Íbúar um flóttafólk: „Mikið af þessu á flakki á nóttunni“

Blaða­maður og ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar heim­sóttu Reykja­nesbæ og tóku nokkra íbúa tali um þann orðróm sem gengið hefur um bæinn, að ógn stafi af flótta­fólki og umsækj­endum um alþjóð­lega vernd.

Það er bjart yfir öllu og hafið stillt þegar blaða­maður og ljós­mynd­ari keyra eftir Reykja­nes­braut­inni á leið í Reykja­nesbæ. Til­gangur ferð­ar­innar er að tala við bæj­ar­búa um fjölgun flótta­fólks og umsækj­enda um alþjóð­lega vernd í sveit­ar­fé­lag­inu, um þá orðróma sem virð­ast hafa verið á kreiki um að það standi ógn af því fólki sem leitar skjóls þar. Þeir eru nokkrir orðróm­arnir sem ganga um manna á milli til dæmis um „hæl­is­leit­anda sem safnar geyma­sýru úr bílum“ en hann hafði reyndar löngu verið afsann­aður. 

Hann birt­ist fyrst sem frétt á for­síðu Morg­un­blaðs­ins sum­arið 2019. Fyr­ir­sögnin var:  „Hæl­is­leit­andi safn­aði geyma­sýru á Ásbrú“ og fréttin ekki nema rétt tæp 80 orð. Blaðið sagð­ist hafa það eftir áreið­an­legum heim­ildum að örygg­is­vörður hefði komið að hæl­is­leit­anda við þessa iðju og að lög­regl­unni hafi í kjöl­farið verið gert við­vart. Aldrei kom fram í hvaða til­gangi við­kom­andi hygð­ist nota sýruna. 

Fréttin var sú mest lesna á vef mbl.is dag­inn sem hún birt­ist og var síðar tekin upp af öðrum stórum miðlum. Tólf tímum eftir birt­ingu upp­haf­legu frétt­ar­innar fylgdi önnur á mbl.is þar sem yfir­lög­reglu­þjónn á Suð­ur­nesjum sagði lög­regl­una aldrei hafa verið kall­aða út vegna þessa og ólík­legt væri að umsækj­and­inn um alþjóð­lega vernd hafi ætlað að nota sýruna í ann­ar­legum til­gangi. Síðar kom í ljós að við­kom­andi hafði ætlað að nýta sýruna til að losa stíflu í vaski á heim­ili sínu.

En fræ­inu hafði verið sáð og það á for­síðu dag­blaðs. Eyða fyrir hvern sem vildi að fylla í, til hvers hæl­is­leit­and­inn ætl­aði sýruna. Á Facebook síðu mbl.is, þar sem frétt­inni var deilt, gerði fólk til­raunir til að fylla í þá eyðu.  

„Þeir nota það til að kasta í and­lit fólks,“ skrif­aði einn en flest ummælin undir frétt­inni voru á þessa leið, að flótta­fólk væri hættu­legt og að „alvöru“ Íslend­ingum stæði ógn af þeim.

Kjarninn fjall­aði um málið á sínum tíma, ummælin og sam­hengið og svo það að þing­maður hefði tekið þátt í umræð­unni. Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, deildi upp­runa­legu frétt Morg­un­blaðs­ins á Facebook vegg sinn og efað­ist um að geyma­sýran hafi átt að vera notuð í „fal­legum og góðum ásetn­ingi“. Þegar hann rit­aði þetta og deildi víðar hafði lög­reglan þegar afsannað mál­flutn­ing­inn. 

Fitjar

Þegar blaða­maður og ljós­mynd­ari komu sér á tal við íbúa Reykja­nes­bæjar nær fjórum árum síðar, fyrir utan versl­un­ar­kjarn­ann í Fitjum, berg­mál­aði orðróm­ur­inn: „Það var nú í fréttum fyrir nokkru að náungi var hérna að safna geyma­sýru úr bílum. Það er nátt­úru­lega bara notað í einum til­gangi, að skvetta framan í ein­hvern,“ sagði Atli Már Jóhanns­son. Þá tal­aði hann um að hafa heyrt af því að „krakkar og fólk hefur verið áreitt inn í stræt­is­vögnum, hérna í búð­unum, inn á Kross­móum og víðar“. Aðspurður að því hvaðan hann heyrði þessar stað­hæf­ingar svar­aði hann af Facebook síðum og frá fólki „sem maður þekkir“. 

Orðrómur enn á lífiAtli Már Jóhanns­son seg­ist hafa heyrt af hæl­is­leit­anda sem vildi gera öðrum mein með sýru. Sá orðrómur hefur hins vegar löngu verið afsann­aður.

„Það er bara orðið allt of mikið af þessu fólki hérna. Það verður bara að segj­ast eins og er,“ sagði hann. Það þyrfti ekki annað en að fara niður í Krossmóa og „sjá hvernig ástandið er þar,“ segir Atli og bætir við: 

„Þetta fólk hangir bara á göng­unum og er hérna út um allt.“

Orðfæri hans, um „Þetta fólk“ kom oft upp á tali okkar við íbúa þennan dag. 

„Þetta lið“ var orða­lag sem Agnar Már bif­véla­virki not­aði þegar blaða­maður náði tali af honum og spurði hvort hann fyndi fyrir fjölg­un­inni. „Já, ég bý út í Garði og þetta lið býr beint á bak við mig.“ Börn í Garði „þora ekki í strætó lengur“ fyrir áreiti frá full­orðnu fólki og ráð­ist hefði verið á „unga stelpu í búð­inni“. „Við erum ekki hrifin af því,“ sagði hann og átti hann við íbúa í Garði, aðra en flótta­menn og umsækj­endur.  

Er þetta eitt­hvað sem þú hefur séð sjálfur?

„Bæði séð og heyrt. Ég veit um börn sem hafa lent í því,“ svar­aði Agnar. Aðspurður um hvort hann sæi lausn í sjón­máli sagði hann hana fel­ast í fræðslu, sam­tali og því að „planta ekki fólk­inu niður hvar sem er“. 

„Þetta lið“Agnar Már seg­ist bæði hafa séð sjálfur og heyrt af flótta­mönnum vera áreita börn þar sem hann býr í Garði. Lög­reglan vill ekki stað­festa sann­leiks­gildi þeirrar stað­hæf­ingar.

„Reka hafnarboltakylfu í hnakkann á þeim“

Fréttir um áreitt börn höfðu áður birst á miðlum á borð við Vík­ur­fréttir og Suðurnes.net. Í byrjun árs 2017 er frétt birt á Vík­ur­fréttum sem fjallar um að „sam­fé­lags­miðlar í Reykja­nesbæ loga“ vegna flótta­manna sem höfðu áreitt börn í strætó og gert „aðsúg að lög­reglu“. Fréttin er unnin upp úr færslu sem birt­ist á lok­aðri íbúa­síðu bæj­ar­fé­lags­ins. Börnin áttu að hafa hringt á neyð­ar­lín­una og óskað eftir aðstoð lög­reglu eftir að „erlendir karl­menn voru að áreita börn“. 

„Eru þeir sagðir hafa bæði kysst og þuklað á börnum í stræt­is­vagn­inum,“ segir í frétt­inni. Bíl­stjóri stræt­is­vagns­ins er sagður viss um að þetta væru hæl­is­leit­endur frá Albaníu. Í ummælum við færsl­una, sem fréttin var unn­inn upp úr, án ann­ars sam­hengis, var stað­hæft að „umræddum mönnum“ hafi verið vísað úr landi.

Foreldri skrifar að menn­irnir væru „alræmdir“ og að fleiri for­eldrar hafi kvartað undan því að börnin þeirra hafi „lent í þessum mönnum“ inn í versl­unum. „Þetta eru albanskir stakir karl­menn-glæpa­menn,“ skrifar for­eldrið og bætir við: „Við eigum ekki að gefa afslætti og vísa fólki burt hið snarasta sem ekk­ert erindi hefur hérna.“

„Það er bara orðið allt of mikið af þessu fólki hérna. Það verður bara að segj­ast eins og er“
Atli Már Jóhann­es­son

Síðar skrifar sama for­eldri önnur ummæli þar sem það segir menn­ina hafa beitt börn „kyn­ferð­is­legu ofbeldi“, lög­reglan sé það fámenn og hafi það lítil úrræði að lítið sé hægt að aðhaf­ast. Þegar lög­reglan átti að hafa reynt að yfir­heyra þá hafi mætt henni 20 til 30 manns „með aðsúg“. Kona ein lagði það til að „ein­hverjir góð­borg­arar“ tækju „málin í sínar hendur“ fyrst „löggan er svona fáliðuð.“

Einn íbúi sem svar­aði á þræð­inum gekk meira að segja svo langt að hóta því að „reka hafn­ar­bolta­kylfu í hnakk­ann á þeim,“ yrði hann vitni að áreit­inu. Annar íbúi tekur undir með honum og tjáir honum svo að hann taki með sér bor­vél.

Þá er talað um að fara út að leita að þeim og á öðrum stað spurt um heim­il­is­fang.  Einn segir: „Hýða þetta pakk að íslenskum sið.“ Mbl.is ásamt öðrum miðlum fjall­aði um málið og vís­aði í upp­runa­legu frétt Vík­ur­frétta. Daginn eftir birt­ist hins vegar frétt á mbl.is um að lög­reglan hafði haft upp á þeim grun­aða, „sem reynd­ist vera 14 ára gam­all jafn­aldri stúlkunnar“. 

„Dreng­irn­ir eru börn og ósak­hæf­ir vegna ald­urs og verður því ekki aðhafst frek­ar í mál­um þeirra af hálfu lög­reglu. Þeir voru hæl­is­leit­end­ur hér á landi en munu hafa farið af landi brott í nótt,“ segir í frétt­inni.

Á þræð­inum sem um ræðir segj­ast íbúar hafa fengið upp­lýs­ingar úr ýmsum áttum og nefna í því sam­hengi lög­regl­una. „Reykja­nes­bær þarf að end­ur­skoða þetta með hæl­is­leit­endur- margir til vand­ræða, hef heyrt það frá mörgum þar á meðal lög­reglu­mönnum.“

„Hýða þetta pakk að íslenskum sið.“
Ummæli á Facebook

Heim­ildin leit­aði til lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum til fá upp­lýs­ingar um sann­leiks­gildi þess­ara stað­hæf­inga og ann­arra sem birt­ast í máli íbúa Reykja­nes­bæjar en lög­reglan, hvorki lög­reglu­stjór­inn né yfir­lög­reglu­þjónn vildu veita í við­tal. Í tölvu­pósti frá Úlfari Lúð­víks­syni lög­reglu­stjóra segir :„Þessum spurn­ingum verður ekki svarað.“ Aðspurður um það hvers vegna ekki svarar hann: 

„Bið þig að sýna því skiln­ing en slíkum spurn­ingum verður ekki svarað af hálfu emb­ætt­is­ins.   Það er ekki hlut­verk lög­reglu að svara flökku­sögum eða taka þátt í spurn­inga­leikjum eins og hér háttar til. Bið þig vin­sam­lega um að svara ekki þessum tölvu­pósti.“

Vantar betri úrlausn á vanda sínum

Krist­bergur Jónsson, öryrki, hafði heyrt orðróma um „inn­brot og annað“ en benti hins vegar á að honum þætti flótta­mönnum vanta „betri úrlausn“ á vanda sínum, það fengi ekki mikla aðstoð, sem hann þekkti sjálfur vel og bætti svo við:  „Það er bara eng­inn ógn af þessu fólki.“Samkvæmt tölum frá lög­regl­unni voru færri hegn­ing­ar­laga­brot á Suð­ur­nesjum per íbúa heldur en árið 2014, þar með talið inn­brot sem voru mun færri eða 27 árið 2014 og 14 í fyrra. 

Fá ekki aðstoðKrist­bergur Jónsson segir flótta­menn og hæl­is­leit­endur ekki fá næga aðstoð frá yfir­völdum sem hann þekkir sjálfur af eigin raun.

Laeila Jensen Frið­riks­dóttir, einnig öryrki, var á svip­uðu máli. „Ég finn bara rosa­lega til með þessu fólki að þurfa að hír­ast í litlum, leið­in­legum og lélegum hús­næðum og hafa ekk­ert að gera allan lið­langan dag­inn.“ Að hennar mati ætti rík­is­stjórnin að leysa þennan vanda.  

Rík­is­stjórnin ætti að leysa þettaLaeila Jensen Frið­riks­dóttir segir rík­is­stjórn­ina bera ábyrgð á þeim flótta­mönnum og hæl­is­leit­endum sem koma til lands­ins og það sé því hennar að leysa vanda þeirra.

Inn í versl­un­ar­kjarn­anum sátu fjórir grunn­skóla­nemar á bekk sem engan vanda sáu.

 „Þetta er bara venju­legt fólk,“ segir einn þeirra sem bætir síðar við að í skól­anum þeirra séu um það bil einn til tveir krakkar af erlendum upp­runa sem bæt­ast í hóp­inn á ári hverju. Aðspurð hvort þau hafa upp­lifað ein­hver vand­ræði af því segja þau öll í kór: „nei“ og ein þeirra bætir við: „Það er bara tekið rosa­lega vel á móti þeim. Þau eru rosa­lega vel­komin.“  

Rosalega vel­kominFjór­menn­ing­arnir á mynd­inni segja enga nei­kvæða reynslu hafa af fjölgun flótta­manna og hæl­is­leit­enda í bænum.

Miðbærinn

Þegar gengið er um miðbæ Reykja­nes­bæjar má sjá fjölda veit­inga­staða frá öllum heims­hornum, sumir senni­lega reknir af inn­flytj­endum og slag­orð sveit­ar­fé­lags­ins: Í krafti fjöl­breyti­leik­ans, virð­ist eigi vel við. Fyrsti við­mæl­andi sem við rek­umst á Hafn­ar­götu heitir Jón Þór Ísberg og er húð­flúr­meist­ari.

Verkefni frekar en vanda­málJón Þór Ísberg lítur á aðlögun flótta­manna og hæl­is­leit­enda í sam­fé­lag­inu sem verk­efni frekar en vanda­mál.

Hann kallar mót­töku flótta­manna verk­efni frekar en vanda­mál. „Af þeirri ein­földu ástæðu að þetta fólk er að koma úr alls­konar aðstæðum og þá þarf að halda áfram að hafa umgjörð og tæki og tól fyrir þetta fólk að koma inn í þetta þjóð­fé­lag,“ og bætir við: 

„Það liggur ekki meiri ógn af þeim en af öðrum sam­löndum mínum,“ Hann hlusti ekki á orðróma á sam­fé­lags­miðlum og kallar þá „hræðslu­á­róður“. Tveir ein­stak­lingar í mið­bænum kusu að koma ekki fram undir nafni og mynd af ótta við að vera kall­aðir ras­istar og missa jafn­vel við­skipti út á það. Annar þeirra heyrði að „ þeir séu að brjóta alls­konar af sér og stela og nauðga og eitt­hvað,“ en ekk­ert um „þetta lið“ rati í blöðin. Aðspurður um það hvort hann hafi lent í ein­hverju nei­kvæðu sjálfur sagði hann nei. „Ég þekki alveg fólk sem hefur lent í þessu. Bara nauðgað, alveg nokkrir í hóp,“ og bætir við: 

„Það er bara alltof mikið af þessu fólki hérna. Við erum bara löngu búin að missa tökin á þessu. Meira að segja lög­reglan segir það. Ekki opin­ber­lega samt.“ Mikið af „þessu“ segir hann á „flakki á nótt­unni“ og sagð­ist svo hafa heyrt að 61 mál á dag kæmi inn á borð lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum vegna flótta­manna.

„Fólk hérna er mjög næs við flótta­menn. Við upp­lifum þennan bæ sem heim­ili“
Abdul Rahman

Eins og áður kom fram vildi lög­reglan ekki stað­festa mála­fjöld­ann á borði sínu  eða aðrar stað­hæf­ingar íbúa. Hinn aðil­inn seg­ist vita af versl­un­ar­eig­endum sem fjölg­uðu starfs­fólki vegna þjófn­aðar af hálfu flótta­manna. Þá seg­ist hann þekkja til konu sem færi ekki í göngutúr án hunds­ins síns af ótta við að lenda í árás. Heilu blokk­irnar væru teknar undir flótta­fólk og af bæj­ar­búum og skól­arnir réðu ekki við ástandið. 

„Blokk­irnar“ sem um ræðir eru leigu­í­búðir í Reykja­nesbæ sem stjórn­völd tóku á leigu undir búsetu­úr­ræði fyrir umsækj­endur um alþjóð­lega vernd. Margrét Þór­ar­ins­dóttir, bæj­ar­full­trúi Umbótar í bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar, gerði þetta að umtals­efni á bæj­ar­stjórn­ar­fundi í apríl:

„Við höfum séð að ráðu­neytið hefur verið að taka blokk eftir blokk til leigu til að leigja undir hæl­is­leit­endur og þeir sem eru að missa leigu­samn­inga sína á þessu ári fá ekki end­ur­nýjun á samn­ingi og eru sendir á göt­una.“ Aftur mynd­uð­ust umræður um málið á íbúa­síðu bæj­ar­ins. „Fátækt fólk nær ekki endum saman, það á ekki pen­inga fyrir mat því launin duga ekki og það er í hrönnum að missa leigu­hús­næði sín og þar er EKKERT RÍKISVALD sem grípur fólkið eins og gert er við svo­kall­aða "efna­hags­flótta­menn og hæl­is­leit­endur."

Vinnu­mála­stofnun sendi í kjöl­farið frá sér yfir­lýs­ingu þar sem kemur fram að öllum fyrri leigj­endum hafi verið boðið annað hús­næði í eigu hús­eig­anda á sama verði. 

Draumaland

Í blóma­búð­inni Drauma­landi við Tjarn­ar­götu starfar Nanna sem segir „ kurr í fólki,“ sem hafi áhyggjur af fjölgun flótta­fólks. „Þetta kostar fullt af pen­ingum sem við gætum ráð­stafað á annan hátt. Samt er ég ekki á móti flótta­fólki en þetta er bara of mikið.“ Sjálf hafði hún enga nei­kvæða reynslu af flótta­fólki eða hæl­is­leit­endum. 

Kurr í fólkiNanna í blóma­búð­inni Drauma­landi segir fólk hafa áhyggjur af fjölg­un­inni, hún kosti sitt og hægt væri að ráð­stafa pen­ingum annað.

Við sömu götu, beint á móti ráð­hús­inu, stendur Pylsu­vagn­inn. Á bekk einum situr maður með der­húfu og sól­gler­augu sem segir blaða­manni frá bænum og bæj­ar­líf­inu, að bær­inn sé „sof­andi“ og vanti upp á skemmt­ana­líf. Það sé orðið þannig að erlendar mafíur ráði yfir sumum skemmti­stöðum og taki jafn­vel frá sæti þar og leyfi „íslend­ingum“ ekki að setj­ast.

Í jepp­ling við hlið vagns­ins sat Ingvar Ingvason, elli­líf­eyr­is­þegi sem sagði meiri pen­inga fara í „ flótta­menn heldur en í elli­líf­eyr­inn minn,“ þess vegna þyrfti að fækka þeim. Hann taldi nú enga ógn af þeim og átti sömu­leiðis enga slæma reynslu af þeim. 

Meira fé í flótta­menn en elli­líf­eyriIngvar Ingvason sagð­ist viss um að meira fé væri ráð­stafað í mála­flokk flótta­manna og hæl­is­leit­enda en elli­líf­eyr­is­þega.

Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar, segir að allt sem lagt er út vegna flótta­fólks og hæl­is­leit­anda sé „greitt af rík­inu,“ sveit­ar­fé­lagið fái allan kostnað end­ur­greiddan frá rík­inu. Eftir að hæl­is­leit­andi hlýtur alþjóð­lega vernd, fær kenni­tölu og ákveður að búa áfram í Reykja­nesbæ sé hann hins vegar „orð­inn eins og hver annar íbúi.“ Samn­ingur á milli rík­is­ins og sveit­ar­fé­lags­ins gerir svo ráð fyrir að end­ur­greiða fram­færslu á vegum félags­þjón­ust­unnar fyrir 350 manns í þeirri stöðu. 

„Þegar þú ert orð­inn íbúi hér, þá áttu rétt á sömu þjón­ustu á sama stað og allir aðrir. “
Kjartan Már Kjart­ans­son

Íbúar bæj­ar­ins hafa spurt Kjartan að því af hverju félags­lega þjón­ustan við þessa nýju íbúa er ekki til húsa ein­hver­staðar ann­ars­staðar en í ráð­hús­inu þar sem félags­þjón­usta bæj­ar­ins er stað­sett. Íbúar hafa kvartað undan því að við­töl við nýja íbúa taki langan tíma, sem Kjartan segir þau vissu­lega gera vegna tungu­mála­örð­ug­leika. Kjartan segir að það stríði gegn grunn hug­mynda­fræði þjón­ust­unnar:

„Þegar þú ert orð­inn íbúi hér, þá áttu rétt á sömu þjón­ustu á sama stað og allir aðrir. Þó að þú sért með erlend­ann bak­grunn. Það heitir inn­gild­ing og við viljum að þau kom­ist inn í sam­fé­lagið og komi í ráð­húsið og sund, geri bara eins og aðrir íbúar gera.“ 

Krossmói

Margir bæj­ar­búa nefndu á versl­un­ar­mið­stöð­ina Krossmóa þegar vísað var til meintra vand­ræða vegna umsækj­enda um alþjóð­lega vernd. Á leið út úr bænum, var því rétt að koma við þar og taka stöð­una.

„Þeir hanga í Krossmóa“Þó nokkrir íbúar bentu á Krossmóa í sam­hengi við orðróma um ógn sem staf­aði af flótta­mönnum og hæl­is­leit­endum.

Inni í Kross­móum náðum við tali af  Kristrúnu Jóns­dóttur verka­konu sem sagði ekki „þver­fótað fyrir þeim í sumum versl­unum,“ og átti þá við flótta­menn og hæl­is­leit­endur. „Svo er þetta inn á lóðum hjá fólki, týn­andi eitt og annað. Já, bara stela barna­leik­föngum og svo­leiðis.“ Sjálf hafði hún ekki lent í neinu nei­kvæðu en seg­ist viss um að „dóp neyslan hafa auk­ist alveg svaka­lega hérna“.

Alltaf að bíða eftir árásKristrún Jóhann­es­dóttir seg­ist ávalt við­búin árás af hálfu flótta­manna þó svo að hún hafi enga fyrri nei­kvæða reynslu af þeim per­sónu­lega.

Almennt segir hún fólk vera orðið reitt, það sé „búið að fá alveg nóg“ en bæj­ar­stjór­inn „dásami“ hins­vegar flótta­fólk og hæl­is­leit­endur. „Hann er voða hrif­inn af þessu.“ Aðspurð hvort hún upp­lifi raun­veru­lega ógn við eigið öryggi segir hún:„Maður á alltaf von á því að það komi að því.“ 

Fyrir utan stendur strætó­skýli þar sem vagnar koma reglu­lega frá Ásbrú. Við strætó­skýlið standa þrír ungir menn, Abdul Hadi, Shahin Alikhil og Abdul Rahman og veifa. 

Upplifum bæinn sem heimaAbdul Hadi, Shahin Alikhil og Abdul Rahman segja vel tekið á móti sér í bænum.

Abdul Rahman, sá sem er lengst til hægri á mynd­inni,  segir að hann hafi búið hér á landi í þrjá mán­uði, sé upp­runa­lega frá Afghanistan en búi ná ásamt hinum tveimur í her­bergi á Ásbrú. Aðspurðir að því hvort þeim finn­ist þeir vel­komnir í bæj­ar­fé­lag­inu svarar Abdul Rahman ját­andi. „Fólk hérna er mjög næs við flótta­menn. Við upp­lifum þennan bæ sem heim­ili“. Í sömu andrá keyrir rúta full af fólki upp að strætó­skýl­inu frá Ásbrú. Úr henni ganga nokkrar barna­fjöl­skyldur og kona með lítið barn, á leið inn í Krossmóa. 

„Ég vildi óska að það væri annað viðhorf“

Fjöl­breyti­leiki í sinni fjöl­breytt­ustu myndKjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar, harmar þá orð­ræðu sem á sér stað í bænum í garð flótta­fólks og hæl­is­leit­enda. Hún sé ekki í takt við slag­orð bæj­ar­ins: Í krafi fjöl­breyti­leik­ans.

Kjartan Már bæj­ar­stjóri segir að hann vildi óska þess að „það væri annað við­horf til þess­ara  mála, hjá þessum hluta bæj­ar­búa, sem eru ósáttur“ en sýndi þeim sömu­leiðis skiln­ing. „Mér þykir voða leið­in­legt að það séu ein­hverjir íbúar hér sem líði illa af því að hér er fólk í neyð sem þarf aðstoð,“ segir hann og bætir við: 

„Ég skil þá mjög vel en ég vildi óska þess að við værum komin lengra út af því að slag­orð Reykja­nes­bæjar er: Í Krafti fjöl­breyti­leik­ans. Það á við um fjöl­breyti­leika í sinni fjöl­breytt­ustu mynd, kyn­hneigð, trú­ar­brögð, þjóð­erni, fólk með fötlun, allt þetta.“

Hann segir fjölg­un­ina eflaust eiga eftir að aukast og fjöl­menn­ingu á Íslandi um leið en Íslands sé hins vegar langt á eftir hinum Norð­ur­lönd­unum varð­andi skiln­ing. „Þetta á bara eftir að aukast. Þeim sem líður illa í þessu umhverfi, fjöl­menn­ingu, ég veit ekki hvað þeir ætla að gera.“ 

Spurður að því hvað hann sjái sem lausn við því að bæj­ar­búum, eins og hann orðar það, líði illa vegna þessa segir hann: „Betri heim,“ og á þá við styrj­öldum og stríðum út í heimi ljúki því að hans sögn vilji „allt þetta fólk fara heim til sín aftur,“ og nefnir sér­stak­lega í því sam­hengi þá Úkra­ínu­menn, Sýr­lend­inga og Venes­ú­ela­búa.

„Það eru mjög fáir að leika sér af því að flýja land og koma hingað, til þess að vera hérna í snjó­kom­unni. Ísland er æðis­legt og allt það en þessu fólki líður ekki öllu vel, langt í frá.  Eru með börn sem eru í til­finn­inga­kreppu og sakna vina sinna og skilja ekki tungu­málið í skól­anum og mamma og pabbi eru atvinnu­laus og fá ekki vinnu. Það er eng­inn að óska sér þess­arar stöðu.“

Hans afstaða til máls­ins sé þá að gera þeim lífið „eins bæri­legt og hægt er á meðan þau eru hérna hjá okkur“ og sama eigi við um aðra íbúa Reykja­nes­bæjar. „Við erum í því alla daga að reyna að gera betur við okkar íbúa, alveg sama hverjir þeir eru eða hvaðan þeir koma upp­haf­lega.“

Skortur á vilja til að kynna sér málin

Aðspurður að því hvort vanti upp á aðgerðir af hálfu bæj­ar­stjórnar til að ná til þessa hóps bæj­ar­búa, til dæmis með fræðslu, segir Kjartan að það hafi verið reynt nýlega, á íbúa­fundi í Stapa um mál­efni fólks á flótta, en hund­rað manns hefðu mætt og þar af helm­ingur fólk sem starfar í mála­flokknum.

„Við vorum með pall­borð, við vorum með alls­konar. Ég átti von á miklu fleira fólki. Það voru hund­rað manns sem komu, hefði viljað hafa þús­und manns í hús­inu,“ segir hann. Hinn helm­ing­inn af fund­ar­gestum telur hann vera „dæmi­gerða“ íbúa Reykja­nes­bæjar sem vildu fræð­ast um mál­efnið. „Hinir komu ekki og hvað getum við þá gert?“ Hann segir mikið efni aðgengi­legt þeim sem vilji kynna sér mála­flokk­inn en til þess þurfi vilja sem hann telur að skorti. „Hvernig færðu fólk til að vilja það? Ég er bara fiðlu­leik­ari, ég er ekki sál­fræð­ingur.“

Hann segir stjórn­mála­menn „auð­vitað“ þurfa að taka ábyrgð á orð­ræðu sinni, hvort sem það er inn á bæj­ar­stjórn­ar­fundum eða í pontu Alþingis. Hann segir að orðróm­arnir sem hafa sprottið upp þar og þaðan til bæj­ar­búa megi skýra að hluta til með því að hóp­ur­inn sem sé á móti flótta­fólki, hæl­is­leit­endum eða fjölg­un­inni, sé hávær og þá sé „svo­lítið freist­andi fyrir póli­tíkusa að taka undir þessa háværu umræðu. Þá eru þeir með inn í berg­máls­hell­inum og fá hrós fyrir að vera sömu skoð­unnar og taka undir“. Hinir, sem hann telur sem meiri­hluta, þeir sem „skilji málið og er hlynnt þessu,“ þori að hans sögn ekki að tjá sig opin­ber­lega af ótta við að „vera tekið af lífi á sam­fé­lags­miðlum. Af háværa hópnum“. 

Kjósa
44
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Eyþór Dagur skrifaði
    Ég hef aldrei skilið hversvegna þarf að halda fólki sem hingað kemur uppi á skattfé. Af hverju má ekki skylda þetta fólk til að vinna eins og annað fólk sem kemur hingað í leit að betra lífi? Ég hef unnið alla ævi og borga skatta. Mér finnst það eðlilegt og þig svo þjónustu í staðinn. Af hverju er það rangt að gera sömu kröfur til allra? Mér finnst það siðferðisbrestur að ætla bara sumum að halda uppi velferðarkerfinu okkar hérna. Það vill svo skemmtilega til að hér fyrir ofan er auglýsing frá SAmeyki vegna 1. maí. Hnefi á lofti og í honum stendur réttlæti, jöfnuður velferð. Það á nefnilega 100% við það sem ég hef sagt hér.
    0
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Hvað sem hver segir – þá á allur kostnaður vegna stuðnings við flóttamenn, hvaða nafni sem þeir nefnast, að borgas af samfélaginu EKKI NÆRSAMFÉLAGINU.
    Við sem samfélag, ákváðum á hinu háa Alþingi þennan stuðning og eigum að standa undir því, ekki senda ábyrgðina á nær samfélagið sem tekur við vandanum, þó það sé ætíð gert með ótrúlega góðum huga.
    Getur verið að ráðamenn samfélagsins séu að skarta stolnum fjöðrum?
    -3
    • SSS
      Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
      Annað hvort ert þú með skertann lesskilning eða þú last ekki greinina JÖLA.

      "Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir að allt sem lagt er út vegna flóttafólks og hælisleitanda sé „greitt af ríkinu,“ sveitarfélagið fái allan kostnað endurgreiddan frá ríkinu."
      5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár