Kvika slítur viðræðum um sameiningu við Íslandsbanka

Stjórn Kviku telur ekki, í ljósi atburða síð­ustu daga, að for­sendur séu til þess að halda samn­inga­við­ræðum við Íslands­banka áfram. Því er ljóst hug­myndir um að búa til stærsta banka á Íslandi eru úti af borð­inu, að minnsta kosti um sinn.

Kvika slítur viðræðum um sameiningu við Íslandsbanka
Kvika banki Marinó Örn Tryggva­son er banka­stjóri Kviku.

Kvika banki hefur slitið sam­runa­við­ræðum við Íslands­banka. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem send hefur verið til Kaup­hallar Íslands, en við­ræður um sam­run­ann hafa staðið yfir und­an­farna mán­uði. Þar segir að í ljósi „atburða síð­ustu daga og þess að fyr­ir­séð er að boðað verði til hlut­hafa­fundar hjá Íslands­banka og mögu­legs stjórn­ar­kjörs, telur stjórn Kviku ekki for­sendur til þess að halda samn­inga­við­ræðum áfram. Þó er ljóst að ávinn­ingur af sam­runa félag­anna gæti orðið veru­legur og hefur stjórn Kviku lýst yfir vilja sínum til þess að hefja við­ræður að nýju ef for­sendur skap­ast.“

Þar er vísað til þess að Íslands­banki skrif­aði um síð­ustu helgi undir sátt við Fjár­mála­eft­ir­litið Seðla­banka Íslands þar sem bank­inn ját­aði á sig marg­háttuð lög­brot í tengslum við sölu á 22,5 pró­sent hlut í honum í mars í fyrra. Vegna þess­ara lög­brota sam­þykkti Íslands­banki að greiða næstum 1,2 millj­arða króna sekt í rík­is­sjóðs, sem er rúm­lega þrettán sinnum meira en fjár­mála­fyr­ir­tæki hefur áður greitt í sekt áður hér­lendis. 

Íslands­banka sendi frá sér eigin til­kynn­ingu í dag vegna við­ræðu­slit­anna þar sem segir að stjórn bank­ans sé „sam­mála þeirri nið­ur­stöðu að rétt sé að slíta sam­runa­við­ræðum.“

Hörð gagnrýni og bankastjórinn farinn

Í kjöl­far þess að sátt Íslands­banka við Fjár­mála­eft­ir­litið var gerð opin­ber á mánu­dag hefur bank­inn sætt harðri gagn­rýni fyrir það fram­ferði sem þar er lýst, og það hvernig stjórn og stjórn­endur hans hafa haldið á málum eftir að lög­brotin voru opin­beruð. Gagn­rýnin hafði meðal ann­ars verið sett fram af leið­togum rík­is­stjórn­ar­innar sem annað hvort sögðu beint, eða gáfu sterkt til kynna, að stjórn­endur bank­ans þyrftu að axla ábyrgð með ein­hverjum hætti. 

Síðdegis á þriðju­dag fór fram stjórn­ar­fundur í Íslands­banka þar sem sú staða sem var uppi var til umfjöll­unar. Sá fundur stóð fram á nótt og á honum var kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, myndi ljúka störfum hjá bank­anum. Til­kynn­ing þess efnis var send á fjöl­miðla klukkan 3:51 aðfara­nótt mið­viku­dags. Þar var haft eftir Birnu að með afsögn sinni væri hún að axla ábyrgð á sínum þætti máls­ins. „Umræðan hefur verið óvægin og ýmsum stjórn­mála­mönnum hefur verið tíð­rætt um afsögn mína. Ég óska þeim vel­farn­aðar í þeirra störfum.“

Pólitíkin hefur haft áhrif

Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar hefur verið tölu­vert mót­staða við sam­ein­ingu Íslands­banka og Kviku innan rík­is­stjórnar Íslands, það er frá ráð­herrum Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks. Það þyki ekki til­hlýði­legt að ráð­ast í sam­ein­ingu á rík­is­banka og áhættu­sæknum fjár­fest­inga­banka, sem leiði af sér að hlutur rík­is­ins í sam­ein­uðum banka yrði minni en sá 42,5 pró­sent hlutur sem það á í Íslands­banka í dag.

Auk þess er framundan hlut­hafa­fundur í Íslands­banka, sem fer fram 28. júlí næst­kom­andi, þar sem mögu­legt er að fari fram stjórn­ar­kjör. Við slíkar aðstæður séu engar for­sendur til staðar til að halda áfram með sam­ein­inga­við­ræður. 

Ætluðu að taka ákvörðun á öðrum ársfjórðungi

Sam­runa­við­ræð­urnar hófust í byrjun febr­úar þegar stjórn Kviku óskaði eftir þeim við stjórn Íslands­banka. 

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands sagði að stjórn fyrr­nefnda bank­ans teldi að sam­runi félag­anna myndi skapa fjár­hags­lega sterkt fjár­mála­fyr­ir­tæki með dreifðan tekju­grunn. „Í sam­ein­uðu félagi væri mögu­legt að veita við­skipta­vinum aukna þjón­ustu og leiða til meiri sam­keppni á fjár­mála­mark­aði, meðal ann­ars með fjár­tækni­lausnum, auk þess sem sam­einað félag yrði áhuga­verður fjár­fest­inga­kostur.“

Þar sagði enn­fremur að ekki þætti ástæða til að ákveða á þeirri stundu hvor bank­anna yrði yfir­töku­fé­lagið eða hvort og að hvaða marki dótt­ur­fé­lög bank­anna myndu sam­ein­ast en það færi eftir heild­ar­mati á við­skipta­legum, skatta­legum og sam­keppn­is­legum sjón­ar­miðum sem myndu eiga sér stað ef form­legar við­ræður myndu hefj­ast.

Í byrjun maí, fyrir tæpum tveimur mán­uðum, var svo send önnur til­kynn­ing þar sem sagði að við­ræð­urnar stæðu enn yfir og að stjórnir beggja banka teldu að „veru­legur ávinn­ingur geti falist í sam­run­anum fyrir bæði hlut­hafa og við­skipta­vini beggja félaga.“

Verk­efnið væri þó umfangs­mikið og unnið væri að þvi, með aðkomu ráð­gjafa, að meta sam­legð af sam­run­anum og meta stöðu sam­ein­aðs félags á mark­aði. „Á öðrum árs­fjórð­ungi munu fjár­hags­legir ráð­gjafar skila grein­ingum sínum á mögu­legum sam­runa og í kjöl­far þess munu félögin taka ákvarð­anir um næstu skref í ferl­inu.“

Öðrum árs­fjórð­ungi lýkur á mið­nætti á morgun og því lá ljóst fyrir að ákvörð­unar um fram­hald við­ræðn­anna var vænt­an­leg fyrir viku­lok. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár