Zelensky kemur ekki til Reykjavíkur

Forseti Úkraínu mun flytja ávarp leið­toga­funda­fundi Evr­ópu­ráðs­ins sem hefst í Reykja­vík í dag. Hann mun hins vegar gera það í gegnum fjar­fund­ar­búnað.

Zelensky kemur ekki til Reykjavíkur
Í Bret­landi Volody­myr Zelensky kom óvænt til Bret­lands í gær og fund­aði þar með Rishi Sunak, for­sæt­is­ráð­herra lands­ins. Mynd: AFP

Volody­myr Zelensky, for­seti Úkraínu, mun flytja ávarp á opn­un­ar­at­höfn leið­toga­fundar Evr­ópu­ráðs­ins í Reykja­vík sem hefst síðar í dag. Hann mun þó ekki gera það í eigin per­sónu heldur í gegnum fjar­fund­ar­búnað. 

Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu sem send var út í dag. Þar kemur fram að Denys Shmyhal, for­sæt­is­ráð­herra Úkraínu, muni leiða sendi­nefnd lands­ins á fund­inum. Auk hans mun Denys Maliuska dóms­mála­ráð­herra mæta á fund­inn. 

Zelensky hefur verið á ferð um Evrópu síð­ustu daga. Hann kom óvænt til Bret­lands í gær og fund­aði með þar­lendum ráða­mönnum. Miklar bolla­legg­ingar urðu í kjöl­farið um að Zelensky væri að feta sig til Íslands þar sem hann yrði við­staddur leið­toga­fund­inn. Samkvæmt til­kynn­ingu íslenska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins verður ekki af því. 

Búist er við um 40 leið­togum ríkja sem til­heyra Evr­ópu­ráð­inu á fund­inn. Hann hefst í dag og lýkur síð­degis á morgun, mið­viku­dag, með því að ein­hvers konar nið­ur­staða hans verður gerð opin­ber. Búist er við því að sú nið­ur­staða verði í formi sam­eig­in­legrar yfir­lýs­ingar sem tekur meðal ann­ars á því hvernig til standi að láta Rússa bæta það tjón sem þeir hafa valdið með stríðs­rekstri sínum í Úkraínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár