Mávar vilja éta það sama og menn

Fæðuval máva stjórn­ast af því sem þeir sjá mann­eskjur borða. Þessi nið­ur­staða rann­sóknar vís­inda­manna við Háskól­ann í Sussex gæti verið gott vega­nesti til að finna leiðir til að auð­velda sam­búð manna og máva.

Mávar vilja éta það sama og menn
Gargandi gáfur Þeir láta stundum vel í sér heyra og eru snjallir að finna sér eitt­hvað í gogg­inn. Og þeir eru klárir. Mynd: Pexels

Mávar eru ekki vin­sæl­ustu fuglar heims. Garg þeirra og fjöldi truflar suma líkt og dæmi hér­lendis sýna. Í fyrra fengu ein­hverjir íbúar Garða­bæjar sig fullsadda af sam­búð­inni og héldu því fram að máva­rnir trufl­uðu svefn­frið og réð­ust jafn­vel á fólk. Gunnar Þór Hall­gríms­son fugla­fræð­ingur sagði af því til­efni að ekk­ert væri til í því sem haldið var fram að mávar væru að verða árás­ar­gjarn­ari. En þeir, líkt og aðrir fuglar, verja egg sín og unga. Þeir væru hins vegar tæki­fær­is­sinnar þegar kæmi að fæðu þrátt fyrir að langal­geng­asta fæða þeirra væri fiskur úr sjónum.

Og nú hefur verið gerð rann­sókn sem sýnir að þeir fylgj­ast vel með okkur mann­fólk­inu og velja að éta það sama og við stingum upp í okkur.

Það voru síla­mávar sem fóru svo mjög í taug­arnar á Garð­bæ­ing­unum en vís­inda­menn við Háskól­ann í Sussex rann­sök­uðu fæðu­val silf­ur­máva. Silf­ur­máva er að finna á Íslandi þrátt fyrir að vera ekki algengir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. En þar sem teg­und­irnar eru náskyldar og því margt hægt að læra af erlendum teg­und­unum, segir Tómas Grétar Gunn­ars­son fugla­fræð­ingur við Heim­ild­ina um bresku rann­sókn­ina.

Það hefur lengi verið vitað að mávar fylgj­ast með hegðun fólks, sækja í úrgang sem það skilur eftir sig, hvort sem er á sjó eða landi. En hin nýja rann­sókn, sem gerð var á strönd í Brighton, sýnir að mávar fylgj­ast nákvæm­lega með því sem við gæðum okkur á og velja að éta það sama. Til rann­sókn­ar­innar voru not­aðir tvenns konar pokar undan flögum og viti menn (og mávar) – fugl­arnir völdu að leita að leifum í pok­unum sem voru eins og þeir sem fólkið var að úða í sig úr.

Rann­sóknin fór þannig fram að vís­inda­fólkið límdi pok­ana við gang­stétt­ar­hellur nálægt hópi máva. Annars vegar var um að ræða grænan flögu­poka og hins vegar bláan. Fólkið hörf­aði svo um nokkra metra. Það ýmist sat svo og gerði ekk­ert eða hám­aði í sig úr bláum eða grænum flögu­poka.

Þegar rann­sak­end­urnir aðhöfð­ust ekk­ert fór innan við fimmt­ungur máva­nna að pok­unum. En þegar þeir hófu að borða upp úr flögu­pokum kom tæp­lega helm­ingur fugl­anna að pok­unum á stétt­inni. Um 40 pró­sent þeirra sem það gerðu end­uðu á því að kroppa í pok­ana og um 95 pró­sent fóru beint að poka í sama lit og fólkið var að borða upp úr.

Útsjón­ar­samirMávar eru snjallir að finna æti og fylgj­ast með mönnum til að átta sig á hvar það er helst að finna. Og hvað af því er best.

Þetta þykir Franzisku Feist, líf­fræð­ingi og aðal­höf­undi rann­sókn­ar­innar, mjög áhuga­vert því nábýli manna og silf­ur­máva er til­tölu­lega nýtil­komið í þró­un­ar­sögu­legu til­liti. Hún telur að nota megi rann­sókn­ina til að draga úr spennu í sam­skiptum manna og máva. Nið­ur­staðan sýni að ekki sé nóg að setja upp skilti þar sem standi „Ekki gefa fugl­unum“ heldur ætti að bæta við „og ekki láta þá sjá þig borða heldur,“ segir hún í sam­tali við The Guardian. Mávar fylgist greini­lega með mann­legri hegðun og byggi fæðu­val sitt að minnsta kosti að ein­hverju leyti á því sem þeir læra.

Madel­eine Goumas, fugla­fræð­ingur við Exeter-háskóla, segir það ekki ný vís­indi að mávar fylgist með mann­fólki og leiti að fæðu í kringum ákveðnar athafnir okkar. Rannsókn Sussex-fólks­ins sýni hins vegar að þeir læra ekki aðeins hvar mat gæti verið að finna heldur velja mat eftir því hvað þeir sjá okkur láta ofan í okkur. „Þessi vit­neskja gæti hjálpað okkur að finna leiðir til að draga úr nei­kvæðum sam­skiptum manna og máva,“ segir hún, „því hún sýnir að við erum óvilj­andi að kenna mávum að nýta sér nýja fæðu“.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þeir halda kannski að þeir verði svona stórir einsog við ef þeir borða það sama
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár