„Gert til þess að hræða fólk frá því að gera það sem það telur skyldu sína“

Már Guð­munds­son segir að aðgerðir Seðla­bank­ans gegn Samherja hafi ekki verið til­hæfu­lausar. Baldvin Þor­steins­son hafi ekki gert sjálfum sér greiða með því að stugga við Má árið 2019, og ekki gert Samherja greiða heldur. „Kannski gerði hann mér bara greiða.“

„Gert til þess að hræða fólk frá því að gera það sem það telur skyldu sína“
Sena Baldvin Þor­steins­son veitt­ist að Má Guð­munds­syni eftir fund stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í mars 2019. Þar stugg­aði hann við Má og sagði: „Hafðu smá sóma­kennd og drull­aðu þér í burtu.“ Mynd: Anton Brink / Fréttablaðið

Sam­herj­a­málið var fyr­ir­ferða­mikið á tíma Más Guð­munds­sonar sem seðla­banka­stjóra. Það sner­ist um að gjald­eyr­is­eft­ir­lit Seðla­bank­ans rann­sak­aði meint brot Samherja og tengdra félaga á skila­skyldu á erlendum gjald­eyri og meint brot sem vörð­uðu milli­verð­lagn­ingu á þremur fisk­teg­undum.

Ráðist var í hús­leit í höf­uð­stöðvum Samherja vegna þessa og Seðla­bank­inn kærði meint brot til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara.Síðar kom hins vegar í ljós, vegna ann­marka á laga­setn­ingu, að lög­að­ilar gætu ekki borið refsi­á­byrgð á lögum og reglum um gjald­eyr­is­mál.

Seðla­bank­inn kærði þá fyr­ir­svars­menn Samherja til sak­sókn­ara fyrir sömu meintu brot en kæran var felld niður árið 2015 og end­ur­send bank­anum. Þá felldi Seðla­bank­inn niður stærstan hluta máls­ins en ákvað að leggja stjórn­valds­sekt upp á 15 millj­ónir króna á Samherja varð­andi afmark­aðan hluta, sem fyr­ir­tækið fékk síðar hnekkt fyrir dóm­stólum. 

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, kall­aði rann­sókn­ina aðför og eftir að máls­með­ferð vegna stjórn­valds­sekt­ar­innar lauk sagði hann það vera alveg ljóst „að Már Guð­munds­son hefur farið mjög illa með það vald sem honum hefur verið trúað fyrir.“ Síðar full­yrti Þor­steinn Már að það væri „nokkuð ljóst að Már Guð­munds­son er á leið­inni í fang­elsi.“

Aðspurður um þessi ummæli segir Már að Þor­steinn Már hafi ekki reynst sann­spár þar. „Segir það ekki allt sem segja þarf?“

„Ef lög­regla tekur við kæru, hvort sem það er nauðg­un­ar­kæra eða eitt­hvað annað, og fer í ein­hverjar yfir­heyrslur og ferli og svo er málið fellt niður, voru þá aðgerð­irnar til­hæfu­lausar?“

Már segir í ítar­legu við­tali við 40 ára afmæl­is­rit Vís­bend­ingar að hann sé með harðan skráp og að hann sé með fulla vissu um að Seðla­bank­inn hafi ein­ungis verið að sinna sínum emb­ætt­is­skyldum í þessu máli. Það hafi komið fram í dóms­orðum að aðgerðir bank­ans hafi ekki verið til­hæfu­lausar. „Svo er rök­studdur grunur, sem þarf að liggja að baki kæru, er ekki það sama og sönnuð sekt.“

Segir aðgerðirnar ekki hafa verið tilhæfulausar

Duldir gallar í lögum hefðu gert það að verkum að allur refsi­bálk­ur­inn í lög­gjöf­inni sem gjald­eyr­is­eft­ir­litið átti að starfa eftir hafi verið óvirkur. „Og það bara vissi eng­inn af því! Ég bara spyr, af hverju er það ekki rann­sakað? Vegna þess að það nátt­úru­lega er stór­mál.“

Már bendir á að gjald­eyr­is­eft­ir­lit Seðla­bank­ans hafi ekki verið lög­regla, heldur aðili sem var skyld­aður til að kæra til lög­reglu ef það reynd­ist rök­studdur grunur um meiri­háttar brot á gjald­eyr­is­lögum. Þótt kæra hafi verið send felist ekki í því full­yrð­ing á því að slíkt brot hafi átt sér stað og enn síður að hægt væri að full­yrða um sök eða sýknu á þeim grund­velli. „Hvað ætli þau séu mörg málin á Íslandi sem hafa verið kærð til lög­reglu sem ekk­ert síðan verður úr út af erf­iðri sönn­un­ar­byrði og öðru þvíum­líku? Ef lög­regla tekur við kæru, hvort sem það er nauðg­un­ar­kæra eða eitt­hvað annað, og fer í ein­hverjar yfir­heyrslur og ferli og svo er málið fellt niður, voru þá aðgerð­irnar til­hæfu­lausar?“

Kallar á rann­sóknDuldir gallar reynd­ist hafa verið til staðar í í lög­gjöf­inni sem gjald­eyr­is­eft­ir­litið átti að starfa eftir. Fyrir vikið virk­aði ekki refsi­bálkur lag­anna. „Og það bara vissi eng­inn af því! Ég bara spyr, af hverju er það ekki rann­sakað? Vegna þess að það nátt­úru­lega er stór­mál.“

Hann segir að til séu fullt af dæmum um svona atburða­rás í Íslands­sög­unni. „Auðvitað var í þessu til­felli um að ræða fyr­ir­tæki með sterka stöðu og aðgang að fjöl­miðlum og kannski aðgang inn í póli­tík og annað, og það nátt­úru­lega lit­aði kannski málið.“

Samherji kærði Má og fjóra aðra stjórn­endur Seðla­bank­ans til lög­reglu vegna rangra sak­ar­gifta. Það mál var fellt niður. Í kjöl­farið fór Samherji í skaða­bóta­mál þar sem Seðla­bank­inn var sýkn­aður af kröfum fyr­ir­tæk­is­ins en þurfti að greiða Þor­steini Má 2,7 millj­ónir króna í skaða- og miska­bætur.

Baldvin gerði ekki Samherja neinn greiða

Már segir að reynt hafi verið að per­sónu­væða málið. Það komi honum ekki á óvart enda sé það algengt víða um heim þegar rann­sókn­ar­að­ilar eru að eiga við öfl­uga aðila. „Það er nátt­úru­lega gert til þess að hræða fólk frá því að gera það sem það telur skyldu sína.“

Einn angi máls­ins sem vakti mikla athygli átti sér stað eftir opinn fund í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd í mars 2019, þar sem vinnu­brögð Seðla­bank­ans í rann­sókn­inni á Samherja höfðu verið til umfjöll­unar. Eftir fund­inn reyndi Már að eiga orða­skipti við Þorstein Má. Baldvin Þor­steins­son, sonur Þor­steins Más og einn helsti eig­andi og stjórn­andi Sam­herj­a­sam­stæð­unnar í dag, brást illa við, stugg­aði við Má og sagði: „Hafðu smá sóma­kennd og drull­aðu þér í burtu.“

Már segir að hann hafi lík­lega verið eini mað­ur­inn á staðnum sem var sall­ar­ó­legur þegar þetta átti sér stað. „Það sagði ein­hver við mig, ég held að það hafi verið ein­hver stjórn­mála­maður: „Vandinn við þig að þú ert orð­inn svo gam­all að þú hagg­ast lítið við 

svona aðstæður.“ Ég ætla nú bara að segja sem minnst um þetta, ég meina, ekki gerði hann sér greiða með þessu og ekki gerði hann Samherja greiða. Kannski gerði hann mér bara greiða. En ég læt þetta bara liggja.“

Áskrif­endur Vís­bend­ingar geta lesið við­talið við Má í heild sinni í 40 ára afmæl­is­rit­inu, eða á glæ­nýrri heima­síðu rits­ins. Slóðin á hana er www.visbending.is.

Kjósa
74
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MGÁ
    Marteinn Gísli Árnason skrifaði
    þetta lið asamt öðrum er hafið uppfyrir lög og reglur.

    ÞETTA ÞJOÐFELAG OKKAR ER SVO GJÖRSPILLT AÐ FOLK ER HÆTT AÐ SJA SPILLINGUNA.
    1
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    Þegar fyrrverandi Seðlabankastjóri segir þetta,

    "Duldir gallar í lögum hefðu gert það að verkum að allur refsibálkurinn í löggjöfinni sem gjaldeyriseftirlitið átti að starfa eftir hafi verið óvirkur. „Og það bara vissi enginn af því! Ég bara spyr, af hverju er það ekki rannsakað? Vegna þess að það náttúrulega er stórmál.“

    Þá er full ástæða til að taka eftir.
    10
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    ,,Duldir gallar í lögum hefðu gert það að verkum að allur refsibálkurinn í löggjöfinni sem gjaldeyriseftirlitið átti að starfa eftir hafi verið óvirkur. „Og það bara vissi enginn af því! Ég bara spyr, af hverju er það ekki rannsakað? Vegna þess að það náttúrulega er stórmál.“

    Já, hvers vegna eru ekki fluttar fréttir af rannsókn frá ríkisstjórn VG liða í boði sjálfstæðisflokksins vegna ,,eyðileggingar" á lögum ?

    Hver er ábyrgur fyrir þessari ,,eyðileggingu" ?

    ,,...allur refsibálkurinn í löggjöfinni sem gjaldeyriseftirlitið átti að starfa eftir hafi verið óvirkur" ?
    8
  • MGÁ
    Marteinn Gísli Árnason skrifaði
    þetta eru litilmenni hja SAMHERJA og öðrum UTGERÐARFELÖGUM,sem eru drifin afram
    af völdum peninga,politik og ofyrirleitni.Þetta pakk a að kunna að skammast sin og borga
    til þjoðarinnar sem hun a þ.e.a.s. auðlindirnar.Ekki troða alla skumaskota sem þetta pakk a
    af peningum ut um allan heim. ATH. SVONA LITILMENNI ERU HÆTTULEG.
    4
  • KÞ
    Katrín Þórarinsdóttir skrifaði
    Ísland í hnotskurn :(
    2
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Sýnir lélega stjórnun Þorsteins að hann skuli láta strákinn vaða uppi með þessum hætti.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár