Þrjú stór útgerðarfélög hafa fjárfest fyrir milljarða í laxeldi

Síld­ar­vinnslan, Skinney-Þinganes, Ísfélag Vest­manna­eyja og Hólmi ehf., fyr­ir­tæki sem eig­endur útgerð­ar­innar Eskju eiga, hafa öll keypt hluti í hér­lendum lax­eld­is­fyr­ir­tækjum á liðnum árum. Þetta er til­tölu­lega nýleg þróun þar sem útgerð­ar­fé­lögin íslensku áttu lengi vel ekki hlutafé í þessum fyr­ir­tækjum.

Þrjú stór útgerðarfélög hafa fjárfest fyrir milljarða í laxeldi
Fjár­fest­ingar útgerða í lax­eldi vekja athygli erlendis Fjár­fest­ingar íslenskra útgerða í lax­eld­is­fyr­ir­tækjum hér á landi eru byrj­aðar að vekja athygli erlendra fjöl­miðla sem fjalla um sjáv­ar­út­veg. Síðasta dæmið um þessa þróun eru kaup Ísfélags Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur á hluta­bréfum í Ice Fish Farm á Aust­fjörðum. Mynd: Bára Huld Beck

Að minnsta kosti fjögur útgerð­ar­tengd félög á Íslandi hafa fjár­fest í lax­eld­is­fyr­ir­tækjum hér á landi á síð­ustu árum. Þessi þróun, að rót­gróin útgerð­ar­fé­lög sem veiða villtan fisk í sjó, kaupi sig inn í lax­eld­is­fyr­ir­tækin á Íslandi er orðin það áber­andi að hún er byrjuð að vekja athygli erlendra fjöl­miðla.

Einn þess­ara fjöl­miðla er fag­tíma­ritið Intra­fish sem fjallar um kaup Ísfé­lags­ins í Vest­manna­eyjum á hluta­bréfum í lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Ice Fish Farm í gær undir fyr­ir­sögn­inni: „Annað íslenskt útgerð­ar­fé­lag fer inn í lax­eld­is­geir­ann með 60 mill­ljón doll­ara við­skiptum í Ice Fish Farm.“ 

Vöxturinn ástæða kaupanna

 Ísfé­lagið mun eiga 16 pró­senta hlut í Ice Fish Farm og verður næst stærsti hlut­haf­inn á eftir norska lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Masoval Ejendom. Fjár­fest­ing Ísfé­lags­ins, sem er í meiri­hluta­eigu Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur, er upp á 8,6 millj­arða króna.

„Við höfum í gegnum árin fylgst með þeim mikla vexti sem verið hefur í íslensku lax­eldi“
Einar Sig­urðs­son,
vara­for­maður stjórnar Ísfé­lags­ins

Í svörum Ísfé­lags­ins um af hverju fyr­ir­tækið ákveður að fjár­festa í lax­eldi í sjó­kvíum núna kemur fram að fyr­ir­tækið hafi fylgst með því hvernig fram­leiðslan í grein­inni hefur vaxið frá ári til árs, og að þetta væri ástæða kaupanna. Aukning á fram­leiðslu á eld­is­laxi í sjó­kvíum hefur verið 35 pró­sent á ári frá 2016 og nam 43 þús­und tonnum í fyrra. Í kaup­hall­ar­til­kynn­ingu í Noregi þar sem fjallað var um við­skipti Ísfé­lags­ins sagði Einar Sig­urðs­son, sonur Guð­bjargar og vara­for­maður stjórnar Ísfé­lags­ins um þetta:  „Við erum mjög ánægð að hefja þetta sam­starf og að taka þetta skref inn í lax­eld­is­iðn­að­inn á Íslandi. Við erum með langa hefð í sjáv­ar­út­vegi en við höfum í gegnum árin fylgst með þeim mikla vexti sem verið hefur í íslensku lax­eldi og við teljum að vöxt­ur­inn verði jafn og stöð­ugur í mörg ár í við­bót og skapa mörg störf og verð­mæti fyrir sam­fé­lögin í hinum dreifðu sjáv­ar­byggðum.“ 

Samþjöppun á eignarhaldi

Útgerð­ar­fé­lögin hafa komið inn í lax­eld­is­geir­ann með því að kaupa sig inn í norsku félögin sem eiga lax­eld­is­fyr­ir­tækin. Í dag, eftir sam­ein­ingar og stækk­anir íslenskra lax­eld­is­fyr­ir­tækja, standa eftir þrjú stór lax­eld­is­fyr­ir­tæki hér á landi: Arnarlax á Bíldudal, Arctic Fish á Ísafirði og Ice Fish Farm sem rekur sjó­kvíar á Aust­fjörðum. Í fyrra stóð meira að segja til að eig­andi Arnarlax, Salmar, eign­að­ist meiri­hluta í eig­anda Arctic Fish en fallið var frá þeirri ráð­stöfun vegna sam­keppn­is­sjón­ar­miða. Í stað­inn kom stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki í heimi, Mowi, inn í hlut­hafa­hóp Arctic Fish. 

Mikil sam­þjöppun hefur því átt sér stað í eign­ar­haldi á íslenskum lax­eld­is­fyr­ir­tækjum en verð­mætin á bak við þessi fyr­ir­tæki eru þau fram­leiðslu­leyfi á eld­is­laxi, kvótar, sem þau ráða yfir.  Und­ir­liggj­andi verð­mætin í lax­eld­is­fyr­ir­tækj­unum er því þau sömu og í útgerð­ar­fé­lög­unum sjálfum: Kvótar.  Íslenska ríkið hefur gefið lax­eld­is­fyr­ir­tækj­unum þennan kvóta en yfir­ráð yfir honum eru nú föl á mark­aði fyrir millj­arða króna. 

Arctic Fish hefur yfir að ráða 27 þús­und tonna fram­leiðslu­kvóta í lax­eldi hér á landi en er ekki byrjað að fram­leiða allt þetta magn. Arnarlax á tæp­lega 24 þús­und tonna kvóta og Ice Fish Farm á leyfi til að fram­leiða tæp­lega 21 þús­und tonn en er ekki byrjað að fram­leiða allan þennan lax. Öll fyr­ir­tækin eru að vinna að því að fá frek­ari fram­leiðslueyfi. Samtals er um að ræða 71.500 tonn af fram­leiðslu­leyfum. 

Íslensk útgerð­ar­fé­lög, og tengd félög, eru orðnir stórir hlut­hafar í öllum þessum þremur félögum.  Útgerð­ar­fé­lögin sem um ræðir eru Skinney-Þinganes á Höfn í Horna­firði, Síld­ar­vinnslan á Nes­kaups­stað, Ísfé­lagið í Vest­manna­eyjum og loks fyr­ir­tækið Hólmi ehf. sem er eign­ar­halds­fé­lag eig­enda Eskju á Eski­firði, Bjarkar Aðal­steins­dóttur og Þor­steins Krist­jáns­sonar. Hómi var reyndar bara pínu­lít­ill hlut­hafi í Ice Fish Farm árið 2021, með tæp 0,2 pró­sent, og virð­ist ekki vera meðal hlut­hafa þar lengur. 

Fjár­festu fyrst Skinney-Þinganes var fyrsta útgerð­ar­fé­lagið hér á landi sem fjár­festi í lax­eldi í sjó­kvíum. Þetta var árið 2017 þegar félagið eign­að­ist rúm­lega fimm pró­senta hlut í Löxum fisk­eldi.

Skinney reið fyrst á vaðið 

Á fyrstu rekstr­ar­árum lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna hér á landi, um og eftir efna­hags­hrunið árið 2008, gekk erf­ið­lega að fá fjár­festa að þeim. Eitt af fyr­ir­tækj­unum sem þá var í rekstri, Fjarða­lax, var til dæmis til sölu hjá Straumi fjár­fest­ing­ar­banka um skeið eftir að bank­inn hafði yfir­tekið félagið en erf­ið­lega gekk að finna nýja eig­endur að því. Það gekk hins vegar á end­anum og fyr­ir­tækið sam­ein­að­ist síðar Arn­ar­laxi og er hluti af því fyr­ir­tæki í dag.  Fjár­fest­ingin í Fjarða­laxi skil­aði þeim eig­endum sem fjár­festu í því verk­efni þegar áhugi á lax­eld­is­fyr­ir­tækjum var dæmur tals­verðum hagn­aði. Um var að ræða fyr­ir­tækið Fiski­sund ehf. sem er í eigu Einars Arnar Ólafs­sonar, Kára Guð­jóns­sonar og Höllu Sigrúnar Hjart­ar­dóttur. 

Því var alls ekk­ert kapp­hlaup um að setja pen­inga í lax­eldi í sjó­kvíum hér á landi fyrst enda höfðu fyrri til­raunir til að koma þess­ari fram­leiðslu­að­ferð á mat­fiski á kopp­inn runnið ítrekað út í sand­inn hér á landi. Þetta áhuga­leysi á lax­eldi í sjó­kvíum átti einnig við um íslensk útgerð­ar­fé­lög, jafn­vel þó rekstur þeirra og lax­eld­is­fyr­ir­tækja sé skyldur: Verið er að vinna mat­fisk í og úr sjó, ann­ars vegar með veiðum á villtum fiski og hins vegar með ræktun á eld­is­fiski. 

En svo árið 2017 gerð­ist það að útgerðin Skinney-Þinganes fjár­festi í rúm­lega fimm pró­senta hlut í fyr­ir­tæk­inu Löxum fisk­eldi á Aust­ur­landi. Skinney bætti svo við sig hlutum á næstu árum og á dótt­ur­fé­lag þess, Krossey ehf., nú rúm­lega 11 pró­senta hlut í félag­inu. 

Stærsta fjár­fest­ingin hingað tilKaup Síld­ar­vinnsl­unnar á ríf­lega þriðj­ungs­hlut í Arctic Fish á ísa­firði í fyrra er stærsta fjár­fest­ing íslensks útgerð­ar­fé­lags í lax­eldi hér á landi, hingað till. Gunnþór Ingvson er for­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar.

Tæpir 14 milljarðar fyrir hlutinn og 11 til Kýpur

Vegna þess að áhugi íslenskra fjár­festa á íslenskum lax­eld­is­fyr­ir­tækjum var ekki mik­ill fyrst um sinn gerð­ist það að erlend fyr­ir­tæki, aðal­lega norsk  lax­eld­is­fyr­ir­tæki, komu inn sem ráð­andi hlut­hafar í íslensku lax­eld­is­fyr­ir­tækin. Eitt af erlendu fyr­ir­tækj­unum var malt­verskt félag í eigu pólsks fjár­festis sem verið hefur dug­legur að setja fé í sjáv­ar­út­veg í Evrópu á síð­ustu ára­tugum. Jerzy Malek heitir hann. 

Félag pólska fjár­fest­is­ins átti tæp­lega 29 pró­sent hlut í Arctic Fish á Ísafirði sem almenn­ings­hluta­fé­lagið Síld­ar­vinnslan, sem útgerð­ar­fé­lagið Samherji er ráð­andi hlut­hafi í, keypti af  honum í fyrra­sumar. Samtals keypti Síld­ar­vinnslan 34,2 pró­senta hlut í Arctic Fish fyrir 13,7 millj­arða króna en útgerðin keypti einnig hluti af stjórn­endum Arctic Fish á þessum tíma. Um var að ræða stærstu fjár­fest­ingu íslensks útgerð­ar­fé­lags í sjó­kvía­eld­is­fyr­ir­tæki hingað til. Af þeim tæp­lega 14 millj­örðum sem Síld­ar­vinnslan greiddi fyrir hlut­inn runnu 11,5 millj­arðar því til félags Jerzy Malek á Möltu. 

Sjókvíaeldi sagt heyra sögunni til

Við­skipti Síld­ar­vinnsl­unnar voru áhuga­verð meðal ann­ars fyrir þær sakir að fyr­ir­tæki sem Samherji á stóran hlut í hafi ákveðið að setja í sjó­kvía­eldi. Samherji hefur um ára­bil rekið land­eldi á eld­is­laxi í Öxar­firði og hyggur á enn meira land­eldi á Reykja­nesi. Með þess­ari fjár­fest­ingu var Sam­herja­tengt félag í fyrsta skipti að fara inn í sjó­kvía­eldi. 

„Ef þessar líf­fræði­legu áskor­anir halda áfram þá mun brátt verða hag­kvæmara að fram­leiða lax í lok­uðum kerfum á landi“
Atle Eide,
fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Salmar AS

Ein ástæða fyrir því að þetta er áhuga­vert er að sumir af helstu for­kólfum lax­eldis í Noregi, meðal ann­ars Atle Eide, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Salmar AS sem er meiri­hluta­eig­andi Arnarlax, hafa lengi talað um það að sjó­kvía­eldi á eld­is­laxi sé ekki fram­tíðin. Atle Eide hefur sagt að árið 2030 muni lax­eldi í sjó­kvíum lík­lega heyra sög­unni til og aðrar lausnir, eins og til dæmis land­eldi, munu hafa komið í stað­inn. 

Atle Eide hefur sagt að þrátt fyrir að lax­eldi í sjó­kvíum hafi hingað til verið ódýr­ari fram­leiðslu­að­ferð á eld­is­laxi þá kunni þetta að vera að breyt­ast og að þetta sé önnur ástæða fyrir því af hverju sjó­kvía­eldi sé lík­lega á und­an­haldi. Í grein í sjáv­ar­út­veg­blað­inu intra­fish þann 8. mars sagði Eide til dæmis: „Fram­leiðslu­kostn­aður á laxi hefur auk­ist á hverju ári frá 2010, nema árið 2012, þegar það var örlítis lækkun. Árið 2022, sam­kvæmt fyrra mati, mun þessi kostn­aður ná nýjum hæðum. Ef þessar líf­fræði­legu áskor­anir halda áfram þá mun brátt verða hag­kvæmara að fram­leiða lax í lok­uðum kerfum á landi. Á hinum stóru mörk­uðum sem krefj­ast flutn­ings með flugi verður land­eldi einnig umhverf­is­vænni fram­leiðslu­að­ferð.“

Flest bendir því til þess að sjó­kvía­eldi á eld­is­laxi sé alls ekki komið til að vera sem fram­leiðslu­að­ferð til fram­tíðar. Samt eru Íslend­ingar að stór­auka lax­eldi sitt í sjó­kvíum og sam­tímis eru íslensk útgerð­ar­fé­lög í meiri  mæli en áður farin að fjár­festa í þessum iðn­aði. 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Íslenskir eða erlendir auðmenn...? Skiftir það máli ? Er ekki meginatriðið að þetta sé skattlagt og kostnaður greiddur svo þjóðin sem á landið, vatnið, sjóinn og orkuna .... fái sanngjarnan hluta ? Íslendingar þurfa ekki að fjárstyrkja beint eða óbeint íslenska eða erlenda auðmenn og auðhringi eða fjármálafyrirtæki... þau eru fullfær um að bjarga sér... með eða án tilliti til laga og reglna.

    Ekki svo að segja að það sé ekki satt að íslenskir ráðamenn sólunda eigum og tekjum þjóðarinnar í vinavæðingu, hobbýisma og persónulegar áherslur fyrir sig og sína skjólstæðinga og stuðningsmenn... en það er bara allt önnur spilling.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár