Fylgdarlausum börnum verður borgað 405 þúsund krónur til að fara annað

Samkvæmt nýrri reglu­gerð getur flótta­fólk, meðal ann­ars fylgd­ar­laus börn, nú fengið 75 til 150 þús­und króna við­bót­ar­styrk fari þau af landi brott áður en frestur til heim­farar er lið­inn. Auk þess býðst þeim áfram að fá ferða­styrk og end­urað­lög­un­ar­styrk fyrir að fara annað ásamt því sem íslenska ríkið greiðir fyrir þau flug­mið­ann. Til­gangur styrkj­anna er að spara rík­inu kostnað vegna brott­vís­ana.

Fylgdarlausum börnum verður borgað 405 þúsund krónur til að fara annað
Ráðherra Jón Gunn­ars­son er dóms­mála­ráð­herra og leggur fram drögin að reglu­gerð­inni. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra hefur kynnt drög að reglu­gerð í sam­ráðs­gátt stjórn­valda sem felur í sér að flótta­fólki er greitt reiðufé ef það fer sjálf­vilj­ugt úr landi eftir að hafa fengið synjun á umsókn um alþjóð­lega vernd. 

Á meðal þess sem fram kemur í drög­unum er að fylgd­ar­laus börn geti fengið allt að 2.700 evrur, um 405 þús­und krónur á núvirði, til að fara aftur til heima­ríkis síns til við­bótar við það að íslenska ríkið greiðir fyrir það flug­far­gjöld til heima- eða við­töku­ríkis.

Styrk­ur­inn skipt­ist í ferða­styrk upp á 200 evrur, um 30 þús­und krónur, og svo­kall­aðan end­urað­lög­un­ar­styrk upp á 2.000 evrur, um 300 þús­und krónur. Ef fylgd­ar­laust barn sækir um styrk áður en frestur til heim­farar er lið­inn þá er í boði við­bót­ar­styrkur upp á 500 evrur, um 75 þús­und krónur. 

Ferða­styrk­ur­inn er reiðufé sem við­kom­andi fylgd­ar­laust barn fær til að kaupa nauð­synjar meðan á ferða­lagi þess …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár