Þingmenn mega keyra inn á lokað svæði en ekki fatlaðir

Lokanir í mið­borg­inni vegna leið­toga­fundar Evr­ópu­ráðs­ins stöðva ekki för þing­manna sem munu geta keyrt í vinn­una, í gegnum lok­un­ar­svæðið, og lagt í bíla­stæði við Alþingi. „Mér þætti auð­vitað eðli­legt að þing­menn, sem eru okkar kjörnu full­trúar, sætu við sama borð og aðrir,“ segir Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir, for­maður ÖBÍ.

Þingmenn mega keyra inn á lokað svæði en ekki fatlaðir
Þing­manna­leið Þingmenn geta nýtt bíla­stæði sín við Alþing­is­húsið þrátt fyrir víð­tækar lok­anir vegna leið­toga­fundar Evr­ópu­ráðs­ins. Lokað er fyrir aðra almenna bíla­um­ferð. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Víðtækar götu­lok­anir verða í mið­borg Reykja­víkur næstu tvo daga á meðan að á leið­toga­fundi Evr­ópu­ráðs­ins stendur, sem fer fram í Hörpu 16. og 17. maí. Þannig verður meðal ann­ars fatlað fólk að nýta akst­urs­þjón­ustu frá Ráð­hús­inu og verður þeim sem eiga bíla­stæði innan lok­aðs svæðis ekki heim­ilt að leggja þar á meðan á fund­inum stendur. Hins vegar verður ekki tekið fyrir ferðir Alþing­is­manna innan svæð­is­ins og geta þeir eftir sem áður lagt bílum sínum á bíla­stæði Alþingis eða í bíla­kjall­ara þings­ins, þrátt fyrir að það svæði sé kyrfi­lega innan hins lok­aða svæðis. Formaður Öryrkja­banda­lags­ins segir að sér þætti eðli­legra að þing­menn sætu við sama borð og aðrir sem verða fyrir áhrifum af lok­unum vegna leið­toga­fund­ar­ins.

Þingmenn fengu í síð­ustu viku sendan tölvu­póst þar sem til­greint var að lok­an­irnar sem um ræðir væru víð­tækar, og þar með talið í kringum Alþingi. Hins vegar verður þing­mönnum heim­ilt að keyra inn á svæðið, um Von­ar­stræti og þaðan inn á bíla­stæði Alþingis, og svo sömu leið til baka.

Þetta er þing­mönnum heim­ilt, þrátt fyrir að með þessu séu þeir að keyra inn á akst­ursleið fylgd­arakst­urs þeirra erlendu aðila sem komnir eru hingað til lands til þátt­töku á fund­inum. Ein slíkra leiða liggur um Templ­ara­sund en þangað þurfa þing­menn að beygja af Von­ar­stræti til að kom­ast að bíla­stæðum Alþing­is­húss­ins.

Til þess að þing­menn, þar með talið ráð­herrar, geti keyrt inn á svæðið þurfa þeir að fram­vísa merk­ingu við lok­un­ar­póst sem er á gatna­mótum Tjarn­ar­götu og Von­ar­strætis. Sú merk­ing, sé að marka tölvu­póst­inn sem barst þing­mönnum, er þó ekki mjög flókin heldur virð­ist aðeins vera um útprentað og plastað merki Alþingis að ræða, sem setja þarf í bif­reiðar þing­manna.

Ekki ofverk þingmanna að labba einhvern spöl

„Mér þætti auð­vitað eðli­legt að þing­menn, sem eru okkar kjörnu full­trúar, sætu við sama borð og aðrir. Þeir leggðu bara utan svæð­is­ins og þyrftu þá að labba ein­hvern spöl til að kom­ast til vinnu. Mér þætti það bara eðli­legt, án þess að ég sé með ein­hverja sér­stakar hug­myndir um það af hverju þessi und­an­þága var veitt, ég hef engar for­sendur til að meta það,“ segir Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir, for­maður Öryrkja­banda­lags Íslands, í sam­tali við Heim­ild­ina.

„Ég veit reyndar um fólk sem ætlar bara ekki að koma heim til sín“
Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir
for­maður ÖBÍ, um fatlað fólk sem býr innan lok­un­ar­svæð­is­ins.

Spurð hvort félags­menn í Öryrkja­banda­lag­inu hafi haft sam­band og lýst óánægju með fram­kvæmd lokan­anna segir Þuríður Harpa að það hafi verið furðu lítið. „Ég veit reyndar um fólk sem ætlar bara ekki að koma heim til sín, ætlar að koma sér fyrir ann­ars staðar, en það eru ekki allir sem hafa tæki­færi á því,“ segir Þuríður Harpa og telur að fólk muni nýta sér akst­urs­þjón­ustu frá Ráð­hús­inu.

„Síðan getur verið að þegar á hólm­inn er kom­inn þá vakni fólk upp við vondan draum og þá komi upp ein­hver vanda­mál. Ég vona bara að þetta gangi vel, fyrst þetta þarf að vera svona. Þetta er víst alls staðar í heim­inum svona, er mér sagt, að öllu sé lokað í kringum svona stóra fundi.“

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár