„Er hæstvirtur forsætisráðherra algerlega veruleikafirrt?”

Inga Sæland spurði Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra út í efna­hags­á­standið á Íslandi á þingi í dag. Katrín sagði hag­stjórn snú­ast um að gera áætl­anir og standa við þær.

„Er hæstvirtur forsætisráðherra algerlega veruleikafirrt?”
Inga Sæland Formaður Flokks fólks­ins hefur miklar áhyggjur af ástand­inu og bar það saman við þá stöðu sem var uppi eftir banka­hrunið. Mynd: Bára Huld Beck

Inga Sæland for­maður Flokks fólks­ins gagn­rýndi for­sæt­is­ráð­herra Katrínu Jak­obs­dóttur harð­lega fyrir stöðu verð­bólgu í land­inu á þingi í dag. Inga tók tvisvar til máls. Í fyrra skiptið spurði hún for­sæt­is­ráð­herra: „Er eitt­hvað í kort­unum hæstv. for­sæt­is­ráð­herra sem við megum eiga von á að sé og verði til þess að við séum ekki að fara að byggja upp annað eins mót­mæla ástand eins og við þurftum að horfast í augu við á síð­asta í síð­asta efna­hags­hruni?“

Næst­kom­andi laug­ar­dag verður efnt til mót­mæla á Aust­ur­velli klukkan 14:00 og vísar Inga í for­mann VR Ragnar Þór Ing­ólfs­son sem hvetur fólk til að rísa upp gegn núver­andi efna­hags­á­standi. Inga sagði þessa rík­is­stjórn ekki hafa gert neitt til að aðstoða fólkið í land­inu. 

Í svari sínu til Ingu sagði Katrín að ekki væri hægt að bera saman núver­andi stöðu og þá sem var uppi eftir efna­hags­hrun 2008. „Þá held ég að við verðum að halda okkur við stað­reyndir máls. Skuldir heim­il­anna nú eru lágar í sögu­legu sam­hengi og mun lægri en á árunum eftir hrun og í nýjasta fjár­mála­stöð­ug­leika, riti Seðla­bank­ans, kemur fram það mat að borið saman við þá fyrri stöðu hvað varðar skuldir heim­ila, atvinnu­á­stand og verð­bólgu þá erum við í fullum færum til að ráða vel við þessa stöðu og það hefur gert og það hefði gert sér­stak­lega með því að ein­blína aðgerðum okkar að þeim sem hópum sem verst standa og eru við­kvæm­astir fyrir verð­bólg­unni.“

Þá fauk í Ingu sem þakk­aði for­sæt­is­ráð­herra fyrir „ekk­ert svar,“ og sagði: „Hún er greini­lega enn með höf­uðið á kafi í sand­inum enn og enn þá í sand­inum og augun full af sandi þegar verið að tala um stöðu heim­il­anna, hvað þau séu frá­bær akkúrat núna er þá hæstv. ráð­herra gerir sér grein fyrir því að það verið að brenna upp sparifé lands­manna.“

Hagstjórn snýst um að standa við áætlanir

Inga kall­aði for­sæt­is­ráð­herra síðan veru­leikafirrta. „Lands­menn eru að brenna upp sér­eign­ar­líf­eyr­is­sparn­að­inum sínu hér og nú til þess að reyna að greiða inn á hús­næð­is­lánin er hæstv. for­sæt­is­ráð­herra alger­lega veru­leikafirrt hvað lýtur að því hver raun­veru­leg staða er að teikn­ast upp á hús­næð­is­mark­aði með skuldug heim­ili og það sem hæstv. ráð­herrar ítrekað að tala um skatta­lækk­anir og allt þetta frá­bæra sem er verið að gera fyrir fólkið hér.“ 

For­sæt­is­ráð­herra Katrín Jak­obs­dóttir sagði hag­stjórn snú­ast um áætl­un­ar­gerð til lengri tíma.

Katrín minnti þá Ingu á að lögð hefði verið fram fjár­mála­á­ætlun sem boð­aði aðhald í rík­is­rekstri og aukna tekju­öflun. „Er ekki verið að boða hækkun veiði­gjalda, hækkun fisk­eld­isker, að hækkun skatta á lög­að­ila að hjá því að fjár­mála­á­ætl­unin snýst um það hvernig við ætl­uðum að haga okkar áætl­ana­gerð til lengri tíma? Það er það sem hag­stjórn snýst um. Hún snýst ekki um að bregð­ast við frá degi til dags eins og ein­hverjir hv. þing­menn kynni að halda heldur snýst um það að gera áætl­anir og reyna að standa við þær áætl­anir.“

Þegar Katrín var gengin úr pontu heyrð­ist Inga segja: „Þið eruð með allt niðri um ykkur.“ 

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    "Það er það sem hagstjórn snýst um. Hún snýst ekki um að bregðast við frá degi til dags eins og einhverjir hv. þingmenn kynni að halda heldur snýst um það að gera áætlanir og reyna að standa við þær áætlanir.“

    Dæmigert blaður manneskju sem er óskilvirk og fúskari.

    Blessuð konan er excelisti. "The computer "excel" says no."

    Þú bregst við dag frá degi og hagar seglum eftir vindi til að standa við áætlanirnar .... það er kallað stjórnun... annars hefðu víkingar og papar aldrei numið Ísland.

    Kata er að tala um óskhyggju sem byggist á að reyna að standa ( á óútskýrðann hátt ) við óraunhæfar áætlanir bara af því að það eru áætlanir ... sem því miður eru byggðar á óljósri óskhyggju líkt og vaxtahækkanir Seðló.

    Áhugavert að sjá að enginnn svona excelfúskari fer í smáatriðin eins hvernig á að bregðast skilvirkt við þegar áætlanir standast ekki og 9 vaxtahækkunin er ekki að skila neinum árangri.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár