Vilja að stimpilgjald verði einungis afnumið af húsnæði sem er keypt til eigin nota

Nokkrir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa lagt fram frum­varp um að afnema stimp­il­gjöld vegna kaupa á íbúð­ar­hús­næði. Hags­muna­sam­tök heim­il­anna styðja frum­varpið að því gefnu að gjaldið verði ein­ungis afnumið af hús­næði sem er keypt til eigin nota. Alls eru tæp­lega 38 pró­sent allra íbúða annað hvort í eigu ein­stak­linga sem eiga fleiri en eina íbúð eða í eigu lög­að­ila.

Vilja að stimpilgjald verði einungis afnumið af húsnæði sem er keypt til eigin nota
Íbúðir Mikið af nýjum íbúðum hafa komið inn á mark­að­inn á und­an­förnum árum.

Hags­muna­sam­tök heim­il­anna hafa skilað umsögn um fyr­ir­liggj­andi frum­varp um afnám stimp­il­gjalda af kaupum ein­stak­lings á íbúð­ar­hús­næði og leggja til að því verði breytt. 

Í umsögn­inni, sem Guð­mundur Ásgeirs­son vara­for­maður sam­tak­anna skrifar undir, er bent á að eins og 2. grein frum­varps­ins er orðuð myndu öll kaup ein­stak­linga á íbúð­ar­hús­næði verða und­an­þegin stimp­il­gjaldi en ákvæðið ein­skorð­ast ekki við íbúð­ar­hús­næði til eigin nota. „Und­an­farin miss­eri hefur borið mikið á því að ein­stak­lingar fari um og kaupi upp íbúð­ar­hús­næði sem þeir ætla aldrei að búa í sjálfir heldur að hagn­ast á því með útleigu og hækkun fast­eigna­verðs. Þetta hefur dregið úr fram­boði hús­næðis fyrir fólk sem leitar sér að heim­ili og jafn­vel eru dæmi um að fjár­festar hafa yfir­boðið fyrstu kaup­endur í slíkum við­skiptum og komið þannig í veg fyrir að fólk geti komið þaki yfir höf­uðið þó það séu grund­vall­ar­mann­rétt­indi.“

Ástæðu­laust er að mati sam­tak­anna að ívilna slíkum aðilum heldur ætti íviln­unin mun frekar að ein­skorð­ast við kaup ein­stak­linga á íbúð­ar­hús­næði til eigin nota „til að ryðja hindr­unum úr vegi fyrir fólk í leit að heim­ili og veita því ákveðið for­skot á spá­kaup­menn á hús­næð­is­mark­aði.“

Því vilja Hags­muna­sam­tök heim­il­anna að þess­ari grein verði breytt og orð­unum „til eigin nota“ verði bætt inn í lögin. Verði það gert eru sam­tökin til­búin til að styðja frum­varpið heils­hugar. 

Um er að ræða frum­varp sem fjórir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins: Vil­hjálmur Árnason, Diljá Mist Ein­ars­dóttir, Berglind Ósk Guð­munds­dóttir og Ásmundur Frið­riks­son lögðu fram í lið­inni viku. Þetta er í átt­unda sinn sem slíkt frum­varp er lagt fram en það hefur ekki hlotið afgreiðslu hingað til.

Þing­maðurVil­hjálmur Árnason er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins.

Ein­stak­lingum ber nú almennt að greiða 0,8 pró­sent stimp­il­gjald vegna kaupa á íbúð­ar­hús­næði en þó er veittur helm­ings­af­sláttur þegar um fyrstu kaup er að ræða. Verði frum­varpið að lögum mun gjaldið falla alfarið niður vegna kaupa ein­stak­linga á íbúð­ar­hús­næði og und­an­þágan verður ekki bundin við fyrstu kaup.

Margir eiga fleiri en eina íbúð

Í tölum sem eru aðgengi­legar á heima­síðu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) má sjá að 152.389 íbúðir séu í land­inu. Þar af eru 94.839, eða 62,2 pró­sent þeirra í eigu ein­stak­linga sem eiga eina íbúð. Það hlut­fall fór hækk­andi árið 2020 og 2021, á meðan að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn geis­aði og kjör á íbúða­lánum voru þau bestu sem þau hafa verið í Íslands­sög­unni. Frá byrjun árs 2020 og til dags­ins í dag hefur íbúða­verð hækkað um 49 pró­sent. Í fyrra og það sem af er ári hefur hlut­fall þeirra ein­stak­linga sem eiga eina íbúð hins vegar farið lækk­andi og er nú það sama og það var árið 2019.

Alls eru 31.658 íbúðir í eigu ein­stak­linga sem eiga fleiri en eina íbúð, eða 20,8 pró­sent allra íbúða. Það hlut­fall hefur verið svipað árum saman, en er þó tölu­vert hærra en til dæmis fyrir tutt­ugu árum síðan, þegar 16,1 pró­sent íbúða var í eigu ein­stak­linga sem áttu fleiri en eina. Íbúðum hefur fjölgað mikið í land­inu síðan þá en árið 2003 áttu ein­stak­lingar sem áttu fleiri en eina íbúð alls 17.633 íbúðir, eða 14.025 færri en þeir eiga nú. 

Til við­bótar eiga lög­að­ilar, til dæmis hluta­fé­lög og einka­hluta­fé­lög, líka íbúðir. Alls 17 pró­sent allra íbúða eru í eigu slíkra. Flest félög eiga fleiri en eina íbúð, en alls eru 22.455 íbúðir í eigu félaga sem þannig háttar um. Það eru 14,7 pró­sent allra íbúða í land­inu. Þá eru 3.437 íbúðir í eigu lög­að­ila sem eiga eina íbúð, sem eru 2,3 pró­sent allra íbúða í land­inu. Þetta hlut­fall hefur hald­ist nokkuð stöðugt síð­ustu ár.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár