Hvenær á að kaupa körfustól?

Hann er loks­ins kom­inn aftur! Mættur í versl­anir! 20 pró­sent afsláttur. Nei, 25! Bíddu, bíddu – 38 pró­sent afsláttur! Nið­ur­sett verð!

Hvenær á að kaupa körfustól?
Fullt verð GJERN körfu­stóll­inn hefur verið ein vin­sælasta varan í Rúm­fatala­gernum síð­ustu miss­eri. Mynd: Rúmfatalagerinn

Það er allt að því full vinna að fylgj­ast með verði á garð­hús­gögnum þessa dag­ana. Fyrir utan hvað það eru margar versl­anir sem selja slíkan lúx­usvarn­ing þá virð­ist það regla fremur en und­an­tekn­ing að allra handa til­boðum er skellt á með stuttum fyr­ir­vara, oft í stuttan tíma í einu, svo áhuga­söm þurfa að vera stöðugt á tánum vilji þau ná að festa sér hús­gögnin á hag­stæðum kjörum. (Ef hægt er að tala um hag­stæð kjör þessa dag­ana yfir höfuð).

En tökum dæmi:

GJERN körfustól­inn sem seldur er í Rúm­fatala­gernum kom með hvelli inn á mark­að­inn sum­arið 2021. Eftir Covid-sum­arið á undan hugs­uðu sér eflaust margir gott til glóð­ar­innar og vildu breyta til á pall­inum eða svöl­unum. En stóll­inn vin­sæli kom aðeins í tak­mörk­uðu magni svo færri eign­uð­ust grip­inn en vildu.

Í sum­ar­bæk­lingi Rúm­fatala­gers­ins sem kom út síð­asta vor var stóll­inn „mættur“ aftur og kynntur til sög­unnar sem „lík­lega með heit­ustu vör­unum sum­arið 2021“. Verðið: 59.990 krónur. Facebook-síða Rúm­fatala­gers­ins log­aði og 756 komment voru rituð þar sem stóll­inn eft­ir­sótti var dásamaður.

Hinn 15. júní er stóll­inn kom­inn á „sum­ar­legt til­boð“ og verðið aug­lýst 49.990 krónur. Afslátt­ur­inn nam um 17 pró­sentum. 7. júlí hefst svo sum­ar­út­sala Rúm­fatala­gers­ins og körfu­stóll­inn aug­lýstur með 25 pró­sent afslætti, sem hefur þýtt að útsölu­verðið var 44.990 krónur.

En svo kemur vorið 2023. Og GJERN körfustól­inn „er mættur í versl­anir“ og verðið: 64.990, eða rúmum 8 pró­sentum hærra en fullt verð ári fyrr. Og verð­mun­ur­inn á útsölu­verð­inu í fyrra­sumar og fullu verði nú orð­inn 30 pró­sent, eða 20 þús­und krónur. Blessuð verð­bólgan hefur því náð að bíta í garð­hús­gögnin eins og flestan annan varn­ing.

En, fyrstu helg­ina í apríl er hann strax kom­inn á til­boð vegna end­ur­opn­unar einnar versl­unar Rúm­fatala­gers­ins og sér­staks helg­ar­til­boðs. Verðið: 39.990 krónur. 38 pró­sent afsláttur! En aðeins í þrjá daga.

GJERN körfu­stóll­inn er ekki á neinu til­boðs­verði í augna­blik­inu. En hver veit hvað ger­ist um helg­ina? Og miðað við sög­una er ekki ólík­legt að upp úr miðjum júní megi eiga von á „sum­ar­legum til­boðum“ og að sum­ar­út­salan sjálf hefj­ist svo þegar í byrjun júlí.

Þótt körfu­stóll­inn vin­sæli sé hér tek­inn sem dæmi þá er aug­ljóst að Rúm­fatalager­inn er ekki eina hús­gagna­versl­unin sem nær að halda fólki í leit að sum­ar­hús­gögnum við efnið með verð­breyt­ingum á nokk­urra vikna fresti á þessum árs­tíma. Ágætt er samt að muna að sum­arið kemur með eða án nýrra hús­gagna. Og að það er meira gef­andi að eyða tíma sínum í að njóta ilms af nýút­sprungnu birki eða hlusta á býflugna­suð í beði en að sitja límd við vef­versl­anir.  

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár