1082. spurningaþraut: Hér er, já, spurt um úrslit í tilteknum fótboltaleik

1082. spurningaþraut: Hér er, já, spurt um úrslit í tilteknum fótboltaleik

Fyrri auka­spurn­ing:

Þessi snotra kisa verður fimm­tug á næsta ári. Hvað kall­ast hún?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvernig er bíll Andrésar Andar á lit­inn?

2.  Hvaða ofur­hetja gætir helst að lögum og reglu í Gotham City?

3.  Vágar, Suðurey og Sandey eru hlutar af ... hverju?

4.  Lista­konan Hildur Hákon­ar­dóttir hefur feng­ist við sitt af hverju um ævina en þykir einkum og sér í lagi braut­ryðj­andi á einu sviði. Það er ... hvað?

5.  O'Shea Jackson Sr. heitir banda­rískur tón­list­ar­maður sem nú er rúm­lega fimm­tugur. 1988 átti hann þátt í plöt­unni Straight Outta Compton sem jók mjög vin­sældir hins svo­nefnda „gangsta rapps“ en nú hin seinni ár er hann þekkt­ari sem leik­ari, þar á meðal Three Kings frá 1999 með George Clooney og Mark Wahlberg. Hann er fyrst og fremst þekktur undir heldur kulda­legu lista­manns­nafni, sem er ... hvað?

6.  Hvernig end­aði sögu­legur leikur karla­liða Liverpool og Manchester United 5. mars síð­ast­lið­inn?

7.  Í ágúst 1958 sigldi banda­ríski kaf­bát­ur­inn USS Nautilus fyrstur allra skipa yfir ákveðið svæði, neð­an­sjávar auð­vitað. Hvaða svæði var það?

8.  Burtséð frá þess­ari sigl­ingu þá var ýmis­legt merki­legt við USS Nautilus. Hann var fyrsti kaf­bátur sinnar gerðar, það er að segja ... hvaða gerðar?

9.  Kaf­bát­ur­inn var skírður eftir kaf­bát í frægri skáld­sögu sem ... hver ... skrif­aði?

10.  Hvað eru margar teskeiðar í einni mat­skeið? (Þessi spurn­ing var fengin að láni hjá Gettu betur.)

***

Seinni auka­spurn­ing:

Skjald­ar­merki hvaða ríkis má sjá hér að neðan? Ég föndraði reyndar aðeins við það.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Rauður.

2.  Batman.

3.  Færeyjum.

4.  Vefnaður.

5.  Ice Cube.

6.  Liverpool vann 7-0.

7.  Norð­ur­skautið.

8.  Fyrsti kjarn­orkukaf­bát­ur­inn.

9.  Jules Verne.

10.  Þrjár — nema í Ástralíu en við erum ekki þar.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Hello Kitty.

Á neðri mynd­inni er skjald­ar­merki Bana­ríkj­anna. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár