Segja útlendingafrumvarpið skila „ómannúðlegra og óskilvirkara kerfi“

Umdeilt útlend­inga­frum­varp Jóns Gunn­ars­sonar er nú til umfjöll­unar á Alþingi. Rauði kross­inn telur að verði það sam­þykkt geti „afar við­kvæmir ein­stak­lingar fallið á milli og farið á mis við rétt­indi sín.“

Segja útlendingafrumvarpið skila „ómannúðlegra og óskilvirkara kerfi“
Ráðherra Frumvarp Jóns Gunn­ars­sonar um breyt­ingar á útlend­inga­lög­unum er til áfram­hald­andi umræðu á Alþingi í dag. Þegar eru tólf þing­menn á mæl­enda­skrá. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Rauði kross­inn telur að þær breyt­ingar sem útlend­inga­frum­varp Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra feli í sér muni skila sér í „ómann­úð­legra og óskil­virkara kerfi þegar á botn­inn er hvolft.“ Hann gagn­rýnir skort á sam­ráði og sam­tali við aðila sem starfa við mála­flokk flótta­fólks sem hafi sér­þekk­ingu og reynslu á þessu sviði. Í þeim breyt­ing­ar­til­lögum sem séu fyr­ir­liggj­andi sé þess í stað litið fram­hjá varn­ar­orðum fjöl­margra umsagn­ar­að­ila. „Telur félagið mik­il­vægt að laga­breyt­ingar sem þessar séu unnar í þver­fag­legu sam­ráði, til þess að skapa sátt um stefnu og lagaum­hverfi í mál­efnum umsækj­enda um alþjóð­lega vernd.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í skrif­legum svörum Rauða kross­ins til alls­herjar- og mennta­mála­nefndar vegna athuga­semda dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyrri umsögn félags­ins um frum­varpið. 

Mun fjölga heimilislausum

Umsækj­endur um alþjóð­lega vernd njóta marg­vís­legrar þjón­ustu á meðan mál þeirra eru til með­ferðar hjá stjórn­völd­um, svo sem hús­næð­is, fram­færslu og ann­arrar grunn­þjón­ustu. Í grunn­þjón­ustu felst m.a. heil­brigð­is­þjón­usta, þar á meðal vegna and­legra veik­inda, tann­lækna­þjón­usta og grunn­skóla- og leik­skóla­ganga fyrir börn.

Í frum­varp­inu sem nú er til umfjöll­unar á þingi, og stjórn­ar­flokk­arnir leggja mikla áherslu á að verði sam­þykkt, eru meðal ann­ars lagðar til breyt­ingar á er lúta að því að skýra frekar þau rétt­indi sem útlend­ing­um, sem lögum sam­kvæmt ber að fara af landi brott, stendur til boða og þær breyt­ingar sagðar í sam­ræmi við lög­gjöf og fram­kvæmd ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­um.

Helsta breyt­ingin er sú að ný meg­in­regla er lögð til. Í henni felst að útlend­ingur sem fengið hefur end­an­lega synjun á umsókn sinni um alþjóð­lega vernd njóti áfram allra þeirra rétt­inda sem lögin kveða á um þar til hann hefur farið af landi brott en að hámarki í 30 daga frá því ákvörðun verður end­an­leg á stjórn­sýslu­stig­i. 

Frá þeim tíma­fresti eiga öll rétt­indi niður að falla nið­ur, með nokkrum til­greindum und­an­tekn­ingum sem varða per­sónu­lega eig­in­leika eða „sér­stakar aðstæður“ sem taka þarf til­lit til. 

Sam­band íslenskra sveit­ar­fé­laga sagði í umsögn sinni um frum­varpið að myndi fjölga heim­il­is­lausum á Íslandi.

Viðkvæmir gætu fallið á milli

Í svörum sínum til nefnd­ar­innar segir Rauði kross­inn að það sé skoðun hans að hug­tökin um „við­kvæma stöðu" ann­ars vegar og „sér­stakar aðstæður" hins vegar séu sam­tengd. „Hingað til, og að öllum lík­indum héðan af, hefur það verið nauð­syn­legt fyrir umsækj­endur að leggja fram gögn frá íslenskum heil­brigð­is­yf­ir­völdum, t.d. læknum og sál­fræð­ingum, til þess að sýna fram á „sér­stakar ástæður“. Afar óal­gengt er að íslensk útlend­inga­yf­ir­völd taki orð umsækj­anda fyrir því að „sér­stakar ástæður" séu uppi í máli hans og því þarf að styðja þá full­yrð­ingu gögnum. Að mati Rauða kross­ins er þessi mikla aðgrein­ing á hug­tök­unum því aðeins til þess að flækja og tor­velda máls­með­ferð­ina og sé mikil hætta á að eitt­hvað falli á milli með því að aðskilja hug­tökin og matið á þeim með þessum hætti.“

Þar segir einnig að félagið hafi áhyggjur af þessu sama atriði varð­andi þær und­an­þágur sem fyrir liggja varð­andi þjón­ustu­svipt­ingu eftir 30 daga, ef aðstæður eru þannig að mat á aðstæðum fólks sé ekki nægi­lega vandað. „Því geti afar við­kvæmir ein­stak­lingar fallið á milli og farið á mis við rétt­indi sín.“

Of mikil áhersla á skilvirkni

Rauði kross­inn segir einnig að hann hafi um ára­bil and­mælt þreng­ingum  á rétt­indum umsækj­enda um alþjóð­lega vernd, þar með talið á stjórn­sýslu­lögum. Hann telji mik­il­vægt að „leik­reglur stjórn­sýsl­unnar“ sem birt­ist í máls­með­ferð­ar­reglum stjórn­sýslu­laga hafi það mark­mið að stuðla að og standa vörð um rétt­indi borg­ar­anna gagn­vart stjórn­völdum og því „eðli­legt að ber­skjald­aðir hópar og þeir sem hvorki tala tungu­málið eða þekkja stjórn­sýsl­una í það minnsta að hljóta sömu rétt­indi og aðrir í íslensku sam­fé­lagi - en ekki lak­ari rétt.“

Vís­bend­ingar séu um það í frum­varp­inu að skil­virkni sé meg­in­mark­mið þess, á kostnað mann­úðar. „Jafnvel þó tekið sé fram að skil­virkni sé við­höfð án rétt­ar­skerð­ingar er ljóst að verið er að þrengja að rétt­indum umsækj­enda um alþjóð­lega vernd, umfram íslenska rík­is­borg­ara og aðra sem kunna að bera mál sín undir stjórn­völd, og því telur félagið að hér sé áherslan á skil­virkni of mikil og sann­ar­lega á kostnað vand­aðrar máls­með­ferðar.“

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár