Þingvetur sem fer trauðla í sögubækurnar

Innan við helm­ingur boð­aðra frum­varpa rík­is­stjórn­ar­innar urðu að lögum fyrir þing­frestun. Stór mál sem ráð­herrar hugð­ust koma í gegn á Alþingi dög­uðu uppi. Tveir ráð­herrar náðu aðeins einu máli fram hvor.

Þingvetur sem fer trauðla í sögubækurnar
Í hæga­gangi Fátt var um stór­tíð­indi á liðnum þing­vetri. Mynd: Bára Huld Beck

Fundum Alþingis var frestað 9. júní síð­ast­lið­inn og þing­menn héldu í sum­ar­frí sem standa á í 94 daga, 19 dögum lengur en sum­ar­frí grunn­skóla­nema, til sam­an­burðar. Flestum ber saman um að þing­vet­ur­inn hafi verið tíð­inda­snauður, fá stór mál hafi náð fram að ganga. Átök hafi helst staðið um útlend­inga­frum­varpið og svo innan rík­is­stjórn­ar­innar sjálfrar. Sem hafi meðal ann­ars valdið því að fjöldi mála stjórn­ar­flokk­anna hafi ekki komið fram eða ekki náð fram að ganga.

82
frum­vörp urðu að lögum

Í haust sem leið lagði rík­is­stjórnin fram þing­mála­skrá sína, svo sem skylt er að gera við upp­haf þings. Þing­mála­skrá tók breyt­ingum eftir því sem á vet­ur­inn leið og sam­kvæmt upp­færðri skrá í byrjun árs voru 169 laga­frum­vörp á þing­mála­skránni auk 34 þings­á­lykt­un­ar­til­lagna. Að end­ingu urðu 82 frum­vörp að lögum, öll úr ranni rík­is­stjórn­ar­innar utan þing­manna­frum­varps Hönnu Katrínar Frið­riks­son um bann við bæl­ing­ar­með­ferðum.

…
Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár