Bankarnir þurfi að fara að huga að aðgerðum fyrir lántakendur

Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd segir að huga þurfi tím­an­lega að þyngri greiðslu­byrði lán­tak­enda til þess að fyr­ir­byggja greiðslu­erf­ið­leika. Líkur á því að verð­leið­rétt­ing muni eiga sér stað, þar sem íbúða­verð leiti niður á við í átt að und­ir­liggj­andi þáttum, hafa auk­ist.

Bankarnir þurfi að fara að huga að aðgerðum fyrir lántakendur
Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri er for­maður nefnd­ar­innar. Mynd: Seðlabanki Íslands

Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­banka Íslands brýnir fyrir lán­veit­endum að huga tím­an­lega að þyngri greiðslu­byrði lán­tak­enda til þess að fyr­ir­byggja greiðslu­erf­ið­leika þeirra. Viðbúið sé að þrengri fjár­mála­skil­yrði birt­ist fyrr eða síðar í auknum van­skilum en að rétt sé að hafa í huga að van­skil geti komið fram með nokk­urri tíma­töf. „Þar sem þörf krefur ber að skoða að lengja láns­tíma, taka upp jafn­greiðslu­skil­mála, setja þak á greidda nafn­vexti og líta til ólíkra lána­forma sem bjóða upp á mis­mun­andi greiðslu­byrði. Rúm eig­in­fjár­staða margra lán­taka ætti að gefa tölu­vert svig­rúm til að tryggja að greiðslu­byrði hald­ist í takti við við­mið lán­þega­skil­yrða sem nefndin hefur sett.“ 

Þetta er meðal þess sem fram kemur í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar, sem leidd er af Ásgeiri Jónssyni seðla­banka­stjóra, sem birt var í morgun og minn­is­blaði hennar sem birt var sam­hliða.

Nefndin telur að íslenska fjár­mála­kerfið standi traustum fótum og segir að eig­in­fjár- og lausa­fjár­staða kerf­is­lega mik­il­vægu bank­anna þriggja, Lands­bank­ans, Íslands­banka og Arion banka, sé sterk. Það sjá­ist meðal ann­ars á því að van­skil séu enn sem komið er lítil, en van­skila­hlut­fall ein­stak­lings­lána var 0,75 pró­sent í lok mars og hafði þá hækkað lít­il­lega frá ára­mótum. Hlutfall útlána til heim­ila sem eru í fryst­ingu hefur líka hækkað og nam 1,1 pró­senti í lok mars.

Þá sé rekstr­ar­af­koma bank­anna þriggja sé góð, en þeir högn­uð­ust sam­tals um 20,3 millj­arða króna á fyrstu þremur mán­uðum yfir­stand­andi árs. Allir þrír juku hagnað sinn frá sama tíma­bili 2022, enda juk­ust vaxta­tekjur þeirra mikið milli ára og eru langstærsti tekju­póst­ur­inn í rekstri þeirra. 

Föstu lánin fara að losna

Verð­bólga, sem mælist nú 9,5 pró­sent, og þrettán stýri­vaxta­hækk­anir í röð, sem hafa skilað þeim vöxtum í 8,75 pró­sent, hafi þó leitt til þyngri greiðslu­byrði þeirra sem tekið hafa óverð­tryggð íbúða­lán á breyti­legum vöxtum, en þar er um að ræða fjórð­ung allra íbúða­lána.. Margir lán­tak­endur sem festu óverð­tryggða vexti muni auk þess losna úr þeirri fest­ingu á næst­unni sem mun hækka greiðslu­byrði þeirra veru­lega. Við því þurfi bankar og aðrir lán­veit­endur að bregð­ast tím­an­lega. 

Samkvæmt tölum sem Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun (HMS) hefur tekið saman þurfti sá sem var með óverð­tryggt lán upp á 45 millj­ónir króna á breyti­legum vöxtum að borga 191.700 krónur af slíku láni í upp­hafi árs 2022. Þegar allir bank­arnir verða búnir að hækka vexti sína eftir síð­ustu stýri­vaxta­hækkun – Lands­bank­inn er einn búinn að gera það enn sem komið er – verða þeir allir komnir yfir tíu pró­sent. Útreikn­ingar HMS sýna að greiðslu­byrðin af slíku láni verði þá komin í 366.795 krónur á mán­uði, og hafi þá auk­ist um 175.275 krónur á einu og hálfu ári. 

Alls eru lán upp á næstum 600 millj­arða króna á föstum óverð­tryggðum vöxtum sem losna á næstu þremur árum. Bindi­tími lána upp á 74 millj­arða króna renna út á þessu ári, en um er að ræða lán 4.451 heim­ila.  

Líkur á verðleiðréttingu aukast

Í minn­is­blaði fjár­mála­stöð­ug­leika­nefndar er einnig fjallað um áhrif þeirra aðgerða sem Seðla­bank­inn hefur gripið til á fast­eigna­mark­að­inn, en auk mik­illa vaxta­hækk­ana hafa lán­þega­skil­yrði verið þrengd veru­lega með hámarki á veð­setn­ingar- og greiðslu­byrð­ar­hlut­falli. Þar kemur fram að veru­lega hafi hægt á hækkun íbúða­verðs á síð­ustu mán­uðum, íbúðum sem eru til sölu hefur fjölgað og með­al­sölu­tími lengst. Þá hefur velta á íbúða­mark­aði dreg­ist nokkuð saman og var rúm­lega fjórð­ungi minni með fjöl­býli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að raun­virði á fyrstu fjórum mán­uðum árs­ins 2023 en á sama tíma­bili í fyrra. Utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins var sam­drátt­ur­inn þó heldur minni. 

Nefndin bendir á að í hlut­falli við ákvarð­andi þætti sé íbúða­verð þó enn hátt. Það bendi til tals­verðs ójafn­vægis með til­heyr­andi kerf­is­á­hættu. Líkur á verð­leið­rétt­ingu, þar sem íbúða­verð leiti í átt að þeim þáttum sem vana­lega ráða verð­myndun á mark­aðnum, hafi auk­ist með hækk­andi fjár­magns­kostn­aði. Það þýðir á manna­máli að íbúða­verð gæti lækkað nokkuð skarpt á Íslandi í nán­ustu fram­tíð, líkt og það hefur gert víða í löndum í kringum okkur. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Komnar tillögur að nafni á núverandi ríkisstjórn: Verðbólgustjórnin? Hávaxtastjórnin? eða?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár