Meintur brotaþoli sýknaður en náinn aðstandandi dæmdur

Í 28 manna lok­uðum Facebook-hópi, sem sner­ist um að vara við vafasömum ein­stak­lingum, sagði Edda Sig­urð­ar­dóttir frá því að nafn­greindur maður hefði nauðgað sér. Síðar sagði Sesselja María Morten­sen frá því, í sama hópi, að þessi maður hefði nauðgað konu sem væri sér mjög kær og vís­aði þar til Eddu. Edda kærði nauðg­un­ina en málið var fellt niður. Í fram­hald­inu fór mað­ur­inn í meið­yrða­mál við þær báðar þar sem Edda var sýknuð en Sesselja á end­anum dæmd. Edda þarf þó að greiða millj­ónir í máls­kostnað.

Meintur brotaþoli sýknaður en náinn aðstandandi dæmdur
Ósáttar Edda Sig­urð­ar­dóttir og Sesselja María Morten­sen undr­ast að Edda hafi verið sýknuð í Lands­rétti en Sesselja fundin sek um meið­yrði. Mynd: Heiða Helgadóttir

Edda Sig­urð­ar­dóttur kærði nauðgun til lög­reglu í maí árið 2018. Hún og mað­ur­inn sem hún kærði fyrir nauðgun til­heyrðu sama jað­ar­sam­fé­lag­inu. Í því skyni að vara aðrar konur við honum birti hún í júlí­mán­uði færslu í lok­uðum Facebook-hópi með 28 með­limum þessa jað­ar­sam­fé­lags, aðal­lega konum, hópi sem var ætlað að auka öryggi fólks.

Hún skrif­aði: „Mig lang­aði að vekja athygli á manni sem heitir [...]. Hann nauðg­aði mér í byrjun maí á þessu ári og ég veit fyrir víst að hann hefur verið óþægi­legur og óvið­eig­andi við fleiri og virð­ist tak­markað virða mörk. Held það sé mjög mik­il­vægt að varað sé við honum. Það sem hann gerði mér er ekki leynd­ar­mál og það má segja frá því og nefna mig á nafn þegar það er gert ef þið viljið. Farið var­lega ♥“.

Sesselja María Morten­sen var umsjón­ar­kona hóps­ins. Hún hafði fengið tvær aðrar ábend­ingar um óvið­eig­andi hegðun manns­ins …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár