Katrín telur sig ekki þurfa að svara spurningum um laxeldisfrumvarp

Katrín Jak­obs­dóttir, for­seta­fram­bjóð­andi og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra þar til fyrir tæpum mán­uði síðan, telur sig ekki þurfa að svara spurn­ingum um mál sem hún kom að á Alþingi sem enn eru í vinnslu þar. Í fyrsta skipti er for­seta­fram­bjóð­andi í þeirri stöðu að þurfa mögu­lega að sam­þykkja eða synja lögum sem við­kom­andi kom að á þingi sem ráð­herra.

Katrín telur sig ekki þurfa að svara spurningum um laxeldisfrumvarp
Söguleg staða Staðan sem Katrín Jak­obs­dóttir for­seta­fram­bjóð­andi er í er sögu­leg þar sem sú staða getur komið upp að hún þurfi að sam­þykkja eða synja lögum sem hún kom sjálf að því að semja og leggja fram á Alþingi. Þetta á til dæmis við um frum­varpið um lax­eldi sem nú er til með­ferðar á Alþingi. Mynd: Golli

Katrín Jak­obs­dóttir, for­seta­fram­bjóð­andi og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, vill ekki tjá sig um laga­frum­varp um lax­eldi sem nú er til með­ferðar á Alþingi og hún kom að sem settur mat­væla­ráð­herra. Þetta kemur fram í svörum frá Katrínu við spurn­ingum Heim­ild­ar­innar um skoð­anir hennar á frum­varp­inu. Frum­varpið hefur vakið hörð við­brögð, ekki síst vegna þess að sam­kvæmt því eiga lax­eld­is­fyr­ir­tækin á Íslandi að fá ótíma­bundin leyfi til að stunda sjó­kvía­eldi hér á landi. Þrír mat­væla­ráð­herrar úr VG hafa komið að frum­varp­inu, Katrín, Svandís Svav­ars­dóttir og nú Bjarkey Gunn­ars­dóttir. 

Þegar frum­varp­inu var dreift á Alþingi í lok apríl eftir breyt­ingar sem gerðar voru á því í mat­væla­ráðu­neyt­inu var hún settur mat­væla­ráð­herra og kom hún per­sónu­lega að ákveðnum breyt­ingum sem gerðar voru á frum­varp­inu sam­kvæmt heim­ildum. Auk þess sat hún fundi sem mat­væla­ráð­herra þar sem rætt var …

Kjósa
86
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (9)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Ef Katrín Jak hefur ekki þegið mútur frá norskum/íslenskum auðkýfingum, þá tilheyrir Katrín hópi fólks sem í daglegu tali á meðal almennings eru kallaðir menntaðir vitleysingar, sem gerir Katrínu 100% vanhæfa til að gegna embætti forseta, af þessu tilefni að neita að svara fyrir fyrri störf sín, þá skora ég á Katrínu að draga framboð sitt til forseta til baka. Ps. Það er 100% bábilja að Katrín sé sósíalisti og er einfaldlega hlægileg fullyrðing.
    0
  • MG
    Magnús Guðmundsson skrifaði
    Konan er óspjölluð!!! Hrein!!
    0
  • Eiríkur Jónsson skrifaði
    Hún fetar í fótspor Ólafs Ragnars, - eyðir út úr minninu öllum afskiptum af flokkspólitík.
    0
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    "Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­setafram­bjóð­andi og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra þar til fyr­ir tæp­um mán­uði síð­an, tel­ur sig ekki þurfa að svara spurn­ing­um um mál sem hún kom að á Al­þingi sem enn eru í vinnslu þar."
    Og
    "Þegar frumvarpinu var dreift á Alþingi í lok apríl eftir breytingar sem gerðar voru á því í matvælaráðuneytinu var hún settur matvælaráðherra og kom hún persónulega að ákveðnum breytingum sem gerðar voru á frumvarpinu samkvæmt heimildum. "

    Ótímabundin rekstrarleifi til handa rekstrarhöfum í sjókvíaeldi gerðist á lokametrunum í anda gjafakvótakerfisns. Þetta segir allt um Katrínu. Henni er ekki treystandi.
    3
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Það sárvantar að stofna embætti til að vernda Náttúruna. Það gæti borið titilinn: Umboðsmaður Íslenskrar Náttúru.

    Svo þarf að innleiða lög gegn vistmorði (En: 'Ecocide'), hérlendis. Við yrðum með þeim fyrstu til að setja slík lög. Slík lög eru víða í undibúningi og munu raungerast, fyrr eða síðar. Við ættum að drífa í því að vera í fararbroddi með slíkri lagasetningu. Náttúran verður að vera í öndvegi, ALLTAF.
    5
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Svo virðist sem skrímsladeild Sjálfstæðisflokksins sé í heild sinni lögst á árar með Katrínu..

    Einhvern veginn verður íhaldið að launa henni fylgisspektina :-) :-) :-)
    18
  • BK
    Breki Karlsson skrifaði
    Þetta mál ætti að vera meira en nóg til að KJ ætti að draga framboð sitt til baka.
    27
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Ég liti persónulega á það sem samfélagslegt stórslys yrði KJ kjörin næsti forseti lýðveldisins. Hún er sérdeilis ótrúverðug, hefur ítrekað staðið að svikum við kjósendur og Náttúru landsins og í raun óhæf um að standa vörð um málskotsréttinn sökum beinna tengsla við löggjafann.
    20
  • HJB
    Henry Júlíus Bæringsson skrifaði
    Er í bullandi vandræðum,
    12
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár