Fyrrverandi formaður SFS keypti hlutabréf í laxeldisfyrirtæki viku áður en þau ruku upp við kaup Ísfélagsins

Aðstoð­ar­for­stjóri Ice Fish Farm, Jens Garðar Helgason, hefur keypt hluta­bréf í félag­inu og eru hags­munir hans og þess sam­tvinn­aðir. Síðustu kaup Jens Garðars áttu sér stað á þriðju­dag­inn í síð­ustu viku, rúmri viku áður en til­kynnt var um kaup Ísfélags Vest­manna­eyja á 16 pró­senta hlut í lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu. Jens Garðar hefur hagn­ast um rúma miljón á rúmri viku vegna þessa.

Fyrrverandi formaður SFS keypti hlutabréf í laxeldisfyrirtæki viku áður en þau ruku upp við kaup Ísfélagsins
Fjár­festir með eigin pen­ingum Mynd: Laxar

Aðstoð­ar­for­stjóri lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Ice Fish Farm ehf., Jens Garðar Helgason, á hluta­bréf í fyr­ir­tæk­inu sem eru rúm­lega 30 millj­óna króna virði. Ice Fish Farm er næst stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki á Íslandi og á það og rekur sjó­kvíar á Aust­ur­landi. Ice Fish Farm er sam­einað félag Laxa Fisk­eldis og Laxeldis Aust­fjarða. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá norska félag­inu Ice Fish Farm AS til norsku kaup­hall­ar­innar sem dag­sett er þann 2. mars síð­ast­lið­inn. 

Jens Garðar Helgason er fyrr­ver­andi for­maður stjórnar Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) og núver­andi stjórn­ar­maður í sam­tök­unum. Hann er einnig fyrr­ver­andi sveit­ar­stjórn­ar­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Fjarða­byggð á árunum 2006 til 2019. Jens Garðar fór hins vegar í leyfi sem sveit­ar­stjórn­ar­maður þegar hann hóf störf hjá Löxum fisk­eldi árið 2019, líkt og hann ræddi um í við­tali í fyrra. Hann ákvað að bjóða …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár