Viðbrögð ráðherra við ályktunum flokksmanna

Á flokks­ráðs­fundi Vinstri grænna kom fram skýr vilji til að hækka veiði­gjöld og ná fram breyt­ingum í útlend­inga­málum, umhverf­is­málum og sjáv­ar­út­vegs­málum. Katrín Jak­obs­dóttir, Guð­mundur Ingi Guð­brands­son og Svandís Svav­ars­dóttir, ráð­herrar Vinstri grænna í rík­is­stjórn, bregð­ast við álykt­unum flokks­manna.

Viðbrögð ráðherra við ályktunum flokksmanna
Hálend­is­þjóð­garður á dag­skrá næstu vetur For­sæt­is­ráð­herra seg­ist ekki eiga von á öðru en að hálend­is­þjóð­garður verði á dag­skrá næsta þing­vetrar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Flokks­ráðs­fundur Vinstri grænna var hald­inn þann 11. febr­úar síð­ast­lið­inn og ályktaði um hin ýmsu mál. Meðal mál­efna voru sjáv­ar­út­vegs­mál, umhverf­is­mál og útlend­inga­mál. Heim­ildin kann­aði við­brögð ráð­herra VG við álykt­unum félaga þeirra í flokknum. 

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður VG, seg­ist eins og aðrir kjörnir full­trúar VG alltaf hafa stefnu hreyf­ing­ar­innar að leið­ar­ljósi í sínum störfum og sömu­leiðis áherslur sem birt­ast í álykt­unum funda hennar. Hún muni halda því verk­lagi hvað varðar allar þær álykt­anir sem fjalla um mik­il­væg mál­efni og vinna hér eftir sem hingað til að því að koma þeim í far­veg í sam­vinnu við ráð­herra við­kom­andi mála­flokka.

Vilja þverpólitískt samráð í útlendingamálum

Í ályktun um útlend­inga­mál fagnar flokks­ráðs­fundur VG því að heild­ar­stefnu­mótun í mál­efnum inn­flytj­enda sé hafin. „Mik­il­vægt er að henni verði flýtt og að henni lok­inni verði skoð­aðar breyt­ingar á lög­gjöf um útlend­inga og lög­gjöf um mál­efni inn­flytj­enda. Skal sú vinna fara fram í …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Arndís Gunnarsdóttir skrifaði
    Áfram heldur þetta bull um að VG ætli að gera einhverjar breytingar á útlendingamálinu í nefndinni. Engar slíkar tillögur hafa verið lagðar fram af þeirra hálfu og engin umræða um neitt slíkt í nefndinni. Það er alveg ljóst að þingmenn og ráðherrar VG hafa haldið þessu fram til þess að friða sína grasrót og kjósendur svo hægt sé að afgreiða þennan viðbjóð frá þinginu með sem minnstu ónæði frá þeim.
    1
  • MÁ
    Margrét Ásgeirsdóttir skrifaði
    Fínar ályktanir en hvað svo? Ekkert um lífskjör fólks og framfærsluviðmið?
    1
  • Eysteinn Gunnarsson skrifaði
    Hver eru rökin fyrir því að setja ekki allan fisk á markað?? Þá fengist kanski markaðsverð fyrir fiskinn þar sem kaupendur bjóða í aflan. Raunverð væri þá sýnilegt öllum sem vilja.
    2
  • Gísli Sváfnisson skrifaði
    VG-ráðherrar eru sem sagt hér að teygja ,,nefnda-lopann". Engar ákvarðanir verða teknar á kjörtímabili þessarar stjórnar hvað varðar stefnumál VG. X-d vill engar breytingar aðeins kyrrstöðu spillingarinnar, hert útlendingalög, rafbyssur og bankasölur.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár