„Við fundum hann bara á götunni“

Sólveig og Tómas starfa í vinnu­skóla Reykja­vík­ur­borgar í sumar. Þau björg­uðu hjálp­ar­vana fugli úr háska í miðbæ Reykja­víkur.

„Við fundum hann bara á götunni“
Kærustuparið Sólveig og Tómas í vinn­unni. Mynd: Eik Arnþórsdóttir

Sólveig Hrapps­dóttir, 19 ára, og Tómas Atlason, 18 ára, ganga var­færn­is­lega á eftir væng­brotnum fugli sem trítlar haltur niður Aust­ur­stræti. Þau eru í gulum vinnu­göllum með app­el­sínugula hanska og teygja sig niður að fugl­inum til þess að stýra honum í burtu frá svartri Teslu sem nálg­ast óðfluga. Bíl­stjóri bif­reið­ar­innar stoppar bíl­inn og fugl­inn kemst yfir göt­una án frek­ari áverka. 

„Við eigum að vera að hreinsa ein­hver tré, eða svona arfa, akkúrat núna. Við vorum líka að planta blómum þarna í gær,“ segir Sólveig og bendir í átt að Aust­ur­velli. „En síðan sáum við þennan fugl. Já, við fundum hann bara á göt­unni. Hann hreyfði sig ekki.“

„Já, hann er veik­burða og kann varla að fljúga. Við erum að reyna að gefa honum orm eða eitt­hvað,“ bætir Tómas við. 

Hvað ætlið þið svo að gera?

„Bara láta hann í friði.“ Sólveig fylgist með honum haltra áfram. 

„Já, kannski passa að eng­inn köttur komi og borði hann,“ svarar Tómas íhug­ull og sleppir fugl­inum ekki úr aug­sýn. 

Parið er í bæj­ar­vinn­unni annað sum­arið í röð en stundar líka nám við Mennta­skól­ann í Hamra­hlíð. „Við erum saman og byrj­uðum eig­in­lega að vera vinir í fyrra í bæj­ar­vinn­unni. Þá vorum við að tala saman hérna við þetta beð,“ segir Sólveig, sem brosir og lítur á Tómas. „Já,“ segir hann og end­urg­eldur henni brosið. 

Athyglin bein­ist að fugl­inum sem stefnir aftur út á göt­una. Sólveig gengur að honum og app­el­sínu­gulu vinnu­hansk­arnir búa til mjúkt og öruggt umhverfi fyrir fugl­inn í lófum hennar. Hún lyfti honum rólega frá jörð­inni. Nú er kom­inn mat­ar­tími. Parið arkar bros­andi í burtu frá blaða­konu í leit að næsta ormi. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár