1083. spurningaþraut: „Þrútið var loft og þungur sjór“

1083. spurningaþraut: „Þrútið var loft og þungur sjór“

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða fjór­menn­inga má sjá á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Einn fyrsti nafn­greindi gam­an­leikja­höf­undur heims­ins var uppi í Grikk­landi á 4. öld fyrir Krist. Hann skrif­aði til dæmis frægt grín­leik­rit um eitt fyrsta verk­fallið sem sögur fara af í heim­inum, hvort heldur í bók­menntum eða raun­veru­leik­anum. Hverjir eða hverjar fóru í hvernig verk­fall, og hver var til­gang­ur­inn með verk­fall­inu?

2.  En hvað hét grín­leikja­höf­und­ur­inn?

3.  Í hvaða heims­álfu er ríkið Malí?

4.  Karl Breta­kóngur end­ur­vakti nýlega tign­ar­heitið her­togi af Edinborg sem ekki hafði verið í notkun um skeið. Hver varð her­togi af Edinborg við þetta tæki­færi?

5. En hver var her­togi af Edinborg síð­ast?

6.  Eggert Ólafsson ferð­að­ist við annan mann um Ísland og skrif­uðu þeir síðan fræga Ferðabók sem er ein­stæð lýs­ing á nátt­úru lands­ins og lífs­háttum íbúa. En hvenær hófst ferða­lag þeirra tví­menn­inga? Var það 1452 — 1552 — 1652 — 1752 — eða 1852?

7.  Og meðal ann­arra orða, hvað hét ferða­fé­lagi Eggerts?

8.  Um dauða Eggerts Ólafs­sonar orti þjóð­skáld eitt frægt kvæði sem hefst svo: „Þrútið var loft og þungur sjór, / þoku­drungað vor. / Það var hann Eggert Ólafsson / sem ýtti frá kaldri ...“ Frá kaldri hvað?

9.  En hver orti þetta kvæði?

10.  Hvað heitir svæði það er íþrótta­fé­lagið Valur hefur aðsetur á í Reykja­vík?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða hlutur er hér á ferð?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Konur fóru í kyn­lífs­verk­fall og neit­uðu eig­in­mönnum sínum um kyn­mök nema þeir hættu stríðs­á­tökum.

2.  Aristófa­nes.

3.  Afríku.

4.  Ját­varður, Edward, bróðir Karls.

5.  Filippus faðir Karls.

6.  1752.

7.  Bjarni Pálsson.

8.  Skor.

9.  Matthías Jochumsson.

10.  Hlíð­ar­endi.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni eru Bítl­arnir.

Á neðri mynd­inni er eld­flaugin sem flutti Tinna til tungls­ins.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Á efri myndinni eru Bítlarnir."
    Með Member of the British Empire orðuna. Mörgum þótti þetta hneyksli á sínum tíma, sumir orðuhafar skiluðu sínum orðum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár