Persónuvernd sektar Creditinfo um 38 milljónir í smálánamáli

Sektin sem Creditinfo er gert að greiða er sú lang­hæsta sem Per­sónu­vernd hefur lagt á. Sektin kemur í kjöl­far kvört­unar Neyt­enda­sam­tak­anna sem segja málið einn anga bar­áttu NS og laun­þega­hreyf­ing­ar­innar gegn „smá­lána­ó­ár­an­inni“

Persónuvernd sektar Creditinfo um 38 milljónir í smálánamáli
Per­sónu­vernd Skoðun Per­sónu­verndar á Creditinfo, eCommerce og A.I.C. (áður Almenn inn­heimta) er nú lokið en kvörtun barst Per­sónu­vernd frá Neyt­enda­sam­tök­unum árið 2020. Helga Þór­is­dóttir er for­stjóri Per­sónu­verndar Mynd: Heimildin / JIS

Per­sónu­vernd hefur sektað Creditinfo um tæp­lega 38 millj­ónir króna vegna skrán­ingar upp­lýs­inga frá eCommerce 2020 ApS um van­skil ein­stak­linga á smá­lánum. Í úrskurði Per­sónu­verndar segir meðal ann­ars að „fjöldi hinna skráðu var all­mik­ill.“ Nánar til­tekið nam fjöldi hinna skráðu hafi verið um 2.000 tals­ins. Þá þurfi einnig að líta til þess að upp­lýs­ingum um skráða ein­stak­linga var ekki eytt strax og í ljós kom að ekki hafi verið heim­ild fyrir skrán­ing­unni. 

„Skrá Creditinfo Láns­trausts hf. um fjár­hags­mál­efni ein­stak­linga er eina slíka skráin á Íslandi og upp­flett­ing í skránni iðu­lega grunn­for­senda fyrir fyr­ir­greiðslu fjár­mála­fyr­ir­tækja, t.d. við­skipta­banka. Ólögmæt skrán­ing á slíka skrá verður því að telj­ast sér­lega íþyngj­andi og geta gert hinum skráða ókleift að fá fyr­ir­greiðslu hjá lána­stofn­unum, svo sem vegna íbúð­ar­kaupa eða ófyr­ir­séðra útgjalda.“ segir í úrskurð­inum. Því megi ætla að þeir ein­stak­lingar sem rang­lega voru skráðir á van­skila­skrá „kunni að hafa orðið fyrir alvar­legu tjóni.“

Sekt­ar­fjár­hæð var …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár