Þýska sementsfyrirtækið segir að tekjur sveitarfélagsins muni aukast um 22 til 35 prósent

End­ur­skoð­enda­fyr­ir­tækið KPMG vann skýrslu um mögu­leg efna­hags­leg áhrif möl­un­ar­verk­smiðju þýska sem­ents­fyr­ir­tæk­is­ins Heidel­berg í Þor­láks­höfn. 60 til 70 störf munu skap­ast, hafn­ar­gjöld verða allt að rúm­lega 500 millj­ónir og fast­eigna­gjöld munu nema rúmum 100 millj­ónum hið minnsta. Bygging verk­smiðj­unnar er umdeild í sveit­ar­fé­lag­inu en Heidel­berg boðar nýjar hug­myndir og mögu­leika.

Þýska sementsfyrirtækið segir að tekjur sveitarfélagsins muni aukast um 22 til 35 prósent
Birta upp­lýs­ingar um efna­hags­leg áhrif Þýska sem­ents­fyr­ir­tækið Heidel­berg hefur birt upp­lýs­ingar úr skýrslu end­ur­skoð­enda­fyr­ir­tæk­is­ins KPMG um efna­hags­leg áhrif af fyr­ir­hug­aðri möl­un­ar­verk­smiðju í Þor­láks­höfn. Fram­kvæmdin er umdeild í bænum og voru ríf­lega tvö­falt fleiri á móti verk­smiðj­unni en voru fylgj­andi henni, sam­kvæmt könnun í síð­ustu viku.

Bæj­ar­yf­ir­völd í Þor­láks­höfn munu fá á bil­inu 327 til 547 millj­ónir króna í gjöld frá þýska sem­ents­fyr­ir­tæk­inu Heidel­berg fyrir afnot af höfn­inni í bænum ef bygg­ing möl­un­ar­verk­smiðju fyr­ir­tæk­is­ins verður að veru­leika. Þá er gert ráð fyrir því að á milli 60 og 70 störf skap­ist með til­komu verk­smiðj­unnar og að fast­eigna­gjöld sem Heidel­berg greiðir til sveit­ar­fé­lags­ins verði á bil­inu 100 til 125 millj­ónir króna. Þetta er meðal þeirra nið­ur­staðna sem fram koma í mati end­ur­skoð­enda­fyr­ir­tæk­is­ins KPMG á efna­hags­legum áhrifum verk­smiðju Heidel­berg í Þor­láks­höfn. Matið var unnið fyrir hönd Heidel­berg og kynnti þýska félagið það í gær. 

Þor­steinn Víglunds­son, fyrr­ver­andi ráð­herra og tals­maður Heidel­berg, skrif­aði grein á vef­mið­il­inn Hafn­ar­fréttir þar sem hann greindi frá meg­in­nið­ur­stöðum KPMG. Í grein­ingu KPMG segir að til­gangur skýrsl­unnar sé ein­göngu að greina efna­hags­lega þætti fram­kvæmd­ar­innar: „Markmið þess­arar sam­an­tektar er að greina og varpa ljósi á mögu­leg efna­hags­leg áhrif af bygg­ingu og rekstri möl­un­ar­verk­smiðju í Þor­láks­höfn sem fyr­ir­huguð er á vegum HeidelbergCement Pozzolanic ehf.“

Í versmiðj­unni stendur til að mala móberg úr námum í nágrenni Þor­láks­hafnar sem nota á í sem­ent. Heidel­berg ætlar að vinna um 1,5 til 2,5 af móbergs­muln­ingi með þessum hætti árlega og flytja úr landi. 

„Þannig má ætla að heild­ar­tekjur sveit­ar­fé­lags­ins af starf­sem­inni verði á bil­inu 489-789 m.kr. á ári.“
Úr skýrslu KPMG

Heidelberg þarf að snúa íbúum Ölfuss

Bygging verk­smiðj­unnar er umdeild í sveit­ar­fé­lag­inu og eru ríf­lega tvö­falt fleiri á móti henni en eru fylgj­andi fram­kvæmd­inin. Frá þess­ari greindi Heim­ildin í síð­ustu viku og byggði hún á við­horfskönnun sem Maskína vann fyrir blaðið. Einn af bæj­ar­bú­unum sem berst gegn verk­smiðj­unni er Ása Berglind Hjálm­ars­dóttir sem hefur sagt við Heim­ild­ina að hún vilji ekki að Þor­láks­höfn verði verk­smiðju­bær. 

Heidel­berg bíður því það verk að reyna að breyta fyr­ir­hug­uðum fram­kvæmdum við verk­smiðj­una þannig að hún hugn­ist íbúum Ölfuss betur þar sem fyrir liggur að verk­smiðjan verður sett í íbúa­kosn­ingu í sveit­ar­fé­lag­inu. Nið­ur­stöðu mats KPMG fyrir Heidel­berg kemur í kjöl­farið á þess­ari við­horfskönnun. 

Segja tekjur  Ölfuss verða á bilinu 500 til 800 milljónir

Í nið­ur­stöðum KPMG kemur fram að áætl­aðar tekjur sveit­ar­fé­lags­ins af verk­smiðj­unni verði á bil­inu 500 til 800 millj­ónir króna á ári.

Áætla mörg hund­ruð millj­óna króna tekjurKPMG áætlar að tekjur sveit­ar­fé­lags­ins Ölfuss af möl­un­ar­verk­smiðj­unni í Þor­láks­hhöfn verði milli tæp­lega 500 og 800 millj­óna árlega. Þetta er ein af nið­ur­stöð­un­unum úr mati sem unnið var fyrir Heidel­berg.

Á nið­ur­stöð­uglæru um áætl­aðar tekjur sveit­ar­fé­lags­ins segir um þetta: „Taflan hér til hliðar dregur saman helstu tekju­liði Ölfuss af fyr­ir­hug­uðu verk­efni. Útreikn­ingar er settir fram miðað við þrjár sviðs­myndir sem byggðar eru á lægri, mið og hærri mörkum tekju­lið­anna sam­kvæmt fyrr­greindum for­sendum. Þannig má ætla að heild­ar­tekjur sveit­ar­fé­lags­ins af starf­sem­inni verði á bil­inu 489-789 m.kr. á ári, sem sam­svarar 22-35% aukn­ingu tekna ef miðað er við sömu tekju­liði árið 2021.“

Heildelberg íhugar að flytja verksmiðjuna

Heidel­berg hefur einnig kynnt hug­myndir um að færa verk­smiðj­una út fyrir Þor­láks­höfn og koma henni fyrir vestan við bæinn. Andstaða bæj­ar­búa í Þor­láks­höfn bygg­ist meðal ann­ars á því að verk­smiðjan á að vera inni í bænum. 

Þá hefur þýska félagið einnig sagt að mögu­lega muni það reisa nýja höfn við verk­smiðj­una fyrir utan bæinn og að þannig muni félagið ekki þurfa að nota höfn­ina í Þor­láks­höfn til að flytja út móbergið. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðefnaiðnaður í Ölfusi

Velgjörðarmenn Elliða hafa bæði hagsmuni af námum í sjó og á landi
SkýringJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Vel­gjörð­ar­menn Elliða hafa bæði hags­muni af námum í sjó og á landi

Einar Sig­urðs­son og Hrólfur Ölvisson námu­fjár­festar hafa fjöl­þættra hags­muna að gæta af því að möl­un­ar­verk­smiðja Heidel­berg rísi í Ölfusi og að fyr­ir­tækið fái að vinna efni af hafs­botni við Land­eyjar. Elliði Vign­is­son segir til­gátur um hags­muna­á­rekstra tengda námu­fjár­fest­unum langsóttar. Harðar deilur eru um verk­smiðj­una og efn­is­tök­una.
Stóriðja og landeldi takast á í eitruðu andrumslofti í Ölfusi
SkýringJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Stóriðja og land­eldi takast á í eitr­uðu andrums­lofti í Ölfusi

Miklar deilur eru komnar upp í við­skipta- og stjórn­mála­líf­inu í sveit­ar­fé­lag­inu Ölfusi um möl­un­ar­verk­smiðju þýska fyr­ir­tæk­is­ins Heidel­berg. Íbúa­kosn­ingu um möl­un­ar­verk­smiðj­una hefur verið frestað vegna gagn­rýni frá land­eld­is­fyr­ir­tæk­inu First Water sem telur verk­smiðj­una skað­lega fyrir starf­semi þess.
Heidelberg reyndi að beita Hafró þrýstingi fyrir opinn íbúafund í Ölfusi
FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Heidel­berg reyndi að beita Hafró þrýst­ingi fyrir opinn íbúa­fund í Ölfusi

Lög­manns­stofan Logos sendi tölvu­póst fyrir hönd Heidel­berg með beiðni um að starfs­maður Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar tæki ekki þátt í opnum íbúa­fundi í Ölfusi. Starfs­mað­ur­inn hafði unnið rann­sókn um áhrif námu­vinnslu fyr­ir­tæk­is­ins á fiski­mið og hrygn­ing­ar­svæði nytja­stofna úti fyrir strönd Ölfuss. Skylda Hafró að upp­lýsa almenn­ing segir for­stjór­inn.
Hafró gagnrýnir „fordæmalausa framkvæmd“ Heidelberg í Ölfusi
FréttirJarðefnaiðnaður í Ölfusi

Hafró gagn­rýnir „for­dæma­lausa fram­kvæmd“ Heidel­berg í Ölfusi

Haf­rann­sókn­ar­stofnun hefur skrifað gagn­rýna umsögn um fyr­ir­hug­aða efn­is­töku þýska sem­ents­fyr­ir­tæk­is­ins Heidel­berg í Ölfusi. Fyr­ir­tækið ætlar að taka tæp 12 þús­und tonn af efni á dag, eða sem nemur 358 ful­lest­uðum flutn­inga­bílum, af hafs­botni. Hafró telur fram­kvæmd­ina geta haft slæm áhrif á fiski­stofna sem hrygna á svæð­inu og að efn­istakan geti breytt strand­lengj­unni til fram­búðar.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár