Losun eykst frá íslenska hagkerfinu

Verulega dró úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á Covid-19 tíma­bil­inu en síðan hefur hún auk­ist tölu­vert. Losunin í fyrra var á pari við árið 2019. Mikla aukn­ingu í losun frá sjáv­ar­út­vegi má rekja til stórrar loðnu­ver­tíðar og skorts á raf­orku til fiski­mjöls­verk­smiðja

Losun eykst frá íslenska hagkerfinu
Loðna, bræðslur og akstur Stór loðnu­ver­tíð hafði þau áhrif að losun jókst veru­lega í sjáv­ar­út­vegi á síð­asta ári. Þá hefur mengun frá akstri Íslend­inga aldrei verið meiri. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Losun á gróð­ur­húsa­loft­teg­undum frá hag­kerfi Íslands jókst veru­lega á síð­asta ári miðað við árið á undan og var sam­bæri­leg og los­unin árið 2019. Verulega dró úr losun það ár og hið næsta, og hélst sá sam­dráttur að mestu árið 2021. Skýr­ingar þar á má fyrst og fremst rekja til Covid-19 far­ald­urs­ins.

Þetta má sjá úr tölum sem Hag­stofan hefur birt. Heild­ar­losun frá hag­kerf­inu nam, sam­kvæmt áætlun, 6.650 kílótonnum koltví­efnis ígilda, á síð­asta ári. Árið 2021 var los­unin aftur á móti tæp 5.500 kílótonn.

Gögn Hag­stof­unnar ná aftur til árs­ins 1995 og má sjá að stíg­andi hefur verið í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda allt frá því ári og til árs­ins 2018. Árið 1995 var los­unin tæp 4.000 kílótonn en fór hæst í 7.500 kílótonn árið 2018. Frá árinu 2019 má sjá fall í losun og fór hún lægst árið 2020, í 5.300 kílótonn. Ástæðan er eins og fyrr segir Covid-19 far­ald­ur­inn og sam­dráttur í efna­hags­líf­inu sem fylgdi. Svipað mynstur má sjá eftir efna­hags­hrunið 2008. Árið 2008 nam losun frá hag­kerf­inu tæpum 6.000 kílótonnum og hafði þá aldrei verið meiri. Næstu þrjú ár, í eft­ir­leik fjár­mála­hruns­ins, dró úr losun og árið 2011 var hún 5.300 kílótonn en fór svo vax­andi á nýjan leik.

Loðna og akstur skýra aukningu

Í tölum Hag­stof­unnar má meðal ann­ars sjá að losun vegna akst­urs einka­bíla var árið 2022 606 kílótonn. Er það mesta losun í þeim flokki frá árinu 1995. Því virð­ist ekki sem síaukið hlut­fall raf­bíla eða nýorku­bíla af nýjum bílum seldum á land­inu dugi til að draga úr losun frá akstri. Á síð­asta ári voru um 16.700 fólks­bílar nýskráðir hér á landi og af þeim voru um 5.600 raf­magns­bílar.

„Það er hægt að sjá í mán­að­ar­gögnum hvernig losun eykst gríð­ar­lega á meðan á loðnu­verð­tíð­inni stóð“
Þor­steinn Aðal­steins­son
sér­fræð­ingur hjá Hagstofu Íslands

Þá sést líka að mikil aukn­ing varð í losun á gróð­ur­húsa­loft­teg­undum frá útgerð og fisk­vinnslu á síð­asta ári miðað við árið 2021. Á síð­asta ári er áætlað að los­unin hafi numið 746 kílótonnum sam­an­borið við 542 kílótonn árið 2021. Á þessu er ein­föld skýr­ing, aukin loðnu­veiði á síð­asta ári og vöntun á raf­orku, sem aftur olli því að keyra þurfti fiski­mjöls­verk­smiðjur með olíu.

„Það varð gríð­ar­leg aukn­ing á löndun á loðnu og loðnu­skip, þó þau séu upp­sjáv­ar­skip, eru orku­frek. Það er hægt að sjá í mán­að­ar­gögnum hvernig losun eykst gríð­ar­lega á meðan á loðnu­verð­tíð­inni stóð. Á sama tíma var skortur á raf­orku fyrir bræðsl­urnar til þess að þær los­uðu miklu meira en ann­ars hefði verið,“ segir Þor­steinn Aðal­steins­son, sér­fræð­ingur hjá Hag­stof­unni.

Hag­stofan byggir sína töl­fræði á gögnum frá Umhverf­is­stofnun en safnar einnig gögnum sjálf. Um mis­mun­andi útreikn­inga er að ræða hjá stofn­un­unum tveimur, þó báðir séu réttir. Umhverf­is­stofnun tekur saman losun frá íslensku land­svæði en Hag­stofan frá íslensku hag­kerfi. Það þýðir, í síð­ar­nefnda til­vik­inu, að Hag­stofan tekur saman tölur um losun frá Íslend­ingum og íslenskum fyr­ir­tækjum, hvar sem er í heim­inum. Þannig tekur bók­hald Hag­stof­unnar til íslenskra ferða­manna erlendis, til starf­semi íslenskra fyr­ir­tækja erlendis, til los­unar fiski­skipa og far­skipa í alþjóða­sigl­ingum og til los­unar íslenskra flug­fé­laga. Hins vegar tekur Umhverf­is­stofnun saman losun sem verður á Íslandi eða í íslenskri lög­sögu, hvort sem það eru Íslend­ingar eða útlend­ingar sem eru ábyrgir fyrir henni.

Bókhald Umhverf­is­stofn­unar tekur til þeirra þátta sem Ísland ber ábyrgð á sam­kvæmt alþjóð­legum skuld­bind­ingum sínum, auk þess sem stofn­unin færir einnig til bókar losun sem verður vegna land­notk­unar, breyt­inga á land­notkun og skóg­rækt. Síð­ast­nefndu þætt­irnir koma ekki fram í tölum Hag­stof­unnar þar eð land sem slíkt telst ekki hluti hag­kerf­is­ins. Sömu­leiðis kemur losun sem á sér stað þegar erlendir ferða­menn aka um landið eða þegar erlend fiski­skip veiða í íslenskri lög­sögu ekki fram í bók­haldi Hag­stof­unnar. Hag­stofan skilar sínu bók­haldi til Eurostat og hefur Evr­ópu­þingið tekið mið af þeim útreikn­ingum við laga­setn­ingar, á meðan að Umhverf­is­stofnun skilar sínu bók­haldi til Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár