Minkarnir snúa aftur

Margir spáðu að danskt minka­eldi heyrði sög­unni til eftir að öllum minka­stofn­inum var slátrað haustið 2020. Margir bændur lögðu árar í bát, en upp­gjöri við þá er langt í frá lokið. Nú hefur minka­eldi verið heim­ilað á ný og fyrstu dýrin komin til Dan­merkur.

Minkarnir snúa aftur
Minkar Millj­ónum minka var lógað í dönskum minka­búum á meðan að á kór­ónu­veiru­far­aldr­inum stóð. Mynd: EPA

Minka­málið svo­nefnda er eitt stærsta frétta­mál á síð­ari árum í Danmörku. Sömu­leiðis var, og er, málið mjög umdeilt á hinum póli­tíska vett­vangi. Þar kemur margt til: Fyr­ir­skip­unin um að minka­stofn­inum skyldi lógað byggði ekki á laga­heim­ild, fram­kvæmdin við eyð­ingu hræj­anna, hlut­verk lög­reglu og ráð­herra, ábyrgð á ákvörð­un­inni, deilur um bætur til bænda og fleira mætti nefna.

Danskir fjöl­miðlar hafa kallað 4. nóv­em­ber árið 2020 örlaga­dag. Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra hafði boðað til frétta­manna­fundar þennan dag og fjöl­miðlar höfðu fengið veður af að búast mætti við miklum tíð­indum. Við eðli­legar aðstæður hefði frétta­manna­sal­ur­inn í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu lík­lega verið þétt­set­inn. En aðstæður voru fjarri því að telj­ast eðli­legar, kór­óna­veiran hafði farið eins og eldur í sinu um Danmörku, eins og fjöl­mörg önnur lönd, fyrr á árinu. Frétta­manna­fundur for­sæt­is­ráð­herra var hald­inn á net­inu, kór­ónu­veiran var komin á Krist­jáns­borg og lagst á þing­menn og ráð­herra. Lyfja­fram­leið­endur keppt­ust við að þróa bólu­efni sem ekki var komið á mark­að­inn þegar þarna var komið.

Fyrstu smitin

Á 17. júní, þjóð­há­tíð­ar­degi okkar Íslend­inga, greind­ist kór­óna­veiran í fyrsta skipti í minkum á Norður-Jótlandi. Yfirvöld fyr­ir­skip­uðu þegar í stað að öllum dýrum á við­kom­andi búi skyldi lógað þegar í stað. Minkar eru sér­lega við­kvæmir fyrir hvers kyns veirum og talið víst að fyrst veiran hefði fund­ist á einu minka­búi væri nær öruggt að hún bær­ist í önnur bú. Það stóð heim, nokkrum dögum síðar var veiran komin í bú á Vestur-Jótlandi.

Strax í dag

Á áður­nefndum net­frétta­manna­fundi 4. Nóvember 2020, til­kynnti danski for­sæt­is­ráð­herr­ann að allur minka­stofn á öllum búum lands­ins, sem voru rúm­lega þús­und tals­ins, skyldi sleg­inn af. Ráð­herr­ann sagði að sam­tals væri um að ræða 17 milljón dýr (síðar kom í ljós sú tala var nær 15 millj­ónum). Ástæðuna fyrir þess­ari ákvörðun sagði ráð­herr­ann þá að nýtt afbrigði veirunnar hefði greinst í minkum og einnig fólki á Norður-Jótlandi. Mikil hætta væri á að veiran færi um alla Danmörku og þess vegna væri nauð­syn­legt að ráð­ast strax í að fella minka­stofn­inn ,,strax í dag“.

Daginn eftir hélt Mette Frederik­sen annan frétta­manna­fund. Þar til­kynnti hún að allar ferðir til og frá Norður-Jótlandi yrðu bann­aðar, nema mjög brýna nauð­syn bæri til, sam­komu­hald bannað, kaffi­hús og mat­sölu­stöðum skyldi lokað, sömu­leiðis bóka­söfnum og íþrótta­húsum. Einungis yngstu börn mættu mæta í skól­ann, önnur yrðu heima. ,,Við skellum Norður- Jótlandi í lás“ sagði Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra.

Mette Frederik­senFor­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur.

Óðagot

Þegar ákvörð­unin um að slá minka­stofn­inn af var tekin höfðu vaknað efa­semdir um hvort sú fyr­ir­skipun stydd­ist við lög. Í ljós kom að svo var ekki og Mogens Jensen mat­væla- og land­bún­að­ar­ráð­herra varð marg­saga í mál­inu og sagði á end­anum af sér. Lögin sem heim­il­uðu fyr­ir­skip­un­ina voru svo sett eft­irá, í miklum flýti. Lög­reglan fékk það hlut­verk að hafa sam­band við bændur og til­kynna þeim að lóga skyldi öllum minkum.

Á leið­bein­inga­blaði, sem lög­reglan fékk, stóð að ef bændur neit­uðu að hlýða skip­un­inni yrði dýr­unum eigi að síður lógað en bændur fengju þá ekki til­tek­inn bónus. Bændur upp­lifðu þetta sem hótun. Danskir fjöl­miðlar sögðu allt málið ein­kenn­ast af óða­goti.

Klúðrið með urðunina

Hratt og vel gekk að lóga mink­unum. Varðandi hræin voru tveir mögu­leikar: að urða eða brenna. Talið var að sorp­brennslur gætu ekki tekið á móti hræj­unum og því ákveðið að þau skyldu urðuð. Ekki reynd­ist auð­velt að finna urð­un­ar­staði og þótt það tæk­ist að lokum var ekki öll sagan sögð. Skurðir sem grafnir voru og hræj­unum sturtað í reynd­ust allt of grunnir og jarð­veg­ur­inn sem mokað var yfir tók að lyft­ast eftir nokkra daga. Í ljós kom að gas­myndun í hræj­unum var orsökin. Þegar þarna var komið var hins vegar ljóst að sorp­brennslur gátu vel tekið á móti hræj­unum sem á end­anum voru öll grafin upp og brennd. Þessu fylgdi mik­ill kostn­aður.

Minka­málið var dag eftir dag helsta frétta­efni danskra fjöl­miðla.

Þingmenn kröfðust rannsókna

Með ákvörð­un­inni um að allur minka­stofn í Danmörku skyldi sleg­inn af var fót­unum í einu vet­fangi kippt undan heilli atvinnu­grein. Spurn­ing­arnar sem þing­menn vildu fá svör við voru margar. Fyrst og fremst þó hvernig það hefði gengið fyrir sig þegar ákveðið var að fella minka­stofn­inn, hver hefði tekið ákvörð­un­ina og á hvaða for­sendum. Pen­inga­hliðin var líka mikið til umræðu í þing­inu enda ljóst að tjón bænda og skinna­iðn­að­ar­ins í Danmörku væri mikið, skipti millj­arða­tugum danskra króna. Þingmenn vildu líka að þáttur lög­regl­unnar yrði rann­sak­aður sér­stak­lega.

23. apríl 2021 ákvað danska þingið, Fol­ket­inget, að skipa sér­staka rann­sókn­ar­nefnd, Minkkommission.

Margt athugavert

Minka­rann­sókn­ar­nefndin skil­aði skýrslu sinni 30. júní 2022. Nefndin lagði í vinnu sinni mat á þrennt: ráð­staf­anir ein­stakra stofn­ana, aðgerðir ráð­herra sem í hlut áttu og þátt emb­ætt­is­manna. Varðandi stofn­an­irnar var það mat nefnd­ar­innar að upp­lýs­ingar til minka­bænda og almenn­ings hefðu verið alls ófull­nægj­andi, og mis­vísandi. Aðgerðir og yfir­lýs­ingar ráð­herra og emb­ætt­is­manna hefðu verið ámæl­is­verðar. Um emb­ætt­is­menn­ina segir að þeir hafi gerst sekir um alvar­legar yfir­sjónir, svo alvar­legar að stjórn­völd gætu dregið þá til ábyrgðar vegna brota á sann­leiks­skyld­unni og lög­mæt­is­reglu. Þetta síð­ast­nefnda vísar til ólög­mætra ákvarð­ana vegna skorts á laga­heim­ildum.

Varðandi ráð­herrana treystir rann­sókn­ar­nefndin sér ekki til að full­yrða að þeir hafi verið upp­lýstir um þau laga­legu vand­kvæði sem tengd­ust ákvörð­unum sem ráð­herr­arnir tóku. Það kæmi í hlut þings­ins að meta hvaða við­ur­lögum, ef ein­hverjum, skyldi beitt. Þá kæmi tvennt til greina ,,gagn­rýni þings­ins“ (kallað næse) eða í versta falli mál fyrir rík­is­rétti.

Meiri­hluti stjórn­skip­un­ar­nefndar þings­ins íhug­aði hvort stefna ætti for­sæt­is­ráð­herra fyrir rík­is­rétt en af því varð ekki.

Radikale Venstre, einn stuðn­ings­flokka stjórn­ar­innar á þessum tíma krafð­ist þess að að Mette Frederik­sen myndi boða til kosn­inga áður en þingið kæmi saman í októ­ber­byrjun í fyrra (2022), ella yrði borin fram van­traust­s­til­laga á stjórn­ina, sem ljóst var að yrði sam­þykkt. Kosn­ingar fóru fram 1. nóv­em­ber, að þeim loknum mynd­uðu jafn­að­ar­menn undir for­ystu Mette Frederik­sen stjórn með Venstre og Modera­terne.

Utan­rík­is­ráð­herraLars Lökke Rasmus­sen gagn­rýndi emb­ætt­is­færslur Mette Frederik­sen í minka­mál­inu harð­lega fyrir kosn­ingar. Svo mynd­aði hann rík­is­stjórn með henni.

Fyrir kosn­ingar hafði Jakob Ellemann-Jensen for­maður Venstre marg­sinnis sagt að ekki kæmi til greina að taka sæti í stjórn undir for­ystu Mette Frederik­sen og Lars Løkke Rasmus­sen for­maður Modera­terne sagði það ófrá­víkj­an­lega kröfu að á vegum þings­ins færi fram rann­sókn á emb­ætt­is­færslum Mette Frederik­sen í minka­mál­inu. Þessar yfir­lýs­ingar gleymd­ust þegar hillti undir hugs­an­lega ráð­herra­stóla ,,þau eru mjúk leð­ur­sætin í ráð­herra­bíl­unum“ sagði stjórn­mála­skýr­andi Berl­ingske.

Gengur hægt með bæturnar

Þegar for­sæt­is­ráð­herra til­kynnti 4. nóv­em­ber 2020 að allur minka­stofn­inn skyldi sleg­inn af var jafn­framt til­kynnt að minka­bændur fengju bætur. Sér­stakar reglur skyldu settar í þeim efnum. Þar var í mörg horn að líta, meta þurfti húsa­kost, stærð bús­ins, skulda­stöðu og fleira og fleira. Margir bændur lýstu því yfir að þeir myndu ekki byrja aftur þótt það yrði heim­ilað. Aðrir ósk­uðu eftir svo­kall­aðri bið­stöðu, sem þýddi að halda mögu­leika á að byrja aftur, opnum. Í jan­úar 2021 töldu stjórn­völd að bætur til minka­bænda og ýmissa ann­ara sem tengd­ust eld­inu t.d fóð­ur­fram­leið­enda og flutn­inga­fyr­ir­tækja næmu sam­tals um 18 millj­örðum danskra króna (400 millj­örðum íslenskum) en nú er talið að sú upp­hæð sé alltof lág. Margt hefur orðið til að tefja bóta­út­reikn­ing­ana og greiðsl­urnar og nú er stefnt að því að upp­gjöri ljúki í fyrsta lagi í árs­lok 2024.

Nú koma þeir aftur

Þegar fyr­ir­skip­unin um að slá allan danska minka­stofn­inn af var gefin 4. nóv­em­ber 2020, var jafn­framt til­kynnt að bann við minka­eldi skyldi gilda út árið 2021. Fljót­lega var bannið fram­lengt til árs­loka 2022. Sl. haust til­kynntu stjórn­völd að heim­ilt yrði að flytja inn dýr til eldis frá og með 1. jan­úar 2023.

Vitað var að nokkrir minka­bændur biðu átekta, þeir ætl­uðu sér að hefja minka­eldi á ný. Danskir fjöl­miðlar greindu frá því að til stæði að flytja inn minka frá nokkrum löndum, Íslandi, Noregi, Finn­landi, Póllandi og kannski fleiri löndum. Fyrstu dýrin, tæp­lega átta hund­ruð, komu svo til Dan­merkur fyrir viku, frá Finn­landi.

Verður ekki jafn stór búgrein og áður

Eins og nefnt var fyrr í þessum pistli voru rúm­lega eitt þús­und minkabú í Danmörku, sam­tals milli 15 og 16 milljón dýr, þegar ákveðið var að fella stofn­inn. Danir voru um ára­tuga­skeið mjög umsvifa­miklir í skinna­fram­leiðsl­unni og dönsk skinn höfðu á sér gæða­stimpil. Í tengslum við end­ur­komu minkanna hefur sú spurn­ing vaknað hvort þessi búgrein geti orðið jafn stór og áður var. Allir sem danskir fjöl­miðlar hafa rætt við telja það úti­lokað.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár