Þétt byggð á Hlíðarenda alltaf betri kostur en nýtt úthverfi

Magnea Þ. Guð­munds­dóttir arki­tekt rýnir í bygg­ingar og svæði. Að þessu sinni í borg­ar­rýmið Hlíð­ar­enda.

Þétting byggðar
Þétting byggðar „Það besta sem formið býður upp á er þó að byggðin skermir af sam­eig­in­lega garða á miðjum reit. Þar er skjól fyrir vindum, kyrrð frá amstri borg­ar­innar og örugg leik­rými,“ segir meðal ann­ars í gagn­rýni Magneu Þ. Guð­munds­dótt­ur arki­tekts á borg­ar­rým­inu Hlíðar­enda. Mynd: Heiða Helgadóttir
Annað

Arki­tektúr Hlíð­ar­endi

Niðurstaða:

Þrjár stjörnur fyrir borgarbrag, skjólsæla garða og hverfi sem á bjarta framtíð. Með metnaðarfyllri bílastæðastefnu, yfirvegaðri arkitektúr og grænni göturými hefðu þær orðið fleiri.

Gefðu umsögn

Við Hlíð­ar­enda í Reykja­vík, á milli fót­bolta­vallar og flug­vallar, er risin blönduð byggð, íbúðir og atvinnu­rými á jarð­hæðum á fimm reitum. Hluti íbúa er fluttur inn með Öskju­hlíð­ina í bak­garð­inum og í göngu­fjar­lægð frá mið­borg Reykja­víkur.

Hverfið, þegar full­byggt, mun rúma um 1.200 íbúðir, sem er álíka og með­al­stórt sveit­ar­fé­lag á íslenskan mæli­kvarða. Íbúa­fjöld­inn á eftir að þre­fald­ast á næstu árum og enn á eftir að fylla atvinnu­rými sem mun spila lyk­il­hlut­verk í því að glæða hverfið lífi, gefa því sér­stöðu, per­sónu­leika og ýta undir sjálf­bærni.

Um Hlíð­ar­enda hefur margt verið sagt, heim­ili Vals­manna, kirkju­jörð sem varð að fjár­fest­ingaræv­in­týri, bit­bein urbanista og flug­vall­ar­vina og vaxt­ar­verkir nýs hverfis sem erf­iðar við að fylla atvinnu­rými. Ekki verður frekar mála­lengt um þá hluti heldur fjallað um gæði nýs hverfis.

Ég trúi á þétt­leika, iðandi borg­ar­mann­líf og sam­göngur fyrir öll. Hlíð­ar­endi er eitt af fyrstu nýju hverfum sem byggð eru í anda nýrrar þétt­ing­ar­stefnu Reykja­vík­ur­borgar. Það er því for­vitni­legt að skoða hvernig tek­ist hefur til.

Skipu­lagið er í takt við vinn­ings­til­lögu um Vatns­mýr­ar­skipu­lag frá 2008, og fylgir svo­kall­aðri rand­byggð­ar­hug­mynd. Hugmynd sem á sér langa sögu og byggt hefur verið eftir um aldir í borgum um allan heim. Bygg­ingar mynda sam­fellu, standa þétt við götu á lóð­ar­mörkum og ramma inn götu­rýmið. Það er borg­ar­bragur á hverf­inu. Rand­byggðin býður upp á betra og beinna aðgengi hjólandi og gang­andi þar sem leiðir á milli eru styttri og bíla­stæða­flæmi hindra ekki aðgang. Hægt er að byggja nokkuð þétt án þess að byggja hátt.

Það besta sem formið býður upp á er þó að byggðin skermir af sam­eig­in­lega garða á miðjum reit. Þar er skjól fyrir vindum, kyrrð frá amstri borg­ar­innar og örugg leik­rými. Hverfið býður upp á ólík sam­eig­in­leg rými til að njóta. Á Hlíð­ar­enda hafa þessi rými þó verið hugsuð fyrst og fremst fyrir íbúa, aðgengi gesta og gang­andi er tak­markað. Bíla­stæða­kjall­arar koma í veg fyrir að þar vaxi aðrar plöntur en gras og lág­vax­inn gróður en þau eru engu að síður vönduð og vel nýtt. Á göngutúr á eft­ir­mið­degi mátti sjá krakka í leik, full­orðna drekka kaffi á ver­önd­inni og grillið til­búið á pall­inum.

Kostir garð­anna er það sem skugg­sælar göt­urnar skortir. Bygg­ingamassa hefði mátt brjóta meira upp og auka flæði milli bjartra og grænna garða og götu­rýma. Þannig yrði hverfið áhuga­verð­ari staður fyrir gesti og þá sem eiga leið hjá. Ekki verður farið inn fyrir húss­ins dyr að þessu sinni en ótví­ræð eru áhrif sól­ar­ljóss á gæði rýma.

Arn­ar­hlíð er gata sem liggur frá suð­vestri til norð­aust­urs í gegnum hverfið. Með tím­anum mun gatan tengj­ast Snorra­braut, Borg­ar­línan fara þar um, glæða göt­una lífi og tengja enn betur við mið­bæ­inn. Gatan er breið, jarð­hæðir ætl­aðar undir versl­anir og þjón­ustu og þar nýtur við sólar. Ég er sann­færð um að einn dag­inn, í ekki svo fjar­lægri fram­tíð, verði þar allt mor­andi í mann­lífi. Fólk að hoppa í borg­ar­línu­vagna, HR-ingar að hitt­ast í hádeg­is­mat eða íþrótta­iðk­endur að slaka á eftir æfingu.

„Þétt byggð á Hlíð­ar­enda er alltaf betri kostur en nýtt úthverfi í útjaðri borg­ar­innar.“

Hönnun bygg­inga í hverf­inu er í takt við ríkj­andi trend. Arki­tekt­úr­inn stendur ekki með massa bygg­ing­ar­innar heldur reynir að fela hann með mis­litum álp­lötum. Reynt er að koma til móts við kröfur um mann­legan skala og upp­brot en til­raunin virkar fálm­kennd. Minnir á mynd­skreyt­ingu í barna­bók. Glugga­setn­ing, útskot og svalir eru góðar og gildar leiðir til upp­brots en ef til vill hefði verið hægt að ná fram yfir­veg­aðri takti og vinna með mass­ann frekar en að breiða yfir hann.

Skoði maður skipu­lags­á­ætl­anir hverfa sem eiga að byggj­ast upp á næst­unni er rand­byggð­ar­formið áber­andi. Þau gefa þó lof­orð um fjöl­breytt­ari útfærslur. Nýlega sendi borgin frá sér kynn­ingu á hverfi í Keldna­landi þar sem ekki á að byggja kostn­að­ar­sama bíla­kjall­ara heldur enn meiri áhersla á græna byggð og sjálf­bær­ari ferða­máta. Tíminn mun vinna með Hlíð­ar­enda og með nýrri Borg­ar­línu og auknum íbúa­fjölda mun enn meira líf fær­ast í hverfið.

Við erum að vinna okkur í rétta átt. Þétt byggð á Hlíð­ar­enda er alltaf betri kostur en nýtt úthverfi í útjaðri borg­ar­innar. Fyrir íbúa, umhverfið og borg­ina í heild. Þetta tekur bara tíma og með hverju nýju verk­efni þarf að staldra við og spyrja hvað megi gera betur.

 

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Martin Swift skrifaði
    Skemmtileg grein og gaman ef umfjöllun um arkitektúr og skipulag í þessum stíl verður reglulegur þáttur á Heimildinni. Þykir þó höfundur hefði gjarnan mátt fara dýpra í áhrif sólarljóss á gæði rýma sem hún segir ótvíræð, en ekkert meira um hvort þau séu góð eða slæm.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár