Torg tekið til gjaldþrotaskipta

Útgáfu­fyr­ir­tækið Torg var tekið til gjald­þrota­skipta í gær. Skipta­stjóri sendi fyrr­ver­andi starfs­fólki póst í dag þar sem það var hvatt til að hafa sam­band við sín stétt­ar­fé­lög og leita aðstoðar við að gera kröfur í þrota­búið.

Torg tekið til gjaldþrotaskipta
Segir engu við að bæta Helgi Magn­ús­son, eig­andi Fjöl­miðla­torgs, og þar með DV, og fyrr­ver­andi aðal­eig­andi Torgs, vildi ekk­ert tjá sig þegar haft var sam­band við hann. Mynd: Torg

Torg efh, útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins, Mark­að­ar­ins, Hring­brautar og DV, var tekið til gjald­þrota­skipta í gær. Óskar Sig­urðs­son lög­maður á lög­manns­skrif­stof­unni Lex hefur verið skip­aður skipta­stjóri í búinu.

Öllum starfs­mönnum Torgs, um 100 manns, mun hafa verið sagt upp 31. mars, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem skipta­stjóri afl­aði frá for­svars­mönnum Torgs. Í bréfi sem starfs­menn fengu frá Óskari skipta­stjóra telur hann af þeim sökum að ráðn­ing­ar­sam­bandi þeirra við Torg hafi verið slitið áður en bú félags­ins var tekið til gjald­þrota­skipta. Í sama bréfi til­greinir skipta­stjóri að hafi upp­sögn ekki átt sér stað muni þrota­búið ekki taka við rétt­indum og skyldum sam­kvæmt ráðn­ing­ar­samn­ingi Torgs við þeirra starfs­manna sem um ræðir. Jafn­framt eru starfs­menn hvattir til hafa sam­band við stétt­ar­fé­lög sín og leita þar aðstoðar, meðal ann­ars við kröfu­lýs­ingar í þrotabú Torgs.

Greint hefur verið frá því að félag að fullu í eigu Helga Magn­ús­sonar, Fjöl­miðla­torg ehf., hafi keypt DV.is af Torgi á 420 millj­ónir króna, og gerð­ist það áður en síð­ar­nefnda félagið var tekið til gjald­þrota­skipta. Helgi var áður aðal­eig­andi Torgs. Starfs­fólki DV var sagt upp störfum hjá Torgi og þeim síðan boðið að skrifa undir ráðn­ing­ar­samn­ing við hið nýja fyr­ir­tæki.

Helgi Magn­ús­son vildi ekk­ert um málið segja þegar Heim­ildin leit­aði eftir því. „Við sendum frá okkur yfir­lýs­ingu á föstu­dag­inn var og ég vil engu við hana bæta, alla vega ekki að svo stöddu.“ Ekki náð­ist í skipta­stjóra.   

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár