Slökkviliðið bannar búsetu í kolakjallaranum úr Kveik

Slökkvi­lið­inu var til­kynnt um eld­hættu í kola­kjall­ar­anum úr Kveik fyrir einu ári. Birgir Finnsson slökkvi­liðs­stjóri segir að út frá til­kynn­ing­unni hafi slökkvi­liðið ekki áttað sig á því að um væri að ræða atvinnu­hús­næði. Leigusal­inn er hættur að leigja íbúð­ina því hann vill ekki brjóta lög. Fjöl­skylda frá Venes­ú­ela sem bjó í íbúð­inni er komin með nýja íbúð í Breið­holt­inu.

Tengdi ekki húsin saman
Tengdi ekki húsin saman Birgir Finnsson segir að slökkvi­liðið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi ekki tengt saman íbúð­ina sem til­kynn­ingi­arnar þrjár voru um og íbúð­ina sem fjallað var um í Kveik. Hann segir að slökkvi­liðið hafi ekki áttað sig á að um væri að ræða atvinnu­hús­næði en ekki íbúð­ar­hús­næði.

Íbúar í hús­inu sem frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Kveikur sagði frá nýlega til­kynntu um óboð­legar og hættu­legar aðstæður í íbúð í kjall­ar­anum þar í fyrra­vor. Það var gert í gegnum sér­staka til­kynn­inga­síðu á heima­síðu slökkvi­liðs­ins. Þetta segir einn af íbú­unum í sam­tali við Heim­ild­ina. „Þegar ég fór þarna inn þá blöskr­aði okkur,“ segir íbú­inn. „Ég vissi ekki að þetta væri íbúð. Það var umgangur þarna en ég hélt að það væri af því búið hafði verið til þvotta­hús þarna,“ segir íbú­inn sem vill ekki koma fram undir nafni. 

Birgir Finnsson, starf­andi slökkvi­liðs­stjóri, stað­festir orð íbú­ans í sam­tali við blaðið. „Þetta passar.“ Hann segir að sam­tals hafi slökkvi­liðið fengið þrjár til­kynn­ingar vegna íbúð­ar­innar. 

Fjölskyldan á leið í íbúð í Breiðholti

Íbúðin er mið­svæðis í Reykja­vík og er gömul, glugga­laus kola­geymsla í nið­ur­gröfnum kjall­ara þar sem loft­hæðin er rétt um tveir metrar. Heim­il­is­fang húss­ins verður ekki til­greint. 

Í …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Matthildur Jóhannsdóttir skrifaði
    Alltaf heyrir maður eitthvað nýtt. Hvaða maður er hræddur við konu sem er 150 á hæð og 50 kg.?
    1
  • HHH
    Hólmgeir Helgi Hákonarson skrifaði
    Samkvæmt (Kastljósi) + Íslendingabók er eigandi íbúðarinnar fæddur 1943.
    1
  • Hafþór Bryndísarson skrifaði
    Er til of mikils mælst að lágmarkseftirfylgni þegar einhver tilkynnir húsnæðið að því sé flett upp í opinberum skrám innan árs? Það er gersamlega fáránlegt að slökkviliðið komist upp með þessa afsökun.

    Við skulum svo bara sleppa því að tala um "ég var bara að rukka leigu fyrir húsnæði sem er augljóslega ekki íbúðarhæft, ekki mér að kenna sko" gaurinn.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár