Vextir ekki verið hærri frá því að farið var að bjóða upp á óverðtryggð lán

Heimili með greiðslu­getu sem hefur fylgt almennri launa­þróun getur staðið undir álíka háu óverð­tryggðu láni nú og árið 2017. Síðan þá hefur fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hins vegar hækkað um 70 pró­sent.

Vextir ekki verið hærri frá því að farið var að bjóða upp á óverðtryggð lán
Almenn­ingur Heimili með 250 þús­und krónur á mán­uði í greiðslu­getu gat tekið óverð­tryggt lán upp á 66,2 millj­ónir króna vorið 2021. Nú getur heim­ili með sömu greiðslu­getu tekið lán upp á 29,7 millj­ónir króna. Munurinn er 36,5 millj­ónir króna. Mynd: Bára Huld Beck

„Nú þegar bank­arnir hafa brugð­ist við síð­ustu stýri­vaxta­hækkun eru breyti­legir óverð­tryggðir vextir á fyrsta veð­rétti hjá þeim nú á bil­inu 10,25-10,50 pró­sent. Svo háir hafa vextir ekki verið frá því að HMS fór að safna gögnum um vexti í árs­byrjun 2010 og mögu­lega ekki frá því að farið var að bjóða uppá óverð­tryggð íbúða­lán í ein­hverjum mæli.“ Þetta kemur fram í nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) sem birt var á fimmtu­dag. 

Þar segir að hækk­andi vextir dragi veru­lega úr getu heim­ila til lán­töku, þar sem sama greiðslu­byrði standi nú undir mun lægri láns­fjár­hæð en áður. Dæmi er tekið af heim­ili með greiðslu­getu upp á 250 þús­und krónur á mán­uði. Það gat tekið lán upp á 66,2 millj­ónir króna þegar vextir voru í lág­marki vorið 2021, en þá var hægt að fá íbúða­lán á 3,3 til 4,3 pró­sent óverð­tryggðum vöxtum. Í dag getur heim­ili með þá greiðslu­getu ein­ungis fengið 29,7 millj­óna króna óverð­tryggð lán. Heimili sem er með greiðslu­getu sem hefur fylgt almennri launa­þróun, miðað við launa­vísi­tölu Hagstofu Íslands, staðið undir álíka háu óverð­tryggðu láni nú og árið 2017. Síðan þá hefur fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hins vegar hækkað um 70 pró­sent.

Í skýrsl­unni segir að ef greiðslu­getan hefði fylgt almennri launa­þróun, miðað við launa­vísi­tölu hag­stof­unnar, hefði við­kom­andi heim­ili verið með greiðslu­getu upp á 210 þús­und krónur vorið 2021, og hefði getað tekið lán upp á 55,7 millj­ónir króna. „Sama heim­ili gæti staðið undir greiðslu­byrði af 73 m.kr. verð­tryggðu láni sem er ríf­lega 160 pró­sent hærra en hæsta óverð­tryggða lán sem það gæti staðið undir. Í reglum um hámarks­greiðslu­byrð­ar­hlut­fall er þó miðað við verð­tryggð lán sem eru að hámarki til 25 ára en miðað við þannig lán stæði við­kom­andi heim­ili undir 54,3 m.kr. láni.“ 

Hrein útlán ekki svona lítil síðan 2014

Seðla­bank­inn hefur gripið til marg­vís­legra aðgerða á und­an­förnum miss­erum til að hægja á fast­eigna­mark­aðnum, eftir að skýr bólu­myndun varð á honum sem leiddi til áður­nefndra hækk­ana. Meðal þess sem hann hefur gert er að hækka stýri­vextir úr 0,75 í 8,75 pró­sent í þrettán vaxta­hækk­unum í röð. Auk þess hafa lán­þega­skil­yrði verið þrengd veru­lega með hámarki á veð­setn­ingar- og greiðslu­byrð­ar­hlut­falli. Þessar aðgerðir hafa leitt til þess að veru­lega hefur hægt á hækkun íbúða­verðs á síð­ustu mán­uðum, íbúðum sem eru til sölu hefur fjölgað og með­al­sölu­tími lengst. Auk þess hefur velta á íbúða­mark­aði dreg­ist nokkuð saman og var rúm­lega fjórð­ungi minni með fjöl­býli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að raun­virði á fyrstu fjórum mán­uðum árs­ins 2023 en á sama tíma­bili í fyrra. 

Í skýrslu HMS kemur fram að hrein ný íbúða­lán til heim­ila hafi hald­ist áfram að drag­ast saman í sam­ræmi við ofan­greinda þróun. Þau námu ein­ungis 2,9 millj­örðum króna í apríl, miðað við 8,2 millj­arða króna í mars. Athygli vekur að hrein ný verð­tryggð útlán voru fimm millj­arðar króna á meðan að óverð­tryggðu útlánin voru nei­kvæð um tvo millj­arða króna. „Hrein ný útlán hafa ekki verið svo lítil á núver­andi verð­lagi síðan í apríl 2014 ef und­an­skilin eru árs­byrjun 2015 og 2016 þegar leið­rétt­ingin og sér­eign­ar­sparn­að­ar­úr­ræði skekkja mynd­ina.“ 

Bankar þurfa að fara að huga að aðgerðum

Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­banka Íslands birti yfir­lýs­ingu og minn­is­blað í byrjun júní þar sem hún brýndi fyrir lán­veit­endum að huga tím­an­lega að þyngri greiðslu­byrði lán­tak­enda til þess að fyr­ir­byggja greiðslu­erf­ið­leika þeirra. Viðbúið sé að þrengri fjár­mála­skil­yrði birt­ist fyrr eða síðar í auknum van­skilum en að rétt sé að hafa í huga að van­skil geti komið fram með nokk­urri tíma­töf. „Þar sem þörf krefur ber að skoða að lengja láns­tíma, taka upp jafn­greiðslu­skil­mála, setja þak á greidda nafn­vexti og líta til ólíkra lána­forma sem bjóða upp á mis­mun­andi greiðslu­byrði. Rúm eig­in­fjár­staða margra lán­taka ætti að gefa tölu­vert svig­rúm til að tryggja að greiðslu­byrði hald­ist í takti við við­mið lán­þega­skil­yrða sem nefndin hefur sett.“ 

Samkvæmt tölum HMS þurfti sá sem var með óverð­tryggt lán upp á 45 millj­ónir króna á breyti­legum vöxtum að borga 191.700 krónur af slíku láni í upp­hafi árs 2022.  Útreikn­ingar HMS sýna að greiðslu­byrðin af slíku láni verði sé nú í 366.795 krónur á mán­uði, og hafi þá auk­ist um 175.275 krónur á einu og hálfu ári. 

Alls eru lán upp á næstum 600 millj­arða króna á föstum óverð­tryggðum vöxtum sem losna á næstu þremur árum. Bindi­tími lána upp á 74 millj­arða króna renna út á þessu ári, en um er að ræða lán 4.451 heim­ila. 

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Gleymist alltaf þegar velviljaðir reyna að leysa ógöngur sem kerfið kemur fjármálum einstaklinga í að ráðandi aðilarnir í fjármálaheiminum leggja sig þá í líma við að hagnast meira á lausnunum en þeir gerðu þegar ógöngurnar voru óleystar.

    Það þarf að setja varnagla þegar kerfum er breytt þannig að fræðingarnir geti ekki gert hagsmunaaðilunum kleyft að auðgast meira.

    Í þessu tilfelli gleymdist að sterkast sóknaraðili auðvaldsins.... Seðlabankinn... myndi nýta sér vextina... þrátt fyrir að allir viti að vaxtastýring hefur aldrei og mun aldrei hafa þau áhrif sem þeir ljúga blákalt.. því einungis hinir auðugu hafa efni á að taka ekki lánin sem þarf til að missa ekki eigur sínar og eru þeir sömu og hagnast á dýrum lánum því þeir geta velt þeim yfir á almenning.

    Brilljant vítisvél sem hagfræðingar Seðló og annarra akeademískra veruleikafirrtra fræðimanna ríghalda í til að ekki sjáist hversu vanhæfir þeir eru til að hafa þá stjórn sem þeir segjast hafa.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár