Dregur úr klámnotkun stráka

Færri strákar í grunn- og fram­hals­skólum horfa nú oft á klám en verið hefur síð­ustu ár. Þá fjölgar þeim einnig sem aldrei horfa á klám á sama tíma og stelpum sem aldrei horfa á klám fækkar.

Dregur úr klámnotkun stráka
Strákar horfa meira en stelpur Strákar horfa tölu­vert meira á klám heldur en stelpur og stálp, þó dregið hafi úr klám­notkun þeirra. Mynd: Shutterstock

Dregið hefur úr klá­m­á­horfi stráka í 10. bekk grunn­skóla og í fram­halds­skóla á síð­ustu árum. Þannig fækkar þeim veru­lega sem horfa á klám þrisvar sinnum eða oftar í viku og að sama skapi fjölgar þeim strákum sem horfa aldrei á klám. Aftur á móti fækkar í hópi stelpna sem aldrei horfa á klám, bæði í 10. bekk og í fram­halds­skóla. Sömu­leiðis fjölgar tölu­vert í hópi fram­halds­skóla­stelpna sem horfa á klám nokkrum sinnum á ári eða mán­uði og þeim stelpum sem horfa oftar á klám fjölgar einnig lít­il­lega.

Þetta er meðal þess sem má lesa út úr nýrri skýrslu emb­ættis land­læknis þar sem mat er lagt á áhrif af staf­rænu aðgengi barna og ung­menna að klámi á heilsu þeirra og líðan. Aðgengi að klám­efni hefur aldrei verið auð­veld­ara en nú er, með auknum og almennum net­að­gangi. Að sama skapi er það mun gróf­ara en var, að því er segir í skýrsl­unni. Þar kemur fram að að algeng þemu í klámi inni­haldi ofbeldi og nið­ur­læg­ingu, sifja­spell, kynja­mis­munun og kyn­þátta­for­dóma, stjórnun, kúgun, blekk­ingar og sam­þykk­is­leysi. Oft eru konur sýndar sem vilja­lítil við­föng karla.

Klámnotkun hefur skýr tengsl við áhættuþætti í hegðun

Rann­sóknir sýna tengsl klám­notk­unar við ýmsa áhættu­þætti í hegðun barna og ung­menna og áhrif á heilsu þeirra og líðan. Meðal þess má nefna tengsl við að byrja fyrr að stunda kyn­líf, áhættu­hegðun í kyn­lífi, brengluð við­horf í kyn­lífi, skekkta lík­ams­í­mynd, kvíða- og þung­lynd­is­ein­kenni, auk nei­kvæðra áhrifa á sjálfs­traust og sjálfs­virð­ingu stelpna. Þá segir í skýrsl­unni að rann­sókn frá Noregi sýni að flóknar og harka­legar teg­undir kyn­lífs séu normaliser­aðar meðal ungs fólks.

„Staðan á Íslandi er sú að margir nem­endur í 8.-10. bekk horfa lítið eða ekk­ert á klám en það er ákveðin normaliser­ing sem fær ung­linga, og full­orðna, til að halda annað“

„Staðan á Íslandi er sú að margir nem­endur í 8.-10. bekk horfa lítið eða ekk­ert á klám en það er ákveðin normaliser­ing sem fær ung­linga, og full­orðna, til að halda annað,“ segir í skýrsl­unni. Strákar horfa meira á klám en stelpur og klá­m­á­horf er meira meðal þeirra sem eldri eru. Skýr tengsl eru milli mik­ils klá­m­á­horfs íslenskra barna og ung­menna og fjöl­margra áhættu­þátta, til að mynda tengsla við for­eldra, að hafa orðið fyrir ofbeldi og kvíða- og þung­lynd­is­ein­kenna.

Svör stálpa mitt á milli svara stráka og stelpna

Skýrsla land­lækn­is­emb­ætt­is­ins er unnin upp úr gögnum úr rann­sókn­inni Ungt fólk sem lögð var fyrir í grunn­skólum vorið 2022 og í fram­halds­skólum haustið 2021. Úrvinnsla úr rann­sókn­inni er laut að grunn­skólum var þó einkum miðuð við nem­endur í 10. bekk.

Þegar horft er til barna á grunn­skóla­aldri kemur í ljós að tæpur helm­ingur stráka í 8.-10. bekk svar­aði því til að þeir horfðu aldrei á klám. Hlutfall stelpna var 78 pró­sent og hlut­fall kynsegin barna sem aldrei horfa á klám var 59 pró­sent. Fimmt­ungur stráka horfði hins vegar á klám þrisvar eða oftar í viku, borið saman við 3 pró­sent stúlkna og 9 pró­sent stálpa.

Sökum þess að minni álykt­anir er hægt að draga af gögnum yngri nem­enda voru svör barna í 10. bekk lögð til grund­vallar frek­ari úrvinnslu. Til­greint er að sökum þess hversu fámennur hópur stálpa er sé ekki hægt að gera sér­staka töl­fræði­lega úttekt á svörum þeirra en svörin virð­ist vera mitt á milli stráka og stelpna.

Tvöfalt fleiri strákar horfa aldrei á klám

Mun færri strákar í 10. bekk horfa nú á klám þrisvar sinnum í viku eða oftar en var árið 2018. Þá var hlut­fallið ríf­lega 40 pró­sent en árið 2022 var það tæp 30 pró­sent. Þá var hlut­fall þeirra stráka sem horfðu aldrei á klám um 15 pró­sent árið 2018 en hafði tvö­fald­ast í fyrra, og var um 30 pró­sent. Hvað varðar stelp­urnar var hlut­fall þeirra sem aldrei horfðu á klám tæp 80 pró­sent árið 2016 en fór lækk­andi til árs­ins 2021 þegar það var komið niður í 60 pró­sent. Hlutfall stelpna sem aldrei horfa á klám jókst hins vegar aftur milli ára og í fyrra svör­uðu um 70 pró­sent stelpn­anna því til að þær horfðu aldrei á klám.

Þá sýna nið­ur­stöður að strákar sem oft horfa á klám meta and­lega heilsu sína nokkru verri en ann­ars. Munurinn hjá stelpum er tölu­vert meiri. Börn sem horfa á klám fá of lít­inn næt­ur­svefn, stúlkur sem horfa á klám eru kvíðn­ari en ella og því kvíðn­ari eftir því sem þær horfa meira á klám, þær hafa fleiri ein­kenni þung­lyndis og eru síður ánægðar með líf sitt.

Klámáhorf eykst með aldri

Hvað varðar nem­endur í fram­halds­skólum kemur í ljós að aðeins tæpur fimmt­ungur stráka horfir aldrei á klám, borið sama við rúm­lega helm­ing stelpna og rúman fimmt­ung stálpa. Tæpur þriðj­ungur stráka horfir hins vegar á klám þrisvar sinnum eða oftar í viku, tæpur fjórð­ungur stálpa en aðeins 3 pró­sent stelpna.

Þegar þróun á klá­m­á­horfi fram­halds­skóla­nema er skoðuð milli áranna 2013 og 2021 kemur í ljós að strákum yngri en átján ára sem aldrei skoða klám hefur fjölgað lít­il­lega og eru nú 20 pró­sent, og á sama tíma hefur þeim sem skoða klám þrisvar sinnum eða oftar í viku hverri fækkað úr rúmum 40 pró­sentum niður í tæp 30 pró­sent. Þróunin er svipuð hjá strákum 18 ára og eldri, þar hefur þeim sem aldrei skoða klám fjölgað lít­il­lega, og eru nú um 18 pró­sent, og þeim sem horfa oft á klám hefur fækkað úr rúmum 50 pró­sentum niður í rúm 35 pró­sent.

Fleiri stelpur horfa nú á klám en 2013

Þegar klá­m­á­horf stelpna er skoðað sést að þeim stúlkum undir 18 ára sem aldrei horfa á klám hefur fækkað all nokkuð frá árinu 2013 til árs­ins 2021, úr rúmum 75 pró­sentum og niður í tæp 60 pró­sent. Þeim sem skoða klám nokkrum sinnum á ári eða í mán­uði fjölgar hins vegar skarpt, úr 20 pró­sentum og upp í tæp 40 pró­sent. Sama mynstur er hjá stelpum yfir 18 ára, þeim sem aldrei horfa á klám hefur fækkað úr tæpum 70 pró­sentum og niður í tæp 50 pró­sent, og þeim stúlkum sem horfa sjaldan á klám hefur fjölgað úr tæpum 30 pró­sentum upp í tæp 50 pró­sent.

Rétt eins og hjá nem­endum 10. bekkjar hefur klá­m­á­horf tengsl við nei­kvæða þætti í lífi fram­halds­skóla­nema, þannig meta bæði strákar og stelpur sem horfa mikið á klám and­lega heilsu sína verri en jafn­aldrar sínir, þau sofa minna og eru kvíðn­ari.

Í skýrsl­unni eru lagðar fram til­lögur í fimm liðum að aðgerðum til að stuðla að kyn­heil­brigði ungs fólks. Lagt er til að kennsla fyrir nem­endur á öllum skóla­stigum verði mark­viss og inni­haldi kynja­fræði, kyn- og kyn­lífs­fræðslu, heilsu­læsi og miðla­læsi. Auka þurfi grunn­fræðslu og end­ur­menntun kenn­ara og ann­ars fag­fólks sem starfi með börnum í mála­flokknum auk þess sem sér­hæf­ingar sé þörf. Sér­stak­lega þurfi að horfa til barna með rask­anir, hinsegin barna og jað­ar­settra hópa þegar kemur að fræðslu og náms­efni. Leið­beina þarf for­eldrum varð­andi umræðu um klám og ald­urstengja þarf aðgangs­stýr­ingu að klám­efni á net­inu.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár