Andúð pólitíkusa í garð flóttafólks geti leitt til ofbeldisverka

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að hópar karl­manna „dökkir á brá og brún“ hræði fólk þegar þeir gangi um götur í Reykja­nesbæ. Þessi orð hans og fleiri um flótta­fólk og umsækj­endur um vernd byggja sam­kvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar og svörum Ásmundar sjálfs, á sögu­sögnum. Stjórn­mála­fræð­ingur segir að í verstu til­fellum geti slíkur mál­flutn­ingur stjórn­mála­fólks leitt til ofbeld­is­verka.

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins full­yrti í ræðu­stóli Alþingis í lok mars að umhverfið á Suð­ur­nesjum væri ógn­væn­legt, óbæri­legt vegna fjölda hæl­is­leit­enda, hræðslu og ógn­andi umhverfis, einnig að „heima­menn“  væru á göt­unni vegna fjölda hæl­is­leit­enda og að lög­reglan hefði misst tökin á landa­mær­unum. Heim­ildin kann­aði stað­hæf­ingar þing­manns­ins og komst að því að þær stand­ast ekki skoðun og eru byggðar á sögu­sögnum eða eins og hann segir sjálfur í sam­tali við Heim­ild­ina spurður um full­yrð­ingar um að  „heima­fólk“ sé komið á göt­una vegna hæl­is­leit­enda:  „Ég [er] að berg­mála það sem mér er sagt og ég geri ráð fyrir að flestir segi sann­leik­ann.“ Hann gat þó ekki nefnt nein dæmi þess að fólk væri komið á göt­una. 

Rætt um flóttafólk í bæjarstjórn Reykjanesbæjar

Rétt um viku áður en Ásmundur full­yrti að ástandið á Suð­ur­nesjum væri ógn­væn­legt og óbæri­legt vegna fjölda flótta­fólks og umsækj­enda um alþjóð­lega …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hafrún Harðardóttir skrifaði
    'eg er hræddari við meðlimi siðblindasjálfgræðgis og stórglæpamannaflokks karlsins, en nokkuð annað.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu