Fjármagnstekjur á mann í Grindavík fóru úr 409 þúsund í 7,2 milljónir

Sex systk­ini í Grinda­vík seldu fjöl­skyldu­út­gerð­ina sína á meira en 30 millj­arða króna í fyrra. Við það urðu til há­ar fjár­magn­s­tekj­ur sem leiddu af sér sex millj­arða króna skatt­greiðsl­ur. Fyr­ir vik­ið voru fjár­magn­s­tekj­ur á hvern íbúa í Grinda­vík á ár­inu 2022 næst­um níu sinn­um hærri en lands­með­al­tal­ið.

Fjármagnstekjur á mann í Grindavík fóru úr 409 þúsund í 7,2 milljónir
Fram­kvæmda­stjóri Vísis Pétur Haf­steinn Pálsson fékk stærri hlut í Síld­ar­vinnsl­unni en systk­ini hans þegar þau ákváðu að selja Vísi. Hann hefur þegar selt hlut fyrir um millj­arð króna.

Árið 2021 var með­al­tal fjár­magnstekna á hvern íbúa í Grinda­vík­ur­bær, tæp­lega 3.700 manna sveit­ar­fé­lags á suð­vest­ur­horni Íslands, 409 þús­und krónur. Þær höfðu hald­ist nokkuð lágar síð­ast­lið­inn ár og verið á bil­inu 188 til 783 þús­und á ári frá banka­hruni. Í fyrra varð hins vegar breyt­ing á. Meðaltal fjár­magnstekna á hvern íbúa árið 2022 var 7,2 millj­ónir króna. Það er lang­hæsta með­al­talið sem fyr­ir­fannst á land­inu það árið. Næst á eftir kom sveit­ar­fé­lagið Stykk­is­hólmur, sem varð til með sam­ein­ingu Stykk­is­hólms og Helga­fells­sveitar í fyrra, með 2,4 millj­ónir króna með­al­tals fjár­magnstekjur á hvern sinna 1.308 íbúa. Fjár­magnstekjur á hvern íbúa Grinda­víkur voru því þrisvar sinnum meiri en með­al­tal þeirra í því sveit­ar­fé­lagi sem kom næst á eftir. Alls var með­al­tal fjár­magnstekna á alla íbúa Íslands á árinu 2022 821 þús­und krónur. Það þýðir að með­al­talið í Grinda­vík var næstum níu sinnum hærra. 

Þetta má lesa út úr nýbirtum tölum Hagstofu Íslands …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár