­an­leg almennum jafn­ræð­is­reglum og beinir því þar af leið­andi til bæði ráðu­neytis og Fang­els­is­mála­stofn­unar „að gera nauð­syn­legar ráð­staf­anir til þess að kven­fangar hafi í raun sömu mögu­leika á að afplána í opnu fang­elsi og karlar í sömu stöðu.“  

Umboðs­maður AlþingisFjórir starfs­menn emb­ætt­is­ins komu að gerð skýrsl­unnar ásamt Skúla Magn­ús­syni.

Ábend­ingar umboðs­manns snúa líka að heil­brigð­is­þjón­ustu. Taka þurfi til skoð­unar hvort hægt sé að koma til móts við fanga sem óska eftir að vera sinnt af heil­brigð­is­starfs­fólki af sama kyni, auk þess sem bent er á mik­il­vægi þess að kven­kyns fangar hafi greiðan aðgang að krabba­meins­skimunum. 

Stór hluti kven­kyns fanga glímir við fíkni­vanda en nauð­syn­leg aðstoð virð­ist ekki vera í boði. Með­ferð­ar­full­trúi hefur ekki fasta við­veru og föngum býðst ekki að dvelja á vímu­efna­lausum gangi. „Í ljósi aðstæðna verður vart annað séð en að konur séu sá hópur innan refsi­vörslu­kerf­is­ins sem fær hvað minnsta aðstoð við að ná tökum á vímu­efna­vanda sínum.“ 

Erlendir fangar reiða sig á upplýsingagjöf frá samföngum

Sér­stak­lega er vikið að kven­kyns föngum af erlendum upp­runa en í við­tölum á Hólms­heiði kom í ljós að konur í þeim hópi höfðu þurft að reiða sig að miklu leyti á sam­fanga fyrir upp­lýs­ingar.

„Í skýrsl­unni er bent á að það fyr­ir­komu­lag geti reynst óheppi­legt og því beint að fang­els­inu og Fang­els­is­mála­stofnun bæta upp­lýs­inga­gjöf til erlendra fanga, s.s. með því að þýða mik­il­vægar upp­lýs­ingar og not­ast við túlka­þjón­ustu þegar komið er á fram­færi upp­lýs­ingum sem ljóst er að hafi mikla þýð­ingu fyrir þá,“ segir í til­kynn­ingu umboðs­manns. Þar að auki þurfi að gæta að því að fangar túlki ekki hver fyrir annan þegar um er að ræða við­kvæm einka­mál­efni.

Óskar eftir viðbrögðum 

Í síð­asta kafla skýrsl­unnar segir að umboðs­maður muni halda áfram að fylgj­ast með þróun mála sem og við­brögðum við­eig­andi yfir­valda sem geta orðið til þess að til­tekin atriði verði tekin til frek­ari skoð­unar.

Óskað er eftir því að Fang­elsið á Hólms­heiði, Fang­elsið Sogni, Fang­els­is­mála­stofnun og geð­heilsuteymi fang­elsanna upp­lýsi umboðs­mann um við­brögð við til­mælum og ábend­ingum sem settar eru fram í skýrsl­unni eigi síðar en 1. febr­úar næst­kom­andi. Þá er einnig óskað eftir því að fyrir þann tíma verði bæði dóms­mála­ráðu­neyti og barna- og mennta­mála­ráðu­neyti búin að gera grein fyrir við­brögðum sínum við þeim til­mælum og ábend­ingum sem beint er til þeirra í skýrsl­unni.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár