Icelandair tapaði sjö milljörðum og PLAY 2,3 milljörðum á þremur mánuðum

Íslensku flug­fé­lögin skil­uðu bæði tapi á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins 2023. Sá árs­fjórð­ungur er að venju krefj­andi í rekstri þeirra.

Icelandair tapaði sjö milljörðum og PLAY 2,3 milljörðum á þremur mánuðum

Icelandair Group tap­aði sjö millj­örðum króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2023. Það er nán­ast sama tap og varð á fyrsta árs­fjórð­ungi síð­asta árs þegar flug­fé­lagið tap­aði 7,1 millj­arði króna. Farþegar sem flugu með Icelandair voru hins vegar 57 pró­sent fleiri á fyrsta árs­fjórð­ungi í ár en þeir voru á sama tíma í fyrra. Rekstr­ar­tekjur juk­ust um 47 pró­sent milli ára og voru 33,3 millj­arðar króna. Félagið átti laust fé upp á 63 millj­arða króna í lok mars síð­ast­lið­ins. 

Þetta kemur fram í upp­gjöri Icelandair Gropu fyrir fyrstu þrjá mán­uði árs­ins sem birt var í dag.

Upp­safnað tap Icelandair frá upp­hafi árs 2018 er því komið í 87 millj­arða króna, en vert er að taka fram að fyrsti árs­fjórð­ungur nær yfir mán­uði sem telj­ast utan háanna­tíma á Íslandi.

Í til­kynn­ingu frá Icelandair er haft eftir Boga Nils Bogasyni, for­stjóra félags­ins, að elds­neyt­is­verð, veð­ur­tengdar flugrask­anir og verð­bólga hafi haft meiri áhrif á afkomu félags­ins í fjórð­ungnum en búist var við. „Til við­bótar var afkoman af frakt­starf­semi okkar undir vænt­ingum vegna krefj­andi mark­aðs­að­stæðna og tafa í frakt­flug­á­ætlun. Horfur í frakt­flutn­ingum verða áfram krefj­andi og munum við á næst­unni leggja alla áherslu á að bæta afkom­una. Leiguflug­starf­semi félags­ins gekk vel í fjórð­ungnum og útlit er fyrir áfram­hald­andi góða afkomu á árinu.“

Bókarnir á næstu sex mán­uðum séu um 40 pró­sent fleiri en í fyrra og að framundan sé stærsta flug­á­ætlun í sögu félags­ins, þar sem áfanga­stað­irnir verði 54 tals­ins. 

Hitt íslenska flug­fé­lagið, PLAY, birti líka árs­hluta­upp­gjör sitt í dag. Tap þess á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins var 2,3 millj­arðar króna, sem er meira tap en var hjá félag­inu á sama tíma í fyrra. Þetta tap bæt­ist við næstum tíu millj­arða króna sam­an­lagt tap á árunum 2021 og 2022. 

Í til­kynn­ingu er haft eftir Birgi Jónssyni, for­stjóra PLAY, að árang­ur­inn á árs­hlut­anum hafi verið í fullu sam­ræmi við vænt­ingar. „Við sjáum mjög jákvæð teikn á lofti og bók­un­ar­staðan er mjög góð. Kostn­aður er í góðum skorðum og veiga­miklir ytri þættir hafa verið að þró­ast í rétta átt, svo sem olíu­verð. Til vitnis um þessa þróun er sú ánægju­lega stað­reynd að við státum nú af auk­inni lausa­fjár­stöðu eftir fyrsta árs­fjórð­ung, sem er umtals­vert afrek fyrir ungt flug­fé­lag í vaxt­arfasa.“ 

For­stjór­innBirgir Jónsson stýrir PLAY.

Handbært fé PLAY í lok mars var um 5,1 millj­arðar króna sem er um 1,1 millj­arði króna meira en félagið átti í hand­bært fé um síð­ustu ára­mót. 

PLAY mun fljúga til 37 áfanga­staða á árinu og þar af eru þrettán nýir.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár