Ærandi þögn í kjölfar ADHD-greiningar

Veru­legur skortur á geð­læknum hefur orðið til þess að sumt fólk sem sál­fræð­ingar hafa metið með ADHD lendir í eins konar lim­bói eftir sál­fræði­hlut­ann. Símtölum þeirra til geð­lækna er sjaldan svarað og á hóp­ur­inn því erfitt með að kom­ast í lyfja­með­ferð.

Ærandi þögn í kjölfar ADHD-greiningar
ADHD Á sama tíma og Guðni Rúnar var að leita sér að geð­lækni án neins sjá­an­legs árang­urs eign­að­ist hann sitt fyrsta barn. Ofan í ómeð­höndlað ADHD var hann því eins og margir aðrir nýbak­aðir for­eldrar ósof­inn, kok­teill sem gerði honum ekki gott. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ærandi þögn tók við Guðna Rúnari Jónassyni þegar hann reyndi að kom­ast að í með­ferð hjá geð­lækni í kjöl­far þess að sál­fræð­ingur greindi honum frá því að hann væri með ADHD. Tölvu­póstum sem hann sendi á geð­lækna­stofur var ekki svarað og ekk­ert kom út úr sím­töl­unum sem hann hringdi.

ADHD-teymi Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins gat ekki tekið við honum þar sem grein­ar­gerðin sem hann hafði fengið frá sál­fræð­ingi stóðst ekki klínísk við­mið.

Eftir um tveggja ára leit brá hann á það ráð að ræða við mann­eskju sem hafði verið hjá geð­lækni á einka­rek­inni stofu. Hún hafði þá sam­band við lækn­inn sinn og kom Guðna á biðlista.

Saga Guðna, sem starfar sem verk­efna­stjóri hjá ADHD-sam­tök­unum, er ekki eins­dæmi. Veru­legur skortur á geð­læknum hefur orðið til þess að sumt fólk sem sál­fræð­ingar á einka­stofum hafa metið með ADHD lendir gjarnan í eins konar lim­bói eftir sál­fræði­hlut­ann. Lyf eru langal­geng­asta með­ferðin sem …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Björn Ingi Þorgrímsson skrifaði
    Þetta er vondur tími frá greiningu til geðlæknis, er hálfnaður í bið og þetta er ekki betra fyrir 60+. Gott að kynna sér málefni ADHD og reyna að nota sem vegvísa einsog Elvar bendir á en eftir þennann lestur þá bætist við kvíði, er greining frá mínum sálfræðingi í lagi?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár