Rannsókn samkeppnisyfirvalda seinkar samruna laxeldisfyrirtækja á Vestfjörðum

Norska lax­eld­is­fyr­ir­tækið Salmar, eig­andi Arnarlax, segir að rann­sókn sam­keppn­is­yf­ir­valda muni seinka sam­runa þess og Norway Royal Salmon, stærsta hlut­hafa Arctic Fish á Ísafirði. Páll Gunnar Pálsson. for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, segir að yfir­lýs­ingar Salmar bendi til að fyr­ir­tækið hafi búist við að sam­run­inn fengi hrað­ari afgreiðslu hjá yfir­völdum.

Rannsókn samkeppnisyfirvalda seinkar samruna laxeldisfyrirtækja á Vestfjörðum
Rann­sóknir seinka sam­ein­ingu Rann­sóknir sam­keppn­is­yf­ir­valda á Íslandi og á vegum Evr­ópu­sam­bands­ins seinka sam­runa Salmar og Norway Royal Salmon. Páll Gunnar Pálsson er for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Mynd: Heida Helgadottir

Norska lax­eld­is­fyr­ir­tækið Salmar, eig­andi Arnarlax á Bíldudal, segir að sam­runi fyr­ir­tæk­is­ins við Norway Royal Salmon, eig­anda Arctic Fish á Ísafirði, muni tefj­ast þar sem það hafi tekið lengri tíma að afla sam­þykkis sam­keppn­is­yf­ir­valda fyrir sam­run­anum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Salmar til norsku kaup­hall­ar­innar í dag. Sam­run­inn er til rann­sóknar hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu á Íslandi sem og hjá fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins. Norsk sam­keppn­is­yf­ir­völd hafa sam­þykkt sam­run­ann fyrir sett leyti.

Í til­kynn­ing­unni segir: „Það ferli að fá nauð­syn­legt sam­þykki eft­ir­lits­að­ila fyrir sam­run­anum hefur tekið lengri tíma en upp­haf­lega var gert ráð fyrir þega sam­runa­á­ætl­unin var gerð. Af þessum ástæðum telur Salmar að félagið þurfi að boða til hlut­hafa­fundar til að lengja tíma­frest­inn sem félagið ætlar sér til að ganga frá sam­run­anum.“

Hefur áhrif á Íslandi

Umræddur sam­runi norsku félag­anna myndi leiða til þess að tvö stærstu lax­eld­is­fyr­ir­tæki Íslands yrðu í eiga sama aðila. Þetta myndi að öllum lík­indum leiða til sam­runa þeirra þar sem Salmar hefur talað um að veru­leg sam­legð­ar­á­hrif séu í rekstri fyr­ir­tækj­anna tveggja. Sam­an­lagt fram­leiða þessi tvö lax­eld­is­fyr­ir­tæki rúm­lega 50 pró­sent af þeim eld­is­laxi sem fram­leiddur er á Íslandi. Þetta gæti haft ýmis konar afleið­ingar í för með sér á Vest­fjörðum, meðal ann­ars fækkun starfa vegna sam­legð­ar­á­hrifa. 

Svipaðir frestir hjá báðum stofnunum

Í svörum til Stund­ar­innar segir Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, að stofn­unin sé ennþá með sam­run­ann til skoð­unar sín megin. „Eins og fram kom í frétt á heima­síðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins í síð­asta mán­uði er sam­run­inn til rann­sóknar hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu og hjá fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins.“

„Til­kynn­ingar til norsku kaup­hall­ar­innar gefa til kynna að sam­runa­að­ilar hafi gert ráð fyrir að rann­sókn sam­keppn­is­yf­ir­valda tæki skemmri tíma en reyndin er“
Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins

Páll Gunnar segir að rann­sóknin á sam­run­anum sé hins vegar styttra á veg kom­inn hjá fram­kvæmda­stjórn­inni: „Rann­sóknin er nú á svoköll­uðum II. fasa hér á landi, en er enn á I. fasa hjá fram­kvæmda­stjórn­inni, sbr. upp­lýs­ingar á heima­síðu hennar hér. Lög­bundnir tíma­frestir sam­keppn­is­yf­ir­vald­anna tveggja eru áþekkir. Ástæða þess að sam­run­inn var til­kynntur síðar til fram­kvæmda­stjórn­ar­innar var að ítar­legar for­við­ræður áttu sér stað milli sam­runa­að­ila og fram­kvæmda­stjórn­ar­innar. Til­kynn­ingar til norsku kaup­hall­ar­innar gefa til kynna að sam­runa­að­ilar hafi gert ráð fyrir að rann­sókn sam­keppn­is­yf­ir­valda tæki skemmri tíma en reyndin er.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu