„Hvað er eiginlega í gangi hjá hæstvirtri ríkisstjórn?”

Þingmenn gagn­rýndu rík­is­stjórn fyrir að sinna ekki for­ystu hlut­verki sínu. Fátt var um ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma.

„Hvað er eiginlega í gangi hjá hæstvirtri ríkisstjórn?”
Kristrún Frosta­dóttir Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar lét óánægju sína í ljós og sagði lítið hafa gerst á meðan hún var í fæð­ing­ar­or­lofi. Mynd: Bára Huld Beck

„Af hverju eru engir hérna til að taka á þeim málum sem virki­lega brenna á? Eitt er að láta sig alþjóða­málin varða í vik­unni en ráð­herrar hljóta að átta sig á því að slíkt kemur ekki í stað­inn fyrir for­ystu hér í inn­an­lands­málum,“ sagði Kristrún Frosta­dóttir for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar á þingi í dag.

Kristrún sneri aftur á þing eftir fæð­ing­ar­or­lof og spurði for­seta Alþingis, Birgi Ármanns­son, hvað væri eig­in­lega í gangi hjá rík­is­stjórn­inni. Fáir ráð­herrar voru sjá­an­legir á þingi í dag og taldi Kristrún þá ekki sinna for­ystu hlut­verki sínu. Leið­toga­fundur Evr­ópu­ráðs­ins hefst í Hörpu á morgun og vera má að hann skýri fjar­veru ráð­herra en þing­menn voru ósátt með að þjóð­ar­mál væru látin sitja á hak­anum fyrir alþjóða­málin.

„Af hverju eru engir hérna til að taka á þeim málum sem virki­lega brenna á?“

„Ég ætl­aði að eiga hér í dag orða­stað við eitt­hvert af for­ystu­fólki rík­is­stjórnar, en ekk­ert þeirra ætlar að láta sjá sig hér á Alþingi í dag og sitja undir svörum, t.d. um verð­bólgu, vexti, verk­föll og hús­næð­is­mál, enda virð­ist þeim líða best á meðan póli­tíska umræðan hverf­ist um mál sem snú­ast ekki um veru­leika venju­legs fólks. Þótt þetta sé því efst í huga þessa dag­ana, efna­hags- og vel­ferð­ar­málin.“ Að lokum óskaði Kristrún eftir því að for­ystu­fólk rík­is­stjórn­ar­innar stæði undir svörum síðar í vik­unni.

Björn Leví Gunn­ars­sonÞIng­maður Pírata.

Björn Leví Gunn­ars­son vara­for­maður Pírata tók undir beiðni Kristrúnar og lét í ljós óánægðu sína með að 130-140 mál stjórn­ar­and­stöð­unnar væru föst í nefnd. „Það má kannski vekja athygli á því að stjórn­ar­and­staðan er búin að mæla fyrir 130–140 málum sem eru öll föst inni í nefnd, fullt af þeim málum eru einmitt nákvæm­lega á þessum nótum; að bæta kjör almenn­ings.“

Sigurjón Þórð­ar­son þing­maður Flokk fólks­ins sló á sama streng og kall­aði þing­haldið und­ar­legt. „Þeir eru of upp­teknir við það að vera hér ein­hverjir veislu­stjórar á meðan þjóðin bíður eftir fjöl­mörgum svörum,“ sagði þing­maður.

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Óskar Guðmundsson skrifaði
    Hvert er aftur skuldabréfaálagið hjá ríkinu vs borgar Samfylkingarinnar?
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár