Skaðleg karlmennska eykur þöggun um kynferðisbrot gegn drengjum

Skað­legar hug­myndir um karl­mennsku minnka líkur á að drengir og karl­menn sem hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi leiti sér hjálpar. Þetta eru rang­hug­myndir á borð við að karl­menn eigi alltaf að vera til í kyn­líf, þeir séu þátt­tak­endur ef þeir örvast lík­am­lega við ofbeldið og að þeir sem hafi verið mis­not­aðir muni mis­nota aðra. Á fimmta hund­rað karl­menn hafa leitað sér aðstoðar hjá Stíga­mótum á síð­ustu tíu árum.

Skaðleg karlmennska eykur þöggun um kynferðisbrot gegn drengjum
Alið á rang­hug­myndum Hjálmar Sig­mars­son, ráð­gjafi hjá Stíga­mótum, segir það hafa mikil áhrif þegar strákar eru byrj­aðir að horfa á klám jafn­vel tíu ára gamlir, alist þannig upp við ranga mynd af því hversu til­kippi­legir karl­menn eigi að vera þegar kemur að kyn­lífi og viti ekki að þeir mega setja mörk. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Við sem sam­fé­lag erum búin að átta okkur á því að kyn­ferð­is­of­beldi sé alvar­legt. Við erum hins vegar ekki komin jafn langt í að skilja hversu flóknar afleið­ing­arnar eru. Fyrir drengi og karl­menn sem verða fyrir kyn­ferð­is­of­beldi eru síðan ýmsar rang­hug­myndir tengdar karl­mennskuí­mynd­inni sem gera þeim erfitt með að segja frá,“ segir Hjálmar Sig­mars­son, ráð­gjafi hjá Stíga­mótum. 

Á síð­ustu tíu árum hafa 453 karlar leitað sér aðstoðar hjá Stíga­mótum vegna kyn­ferð­is­of­beldis. Þetta er um helm­ingur þeirra sem hafa leitað til sam­tak­anna frá því þau voru stofnuð árið 1990. Hjálmar segir ákveðna spreng­ingu hafa orðið árið 2013 sam­hliða fjöl­miðlaum­fjöllun um kyn­ferð­is­brot Karls Vignis Þor­steins­sonar sem var dæmdur í sjö ára fang­elsi fyrir gróf kyn­ferð­is­brot gegn drengjum, og þá hafi umræðan opn­ast meira.

Hjálmar bar saman töl­fræði­gögn um karl­menn sem urðu fyrir kyn­ferð­is­of­beldi í fyrsta skipti undir 18 ára aldri og síðan yfir 18 ára aldri. Afger­andi var að afleið­ing­arnar …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár