„Það var sannarlega ekki verið að hækka nein verð fyrir útsölu“

For­stjóri Húsa­smiðj­unar segir fyr­ir­tækið ekki hafa hækkað verð á vörum sem síðan voru settar á útsölu. Verk­efna­stjóri verð­lags­eft­ir­lits ASÍ skorar á Húsa­smiðj­una og önnur fyr­ir­tæki að birta verð­sögu vara sinna í þágu neyt­enda. Neyt­enda­stofu bár­ust til­kynn­ingar um málið í gær­kvöldi.

„Það var sannarlega ekki verið að hækka nein verð fyrir útsölu“
For­stjóri Húsa­smiðj­unnar og Benjamín Julian Árni Stef­áns­son segir grein­ingu Benjamín Julian á verð­hækk­unum vara ekki rétta. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

„Það var sann­ar­lega ekki verið að hækka nein verð fyrir útsölu,“ segir for­stjóri Húsa­smiðj­unnar Árni Stef­áns­son í sam­tali við Heim­ild­ina. Grein Benjamín Julian verk­efna­stjóra verð­lags­eft­ir­lits ASÍ sem ber heitið Hvenær er útsala útsala? gagn­rýnir Húsa­smiðj­una fyrir að hækka verð á vörum rétt áður en þær voru settar á sum­ar­út­sölu. 

Fyrr í vik­unni hófst sum­ar­út­sala bygg­inga­vöru­versl­un­ar­innar en þar má finna vörur á allt að 50% afslætti. „Í dag lækk­aði Húsa­smiðjan verð á fjöl­mörgum vörum -- "allt að 50% afsláttur". Reyndar þarf stækk­un­ar­gler til að finna vörur sem lækkað hafa um 50% í verði, en það eru ekki stóru tíð­indin. Stóru tíð­indin eru þau sem ekki er sagt frá í sum­ar­bæk­lingnum: Að fyrir þremur dögum hækk­uðu verð á yfir 200 vörum sem síðan voru lækkuð í dag,“ skrifar verk­efna­stjóri verð­lags­eft­ir­lits ASÍ. 

Í kjöl­far greinar Benjamín, frétt Vísis um málið og þeirra við­bragða sem hún vakti birti Fés­bók­ar­síða Húsa­smiðj­unnar færsl­una „Skotið fyrst og spurt svo...,“ en þar segir meðal ann­ars: „Engar verð­lista­hækk­anir hafa verið á þeim vörum sem ASÍ vísar í síð­ustu daga. Það er því óásætt­an­leg fram­setn­ing sem kemur fram í frétt Vísis og á bloggi Julian, þetta sýnir frekar þá stað­reynd að við erum í harðri sam­keppni, með stutt, blautt og kalt sumar og þurfum að selja árs­tíð­ar­vör­urnar á góðu verði fyrir haustið.“ 

Engar hækkanir

For­stjóri Húsa­smiðj­unnar segir vör­urnar ekki hafa verið hækk­aðar í verði heldur hafi til­boð á þeim liðið undir lok síð­ast­liðin sunnu­dag, 25. júní. Eftir það til­boð fóru vör­urnar aftur á sitt eðli­lega verð. Síðan hófst sum­ar­út­sala versl­un­ar­innar og þá lækk­uðu vör­urnar á ný. „Ég kann­aði þetta sér­stak­lega hjá okkar inn­kaupa­fólki. Núna í vik­unni voru engar verð­hækk­anir á vöru­flokkum eða öðru slíku.“

Árni Stef­áns­sonSegir Húsa­smiðj­una vinna eftir reglum Neyt­enda­stofu.

Hann segir það venj­una að vörur fari aftur á lista­verð eftir að til­boð renni út. „Við viljum alls ekki að það sé verið að væna okkur fyrir að hækka vöru sér­stak­lega fyrir útsölu. Það eru sann­ar­lega ekki við­skipta­hættir sem við viljum stunda.“ 

Aðspurður hvort að þeir neyt­endur sem hitti á hefð­bundna rekst­ar­daga á milli útsölu- og til­boðs­daga séu þá óheppnir að borga hærra verð fyrir vörur segir Árni: „Já það er bara eins og í allri verslun almennt að maður getur verið... vana­lega er langt á milli til­boða á ein­stökum vörum. En það er mjög hörð sam­keppni í þessum sum­ar­vörum og þetta er til­tölu­lega stuttur gluggi sem verið er að selja þær í.“

Samkvæmt Árna er öllum upp á lagt hjá Húsa­smiðj­unni að vinna eftir reglum Neyt­enda­stofu í kringum aug­lýs­ingar og til­boð. Því hafi ekki verið neinn ásetn­ingur um að blekkja við­skipta­vini og segir hann stað­reynd­irnar tala sínu máli.

Raunveruleg verðhækkun

Matt­hildur Sveins­dóttir svið­stjóri neyt­enda­rétt­ar­sviðs hjá Neyt­enda­stofu segir fyrstu ábend­ingar um útsöl­una hafa borist í gær­kvöldi og því sé málið í frum­skoðun.

Sum­ar­út­salaAug­lýs­ing Húsa­smiðj­unnar og Blóma­vals.

Um reglur er varða útsölur segir Matt­hildur: „Það er regla um það að þegar þú ert að kynna ein­hverja verð­lækkun, sama hvað hún heitir, að þá þarf verð­lækk­unin að vera raun­veru­leg þannig að varan sé raun­veru­lega að lækka í verði. Þú mátt ekki setja þetta fram með vill­andi hætti.“ Hún segir ekki vera til föst við­mið um hve lengi vörur þurfi að vera seldar á hærra verði áður en að hægt sé að lækka verðið. 

Eru regl­urnar þannig núna að ég mætti selja ís á 1000 krónur og svo allt í einu hækka verðið upp í 2000 krónur, lækka það svo aftur í 1000kr og segja að ísinn væri á 50% afslætti?

„Við höfum tekið ákvarð­anir um að það sé brot gegn lög­unum,“ segir Matt­hildur og bætir síðan við: „Ef þú ert með ís sem selst mjög mikið af að þá yrði mögu­lega gerð krafa um að þú hafir raun­veru­lega selt hana á þessu verði en ef þetta er vara sem er kannski lítil velta á að þá eru alveg til­vik þar sem neyt­enda­stofa hefur látið duga að sýnt hafi verið fram á að hún hafi raun­veru­lega verið boðin fram til sölu.“ 

Birta verðsöguna

Alls telur Benjamín 216 vörur hafa verið hækk­aðar í verði rétt fyrir útsöl­una og eru þær útli­staðar í grein hans. Aðspurður hvernig neyt­endur geti verið vak­andi fyrir vill­andi upp­lýs­ingum fyr­ir­tækja segir hann það ekki á nokkurn mann leggj­andi að safna slíkum gögnum. „Enn ein ástæðan fyrir því að fyr­ir­tæki ættu að sjá sóma sinn í að birta verð­sögu á vör­unum sem þau eru með.“ 

Benjamín skorar á Húsa­smiðj­una og aðrar versl­anir að birta verð­sögu á vör­unum sínum til að fólk geti séð hver raun­veru­legur afsláttur er. 

Von er á frum­varpi um Evr­ópu­reglu­gerð á næst­unni á Alþingi. Reglu­gerðin myndi herða skil­yrði á mark­aði og auka eft­ir­lit. Þá þyrfti að miða útsölu­verð við ódýrasta verð vör­unnar síð­ustu 30 daga. „Hún felur í sér að þegar að þú aug­lýsir lækkað verð þarf fyrra verðið að vera lægsta verðið sem vara var á síð­ustu 30 daga tíma­bili. Þannig að ef þú ert með afslátt í dag og þeim afslætti lýkur eftir viku og þú ætlar eftir tvær vikur aftur að bjóða lækkað verð að þá er fyrra verðið á seinna afslátt­ar­tíma­bil­inu lækk­aða verðið á síð­asta afslætti,“ segir Matt­hildur.

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðmundur Thoroddsen skrifaði
    Sá að Húsasmiðjan hafði hækkað verðið á Texas sláttuvél upp í 99.000 kr. og lækkað aftur niður í 72.000 kr. á tilboði.
    Ég keypti svona vél í Húsasmiðjunni fyrir 2-3 árum og borgaði milli 40 og 50.000 kr. fyrir vélina, ekki á útsölu. Ég fæ ekki séð hvernig verðið getur farið upp í 99.000 kr. Þrátt fyrir hækkun á stáli eða töluverða verðbólgu á tímabilinu. Það verður gaman að sjá hvort þetta háa verð á vélinni helst eftir að útsölunni lýkur.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár