„Það tókst að sannfæra þá aðila sem máli skipti“

Már Guð­munds­son segir aðdrag­and­ann að því hvernig samið var við slitabú föllnu bank­anna um að gera stöð­ug­leika­samn­ing­anna sé enn að miklu leyti óþekktur almenn­ingi. Allskyns hlutir hafi verið að leka í blöðin sem sköp­uðu óánægju. Á end­anum hafi tek­ist að sann­færa Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, um að styðja þá leið sem farin var.

„Það tókst að sannfæra þá aðila sem máli skipti“
Átök Hart var tek­ist á um þau skref sem þurfti að stíga til að losa fjár­magns­höft. Mynd: Hari

Það var hart tek­ist á á þeim árum sem Már Guð­munds­son var seðla­banka­stjóri, bæði opin­ber­lega en lika fyrir luktum dyrum, um hvernig ætti að stíga skref í átt að losun hafta. Þar voru sér­stak­lega fyr­ir­ferða­mikil mál sem snertu upp­gjör við slitabú föllnu bank­anna. Um ári eftir að Már hætti kom út bókin „Afnám hafta – Samn­ingar ald­ar­innar?“ eftir Sigurð Má Jónsson, fyrr­ver­andi upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar. Þar var hlutur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og helstu sam­starfs­manna hans í ferl­inu tal­aður mikið upp.

Í kjöl­far útgáfu hennar átti sér stað rit­deila í Mark­aðnum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins sál­uga um efna­hags­mál og við­skipti, þar sem Már skrif­að­ist á við ýmsa sem vildu eigna sér heið­ur­inn af þeirri nið­ur­stöðu sem varð í samn­ing­unum við kröfu­hafa föllnu bank­anna, en draga úr þætti Seðla­bank­ans. Þetta var í eitt af sára­fáum skiptum sem Már hefur tjáð sig á opin­berum vett­vangi síðan hann hætti sem seðla­banka­stjóri.

Már segir í við­tali við 40 ára afmæl­is­rit Vís­bend­ingar að hann ætli sér að síðar meir að skrifa um þessi mál. „Eitt af því sem kom opin­ber­lega fram undir lok míns tíma­bils var að banka­ráð Seðla­banka Íslands hafði áhuga á því eftir að það var búið að losa höft að það yrði tekin saman skýrsla um fram­kvæmd­ina. Ég var sam­mála því. Á þessu tíma­bili sem verið var að taka ákvarð­anir um þessi skref var starf­andi stýrinefnd um losun hafta, sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra stýrði, og ég ásamt öðru af mínu fólki og fólki úr ráðu­neytum sátum í. Það var á þessum stað sem ákvarð­anir um end­an­legar til­lögur, sem fóru svo sumar yfir á rík­is­stjórn­ar­borðið, voru teknar form­lega. Ég er þeirrar skoð­unar að það þurfi að fara yfir allt efni þess­arar nefndar og birta allt sem hægt er að birta. Þá held ég nú að það verði að stroka yfir sumt sem sagt hefur verið. Það myndi líka styðja mínar frá­sagnir af þessu.

Þetta er auð­vitað mjög marg­þætt saga. Sumt var opin­bert, til dæmis það hvernig var tekið á aflandskrón­unum og það ferli allt saman. En stefnu­mót­unin, aðdrag­and­inn að því sem var gert 2015 varð­andi slita­búin, hann er miklu minna þekktur. Það voru að vísu á þessu tíma­bili að leka alls­konar hlutir út í blöðin. Og ég man að við Bjarni vorum báðir mjög óánægðir með það. Eftir á að hyggja voru kannski ein­hverjir í ferl­inu að tala fyrir ákveð­inni leið sem þeir vildu fara. Sem að lokum var ekk­ert farin.“

Þurfti að hlutleysa greiðslujöfnuð

Hann segir að fréttir hafi birst í fjöl­miðlum um að staðan gagn­vart kröfu­höf­unum yrði leyst með því að allar eignir slita­bú­anna yrðu teknar inn í landið og síðar yrði lagður á alls­herjar útgöngu­skattur á þær. „Ég veit nú ekki hvenær höftin hefðu losnað ef þetta hefði verið gert Það hefði vænt­an­lega verið ein­hver ára­tugur eða meira sem hefði liðið með miklum laga­flækjum. Og þetta var ekki sú leið sem var farin. Ég var alla tíð mjög skept­ískur á þessa leið.“

Honum hafi þótt mik­il­vægt að leysa úr stöð­unni gagn­vart slita­bú­unum og þeim aflandskrónum sem voru fastar innan íslensku haft­anna, sam­tals mörg hund­ruð millj­arðar króna, áður en opnað yrði fyrir að hleypa inn­lendum aðilum út úr höft­unum, sem var á end­anum ekki gert fyrr en vorið 2017. Annars hefði skap­ast hætta á að inn­lendu aðil­arnir myndu reyna að flýta sér út áður en hinir fóru. „Það yrði kapp­hlaup út um dyrnar og þá myndi mynd­ast óstöð­ug­leiki aftur. Það var auð­vitað svo­lítið útstreymi en það var ekk­ert sem ógn­aði fjár­mála­stöð­ug­leika. Þess vegna taldi ég alla tíð að það sem þyrfti að gera varð­andi slita­búin væri að hlut­leysa greiðslu­jöfnuð. Það yrði að ger­ast með því að inn­lendar eignir yrðu annað hvort eftir eða það væri komið með eitt­hvað annað mót­vægi af hálfu þess­ara aðila, varð­andi slíkt útstreymi. Og það var í raun­inni það sem var gert.“ 

Segir Sigmund Davíð hafa bætt við stöðugleikaskattinum

Már segir að frá haust­mán­uðum árs­ins 2014 og þangað til að stöð­ug­leika­sam­komu­lag náð­ist við kröfu­hafa föllnu bank­anna, um að þeir létu inn­lendar eignir upp á mörg hund­ruð millj­arða króna renna til rík­is­sjóðs árið eftir, hafi mikil vinna átt sér stað í Seðla­bank­anum til að und­ir­búa málið. Hann minnir á að þegar svo­kallað sól­ar­lags­á­kvæði, sem í fólst að höft á slitabú föllnu bank­anna höfðu fyr­ir­fram ákveð­inn líf­tíma út árið 2013, var afnumið og eignir þeirra þar með festar inni í eins langan tíma og Ísland taldi nauð­syn­legt, þá hafi íslenska ríkið verið komið með öll tök á stöð­unni. „Við bjuggum til ítar­lega grein­ar­gerð um þessa lausn. Á borð­inu hafði líka verið útgöngu­skattur, sem hefði þá einnig náð til erlendra eigna slita­bú­anna, aflandskróna og inn­lendra aðila. Það tókst að sann­færa þá aðila sem máli skipti um að fara ekki þá leið heldur þá sem farin var. Sig­mundur Davíð, sem þá var for­sæt­is­ráð­herra, sá held ég eftir að búið var að fara yfir málið að útgöngu­skatts­leiðin gæti tekið langan tíma og verið áhættu­söm. Hann studdi því leið­ina en bætti við stöð­ug­leika­skatt­inum. Lög­gjöfin um stöð­ug­leika­skatt­inn skap­aði svo rammann utan um fram­kvæmd­ina á greiðslu­jafn­að­ar­hlut­leysi los­unar hafta á slita­búin.“ 

Samn­ingar kynntirStjórn­völd náðu sam­komu­lagi við kröfu­hafa föllnu bank­anna árið 2015. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son var þá for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra.

Áætlun Íslend­inga í þeirri stöðu sem landið var komið í hafi verið ein­hverjar best und­ir­búnu ákvarð­anir í Íslands­sög­unni og heppn­ast mjög vel. Það sé verið að kenna íslenska sýni­dæmið í við­skipta­há­skólum víða um heim. „Sumir segja að þetta hafi tekið allt of langan tíma og nið­ur­staðan hafi verið komin þarna fyrr. Ég er ekki sam­mála því, vegna þess að þetta var aðgerð af því tagi að hún þurfti að vera tekin í sem mestri sam­stöðu, með aðkomu stjórn­mála­manna. Það þurfti laga­setn­ingu á Alþingi. Ég er mjög stoltur af því að varð­andi allar þessar laga­breyt­ingar, fyrst varð­andi slita­búin og síðan varð­andi aflandskrón­urnar, að þær voru sam­þykktar í þing­inu nán­ast með atkvæðum allra. Það styrkti stöð­una út á við. Það þurfti líka að skapa trú á því hjá þjóð­inni að það væri ekki verið að gera eitt­hvað sem væri of áhættu­samt. Það gekk eftir.“

Áskrif­endur Vís­bend­ingar geta lesið við­talið við Má í heild sinni í 40 ára afmæl­is­rit­inu, eða á glæ­nýrri heima­síðu rits­ins, vis­bend­ing.is.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Sem sagt Sigmundur reddaði seðlö ur fræðilegu holunni sem þeir grófu sér. Kröfuhafar leystir út með óvæntum gjöfum og Mar þakkar sér og seðlo að þeir sögðu já við manna frá himnum. Raunveruleikinn er svo fjandann leiðindi svo menn fara bara i syndarverleikann sinn,,,,,og almenningur fær reikninginn og ekki minnast á aflandseyjaþvottinn.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár