1081. spurningaþraut: Hvað fer eiginlega fram á Sæmundargötu 21?!

1081. spurningaþraut: Hvað fer eiginlega fram á Sæmundargötu 21?!

Fyrri auka­spurn­ing:

Úr hvaða kvik­mynd frá 2021 er þetta skjá­skot?

Aukastig fyrir nafnið á leikkon­unni í rauðu káp­unni!

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Drauma­þjóf­ur­inn er söng­leikur sem nú er sýndur í Þjóð­leik­hús­inu. Leik­ur­inn er gerður eftir bók, og höf­undar leik­gerðar eru skráðir tveir. Ætla má að annar höf­und­ur­inn hafi fyrst og fremst séð um tón­list­ina en það er ... hver?

2.  Hinn höf­und­ur­inn er aftur á móti ... hver?

3.  Peppa heitir teikni­mynda­per­sóna sem mun stundum kölluð Gurra á íslensku. Hvernig dýr er Peppa eða Gurra?

4.  Hver er fjöl­menn­asta gata á Íslandi?

5.  Það ein­staka hús­númer sem flestir búa í er þó senni­lega Sæmund­ar­gata 21 í Vatns­mýr­inni í Reykja­vík en þar eru um 300 manns skráðir til heim­ilis. Hvað er í því húsi?

6.  Í röðum franskra lista­manna bar Charles-Camille Saint-Saëns nokkuð hátt á ofan­verðri 19. öld. Hvaða list­grein stund­aði hann?

7.  Annar franskur lista­maður, mun yngri,  heitir Michel Houellebecq. Hvað fæst hann við?

8.  Í skamm­lífri rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar 2017 voru þrír flokkar — Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, Viðreisn og ... hvaða flokkur?

9.  Viðreisn átti þrjá ráð­herra í stjórn­inni. Hver gegndu þeim störfum? Nefna þarf öll þrjú.

10.  Hver er afl­mesti foss á Íslandi?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Þor­valdur Bjarni.

2.  Björk Jak­obs­dóttir.

3.  Grís.

4.  Hraunbær.

5.  Stúd­enta­garðar.

6.  Tónlist, tón­smíðar.

7.  Ritstörf.

8.  Björt fram­tíð.

9.  Benedikt Jóhann­es­son, Þor­gerður Katrín og Þor­steinn Víglunds­son.

10.  Detti­foss.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efra skjá­skotið er úr mynd­inni Skjálfta. Leik­konan er Aníta Briem.

Neðri myndin er af Brigitte Bardot.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár