Morð á 12 ára vinkonu vekur spurningar og óhug

Ráðgátan um morð tveggja stúlkna á „bestu vin­konu“ sinni vekur spurn­ingar og hryll­ing í Þýska­landi. Þrettán ára gömul hringdi ger­and­inn í for­eldra Luise, sem hún hafði þá myrt, og sagði hana vera á heim­leið.

Morð á 12 ára vinkonu vekur spurningar og óhug
Blóm til minn­ingar Hin tólf ára gamla Luise fannst hér látin. Tvær skóla­systur hennar hafa játað að hafa myrt hana. En ráð­gátan um hvatann, dvelur í Þjóð­verjum, sam­hliða hryll­ingnum.

Óhugur og óhugs­andi spurn­ingar þjaka Þjóð­verja eftir að tvær skóla­stúlkur, tólf og þrettán ára, myrtu vin­konu sína, hina tólf ára gamla Luise. Þær höfðu áður verið staðnar að ein­elti í garð hennar, en eru of ungar til að telj­ast sak­hæfar.

Luise skil­aði sér ekki heim í borg­inni Freu­den­berg í Nordrein-Westfalen eft­ir­mið­dag­inn á laug­ar­dag­inn eftir að hafa leikið við vin­konu í næsta bæ. Þremur klukku­stundum síðar hringdu for­eldrar hennar á lög­regl­una, þar sem hún hefði átt að vera komin eftir þriggja kíló­metra heim­leið. Í kjöl­farið leit­uðu lög­reglu­menn með hunda og á þyrlum hennar þar til hún fannst dag­inn eftir í skóg­inum við hlið hjóla­stígs, í öfuga átt frá leið­inni heim. Hún reynd­ist vera með „fjöl­mörg stungu­sár“. Eins hræði­legt og atvikið virt­ist fyllt­ust Þjóð­verjar enn meiri hryll­ingi eftir að vin­kon­urnar tvær ját­uðu að hafa myrt Luise.

„Eftir meira en 40 ára þjón­ustu ger­ast ennþá atburðir sem gera mann orð­lausan,“ sagði Jürgen Süs, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn á svæð­inu, á blaða­manna­fundi í fyrra­dag. 

Sak­sókn­ar­inn í hér­að­inu, Mario Mannweiler, átti sömu­leiðis á sama frétta­manna­fundi erfitt með að lýsa mál­inu. „Málið er...“ sagði hann hik­andi, „málið er sér­stakt“. Það sem gerir til­fellið „slá­andi“ að sögn Mannweilers er sýni­lega að ger­end­urnir eru börn úr sama kunn­ingja­hópi og ill­skilj­an­legt til­efni árás­ar­innar. „Málið er ótrú­lega flókið, eins og fólk getur ímyndað sér. Og það sem er til­efni fyrir barni verður aldrei skilj­an­legt full­orðnum.“

Lög­reglan gefur ekki upp hver hvat­inn að morð­inu var.

Þýski mið­ill­inn Süddeutsche Zeitung hefur eftir Thomas Blies­ener, afbrota­fræð­ingi við Gött­ingen-háskóla, að ofbeld­is­verk barna séu oftar til­komin af til­finn­inga­legum ástæðum en hjá full­orðnum. „Ef þau eru móðguð getur það verið heimsendir fyrir sum þeirra og þau geta ekki ímyndað sér að þau kom­ist yfir það.“ Þannig geti börn skynjað ógn sem endi með ofbeldi. Í sjald­gæfum til­fellum geti gerst að börn, eða óþroskuð ung­menni, drepið af for­vitni. Að þau viti ekki að þau geti drepið með því, til dæmis, að stinga í háls­inn.

Börn undir 14 ára aldri eru ósak­hæf í Þýska­landi. Aðstæður stúlkn­anna eru þó til rann­sóknar, sem og kveikjan að árásinni. Farið getur svo að stúlk­urnar verði færðar í geð­hjúkr­un­ar­vist. „Það má gera ráð fyrir því að börnin séu í örygg­is­gæslu,“ segir Mannweiler sak­sókn­ari.

Það sem þykir einna hrylli­leg­ast við morðið er ill­skilj­an­leik­inn. Stúlk­urnar höfðu, sam­kvæmt fréttum þýska mið­ils­ins Bild, virst góðar vin­konur og hitt­ust gjarnan eft­ir­mið­daga eftir skóla. Eftir að hafa framið morðið fóru vin­kon­urnar tvær heim til ann­arrar vin­konu. Þar var önnur þeirra sótt til föður síns, en hin, sem Bild segir að hafi verið „besta vin­kona“ Luise, hringdi í for­eldra Luise og sagði að hún hefði þá lagt af stað þriggja kíló­metra leið­ina heim. Á spjall­svæðum á net­inu hafa aðilar sem þekkja til aðstæðna og deila myndum af þol­and­anum tjáð sig um málið. „Hún var besta vin­kona þín. Hvernig gastu þetta?“ skrif­aði einn net­not­andi. Þeirri spurn­ingu er enn ósvarað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár