Framsókn mælist með undir tíu prósent fylgi í fyrsta sinn á kjörtímabilinu

Níu stjórn­mála­flokkar myndu ná inn á þing ef kosið yrði í dag. Sam­fylk­ingin mælist stærsti flokkur lands­ins þriðja mán­uð­inn í röð og stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina heldur áfram að dala. Sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna mælist undir 40 pró­sent.

Framsókn mælist með undir tíu prósent fylgi í fyrsta sinn á kjörtímabilinu
Hátt fall Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn vann mik­inn kosn­inga­sigur í síð­ustu kosn­ingum. Hann hefur tapað meira fylgi en nokkur annar það sem af er kjör­tíma­bili. Mynd: Bára Huld Beck

Þriðja mán­uð­inn í röð mælist Sam­fylk­ingin sem stærsti flokkur lands­ins í Þjóð­ar­púlsi Gallup. Nú mælist fylgi flokks­ins 25,1 pró­sent og eykst lít­il­lega milli mán­aða. Alls hefur Sam­fylk­ingin bætt við sig 15,2 pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ingum. Hún er ein af fimm flokkum sem hafa bætt við sig fylgi það sem af er kjör­tíma­bili. Sam­an­lagt hafa hinir fjórir: Píratar, Viðreisn, Mið­flokk­ur­inn og Sós­í­alista­flokkur Íslands bætt við sig 3,4 pró­sentu­stigum. Því er fylg­is­aukn­ing Sam­fylk­ing­ar­innar frá síð­ustu kosn­ingum, sem stökk­breytt­ist eftir að Kristrún Frosta­dóttir tók við flokknum í fyrra, sér á báti í íslenskum stjórn­málum.

Stjórn­ar­flokk­arnir þrír hafa allir tapað fylgi á kjör­tíma­bil­inu. Mestu hefur Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn tapað, eða 7,4 pró­sentu­stigum, en fylgi hans, 9,9 pró­sent, mælist nú í fyrsta sinn undir tíu pró­sentum í könnun Gallup frá því að kosið var síð­ast. 

Vinstri græn höfðu mælst með 6,8 pró­sent fylgi í þremur könn­unum í röð, en það er lægsta fylgi sem flokk­ur­inn hefur nokkru sinni mælst með í könn­unum Gallup, sem ná aftur til árs­ins 2004. Flokkur for­sæt­is­ráð­herra bætir lít­il­lega við sig milli mán­aða og nú segj­ast 7,1 pró­sent styðja Vinstri græn. Sú breyt­ing er þó vel innan skekkju­marka. Alls hafa Vinstri græn tapað 5,5 pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ingum. 

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist nú með 22,3 pró­sent fylgi sem er 2,1 pró­sentu­stigi minna en hann fékk í kosn­ing­unum í sept­em­ber 2021. Hann er því áfram sem áður sá stjórn­ar­flokkur sem tapar minnstu á því rík­is­stjórn­ar­sam­starfi sem er við lýði. Ef mæl­ingin í könnun Gallup yrði nið­ur­staða kosn­inga væri það þó versta nið­ur­staða Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá upp­hafi. 

Einn andstöðuflokkur hefur tapað fylgi

Fylgi Pírata dalar umtals­vert milli mán­aða og mælist nú 9,4 pró­sent sem er samt tæpu pró­sentu­stigi meira en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum. Viðreisn hress­ist vel milli mán­aða og mælist nú með 9,1 pró­sent fylgi, sem er líka tæpu pró­sentu­stigi meira en flokk­ur­inn fékk haustið 2021. Mið­flokk­ur­inn bætir við sig pró­sentu­stigi milli mán­aða og alls segj­ast nú 6,3 pró­sent aðspurðra styðja flokk­inn. Þetta er í fyrsta sinn á kjör­tíma­bil­inu sem fylgi Mið­flokks­ins mælist yfir sex pró­sent hjá Gallup. Áður hafði það mest farið 0,1 pró­sentu­stigi yfir kjör­fylgi, sem var 5,5 pró­sent. 

KönnunHér má sjá nið­ur­stöður úr nýjasta Þjóð­ar­púlsi Gallup.

Eini stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn sem hefur tapað fylgi á kjör­tíma­bil­inu er Flokkur fólks­ins. Hann fékk 8,9 pró­sent atkvæða þegar síð­ast var kosið en nú segj­ast 5,6 pró­sent styðja hann. Sós­í­alista­flokk­ur­inn mælist svo með 5,1 pró­sent en hann náði ekki inn í síð­ustu kosn­ingum, þegar flokk­ur­inn fékk 4,1 pró­sent atkvæða. 

Allir stjórnarflokkarnir tapað fylgi

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina heldur líka áfram að dala og mælist nú um 41 pró­sent. Hann hefur aldrei mælst minni. Þegar rík­is­stjórnin tók við síðla árs 2017 mæld­ist stuðn­ingur við hana 74 pró­sent og eftir að hún end­ur­nýj­aði stjórn­ar­sam­starfið haustið 2021 mæld­ist hann 62,2 pró­sent. Síðan þá hefur hann hríð­fallið. 

Stuðn­ing­ur­inn mælist þó enn aðeins meiri en sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna, sem er nú komið í 39,3 pró­sent. Það er í fyrsta sinn sem sam­an­lagt fylgi flokk­anna þriggja fer undir 40 pró­sent könnun Gallup frá því að þeir tóku við völdum árið 2017. Sam­an­lagt hafa flokk­arnir þrír tapað 15 pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ingum, eða litlu minna en að sem Sam­fylk­ingin hefur ein bætt við sig á sama tíma­bili. 

Rík­is­stjórnin er því kol­fall­inn miðað við þessa stöðu. Hún fengi senni­lega ekki nema 25 þing­menn, og myndi þá tapa tólf. 

Níu flokkar mælast inni

Ástæða þess er meðal ann­ars sú að miðað við nýj­ustu könnun Gallup þá mæl­ast níu flokkar með yfir fimm pró­sent fylgi, sem þarf til að fá jöfn­un­ar­sæti á þingi. Fjórir minnstu flokk­arnir, Vinstri græn (4), Mið­flokkur (4), Flokkur fólks­ins (3) og Sós­í­alista­flokkur Íslands (3) myndu fá sam­an­lagt tíu þing­menn. Engin tveggja flokka rík­is­stjórn yrði mögu­leg eins og stendur. Jafnvel þótt Sam­fylk­ingin (16) og Sjálf­stæð­is­flokkur myndu vilja vinna saman þá myndu flokk­arnir tveir ein­ungis fá 31 þing­mann, einum færri en þarf til að vera með meiri­hluta á Alþingi. 

Hægt yrði að mynda miðju­stjórn Sam­fylk­ingar, Fram­sókn­ar­flokks, Pírata og Við­reisnar sem myndi vera með 34 þing­menn. Auk þess væri hægt að skipta Viðreisn út fyrir Vinstri græn og mynda þá stjórn með minnsta mögu­lega meiri­hluta sem liti út fyrir að vera meira til vinstri. Fáir raun­hæfir mögu­leikar eru á hægri stjórn eins og er. Ef Sjálf­stæð­is­flokkur, Viðreisn og Mið­flokkur myndu leggja sína þing­menn saman við þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins þá myndu flokk­arnir senni­lega ekki ná nema 31 þing­manni.

Könnunin var gerð 1. mars til 2. apríl. Heild­ar­úr­tak var 11.228 manns og helm­ingur tók þátt. Af þeim sögð­ust tæp tíu pró­sent mundu skila auðu eða ekki kjósa ef gengið yrði til kosn­inga nú.

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár