Drottning háloftanna

Þriðju­dag­ur­inn 6. des­em­ber 2022 var merki­legur dagur í flug­sög­unni. Þennan dag var lokið smíði síð­ustu Boeing 747 flug­vél­ar­innar. Fyrsta vélin af þess­ari gerð var smíðuð árið 1968 og síðan þá hafa 1574 vélar verið settar saman í Boeing verk­smiðj­unni i Everett.

Drottning háloftanna
Boeing 747 Flug­leiðir not­uðu 747 vél frá Boeing í píla­gríms­flug árið 1980. Mynd: Wikimedia Commons

Snemma á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar átti yfir­stjórn banda­ríska flug­fé­lags­ins Pan Am, sem þá var stærsta flug­fé­lag heims, fund með stjórn­endum Boeing verk­smiðj­anna. Á fund­inum, sem hald­inn var að frum­kvæði Pan Am, var rætt um þann mögu­leika að smíða far­þega­vél sem gæti tekið „ja kannski 340 far­þega eða svo“ eins og einn stjórn­ar­manna Pan Am komst að orði. Verk­fræð­ingur Boeing sagði að sér hefði svelgst á kaff­inu við þessi orð. Rétt er að geta þess að Boeing 707 vél­arnar sem voru fyrst teknar í notkun árið 1958 höfðu 140 sæti. Pan Am var með all­margar slíkar vélar í notkun, þær reynd­ust vel en Pan Am vildi nú fá stærri vélar. Með þeim yrði hægt að bjóða lægri far­gjöld. Stjórn­endur Boeing voru hugsi yfir þessum hug­myndum en brátt fór af stað und­ir­bún­ings­vinna. 

Joe Sutter – faðir Boeing

Þegar stjórn Boeing hafði ákveðið að ráð­ast í smíði „risa­þot­unnar“, eins og verk­efnið var kallað, var að mörgu að hyggja. Ákveðið var að Joe Sutter verk­fræð­ingur myndi stjórna hönn­un­inni og verða jafn­framt yfir­maður þegar að smíði vél­ar­innar kæmi. Joe Sutter var á þessum tíma önnum kaf­inn í öðrum verk­efnum hjá Boeing og hönnun og smíði Boeing 737 komin vel á veg (fyrsta til­rauna­flugið var farið árið 1964). Boeing 737 vélin var smíðuð í verk­smiðjum Boeing í Renton. Joe Sutter fannst „risa­þotan“ spenn­andi verk­efni og hann kom til Everett árið 1965. Þar hafði Boeing verið með verk­smiðjur frá árinu 1943 en ný stór­bygg­ing var reist á svæð­inu þegar ákveðið var að ráð­ast í smíði „risa­þot­unnar“. Sú bygg­ing er enn meðal stærstu verk­smiðju­húsa sem reist hafa verið í heim­inum, flat­ar­málið er svipað og 40 fót­bolta­vellir.

Fyrsta breiðþotan, kapphlaup við tímann

Að hanna og smíða þotu kostar mikið fé og tekur tíma. Þegar hug­mynd­irnar um „risa­þot­una“ voru ræddar veltu for­svars­menn Boeing því fyrir sér hvort ein­hverjir myndu vilja kaupa þetta „fer­líki“, eins og einn stjórn­enda Boeing komst að orði. Vitað var um áhuga Pan Am og í apríl árið 1966 var skrifað undir samn­ing um kaup á 25 „risa­þotum“. Sú fyrsta skyldi afhent í árs­lok 1969. Fyrst Pan Am sýndi svona mik­inn áhuga hlutu margir aðrir að fylgja í kjöl­farið var álit yfir­stjórnar Boeing. En tím­inn var naumur.

Fjórir hreyflar, tveir farþegagangar, tvær hæðir, 366 farþegar

Eftir miklar vanga­veltur og útreikn­inga ákváðu verk­fræð­ingar Boeing, undir stjórn Joe Sutter, að nýja vélin skyldi vera rúm­lega 76 metra löng og far­þega­rýmið rúm­lega 6 metra breitt. Í far­þega­rým­inu voru tveir gangar, fjögur sæti milli gang­anna og tvö sæti við glugga, sem sé átta sæti í hverri röð, tveir far­þega­gangar voru nýlunda. En það sem mesta athygli vakti, þegar vélin kom fyrir almenn­ings­sjónir, var að far­þega­rýmið var að hluta á tveimur hæðum. Fremri hluti búks­ins hærri en sá aft­ari og vélin því auð­þekkt. Ákveðið var að á vél­inni skyldu vera fjórir hreyflar og samið var við fram­leið­and­ann Pratt & Whitney um hönnun og smíði þeirra. 

Í vél­inni voru sæti fyrir 366 far­þega og hún gat flogið 13.500 kíló­metra án þess að taka elds­neyti. 

50 þúsund starfsmenn á lokasprettinum

Eins og fyrr var nefnt voru starfs­menn Boeing í kapp­hlaupi við tím­ann. Búið var að semja við Pan Am um hvenær fyrsta vélin skyldi afhent og svo hinar 24. En sam­tímis var að mörgu að hyggja, við hönnun og smíði flug­vélar eru ótal atriði sem taka þarf ákvarð­anir um og þar má ekki vafi leika á um eitt eða neitt. Í einni 747 vél eru rúm­lega 6 milljón hlutir, sem allir þurfa að vera á sínum stað.

Það hljómar kannski ótrú­lega en á loka­sprett­inum keppt­ust hvorki meira né minna en 50 þús­und manns við að ljúka smíð­inni til þess að hægt yrði að standa við samn­ing­inn.

Stjórn­endur Boeing urðu hvað eftir annað að gera sér ferð í bank­ann til að tryggja fjár­magn til verks­ins. William Allen, for­stjóri Boeing, sagði síðar í við­tali að fyr­ir­tækið hefði eig­in­lega reist sér hurðarás um öxl við smíði 747 en allt hefði þó gengið upp að lokum.

30. september 1968 

Fyrsta 747 þotan var dregin út úr verk­smiðju­hús­inu í Everett 30. sept­em­ber 1968, að við­stöddum stórum hópi frétta­manna og full­trúum 26 flug­fé­laga sem höfðu lagt inn pant­anir fyrir risa­þot­una. Ýmislegt var þó enn ógert og fyrsta flug­ferðin, fyrir utan til­rauna­flug, var farin 9. febr­úar 1969, þá tóku við alls kyns próf­anir á vegum flug­mála­yf­ir­valda. Pan Am fékk fyrstu vél­ina afhenta undir árs­lok 1969 og fyrsta vélin á vegum félags­ins fór í loftið 22. jan­úar 1970. Hún fékk þegar við­ur­nefnið Jumbo, vegna stærð­ar­innar, og það nafn fest­ist við 747 vél­arnar.

Ný vél á 43 daga fresti 

Þótt starfs­mönnum Boeing hefði tek­ist að afhenda fyrstu 747 vél­ina á til­settum tíma þýddi það ekki að þeir gætu nú setið með hendur í skauti. Fram­leiðslan komst nú á fullan skrið og á 43 daga fresti var ný 747 Jumbo þota dregin út úr risa­bygg­ing­unni í Everett. 747 vél­arnar voru ekki ein­göngu far­þega­vélar, þær voru frá upp­hafi mikið not­aðar til vöru­flutn­inga og á síð­ari árum hefur mörgum vélum sem í upp­hafi voru far­þega­vélar verið breytt í flutn­inga­vélar. Þær vélar sem frá upp­hafi voru ætl­aðar til vöru­flutn­inga höfðu stóran hlera á „nef­inu“.

Í hópi þeirra fjöl­mörgu félaga sem hafa átt og notað 747 vél­arnar í gegnum tíð­ina má, auk Pan Am, nefna Luft­hansa, Cargolux, Atlas Air, British Airways, UPS og Qantas.

Gegnum tíð­ina hafa ýmsar breyt­ingar verið gerðar á 747 en þær verða ekki tíund­aðar hér.

Breyttir tímar og ákveðið að hætta framleiðslu 747

Á þeim 54 árum sem liðin eru frá því að fyrsta 747 hóf sig á loft hafa orðið miklar breyt­ingar, það gildir ekki síður um flug­vélar og ferða­máta en margt annað. Eft­ir­spurn eftir risa­þotum er ekki sú sama og áður fyrr og aðrir fram­leið­endur komnir til sög­unnar. Þótt ýmsar breyt­ingar hafi verið gerðar á 747 vél­unum, ekki síst til að draga úr elds­neytis­kostn­aði, eru þær samt sem áður dýr­ari í rekstri en margar aðrar. 

Í lok júlí 2016 til­kynnti Boeing, í skýrslu til yfir­valda, að eft­ir­spurn eftir 747 færi minnk­andi, bið­röðin eftir nýjum vélum stytt­ist óðum, eins og það var orðað. Allar 747 vélar sem smíð­aðar hafa verið frá árinu 2017 hafa verið inn­rétt­aðar til vöru­flutn­inga.

Í byrjun júlí 2020 greindi Boeing frá því að fram­leiðslu 747 yrði hætt árið 2022.

Vél númer 1.574 og kaflaskil

Hinn 6. des­em­ber síð­ast­lið­inn (2022) var síð­asta Boeing 747 vélin dregin út úr verk­smiðju­hús­inu í Everett. Hún var númer 1.574 í fram­leiðslu­röð­inni. Eigandi hennar er Atlas Air félagið, sem hafði fyrr á árinu fengið afhentar þrjár sams konar vélar.

Þótt fram­leiðslu Boeing 747 hafi verið hætt er þætti „risa­þot­unnar“ í flug­sög­unni ekki lokið. Af þeim 1.574 vélum sem smíð­aðar voru eru 448 enn í notkun. Þess má geta að flug­fé­lagið Air Atlanta Icelandic gerir út 14 Boeing 747 vélar sem allar eru not­aðar til vöru­flutn­inga.

Hér má líka nefna að árið 1972 íhug­uðu Loft­leiðir að kaupa tvær 747 vélar og fengu til­boð frá Boeing verk­smiðj­unum um smíði þeirra. Stjórn Loft­leiða lagð­ist hins vegar gegn kaup­unum sem ekk­ert varð af. 

Viðbót

Þótt flug­vélar séu smíð­aðar til að fljúga um loftin blá eru til mörg dæmi um önnur not. Dæmi eru um flug­vélar sem breytt hefur verið í sum­ar­bú­staði. Flug­vélaflök geta líka verið aðdrátt­ar­afl ferða­fólks, margir leggja leið sína að flaki á Sól­heima­sandi og sömu­leiðis skoða margir flak vélar sem liggur svo að segja í tún­fæt­inum á Sauða­nesi á Langa­nesi. 

Við Arlanda­flug­völl skammt frá Stokk­hólmi er 25 her­bergja gisti­heim­ili, Jumbo Hostel. Þetta gisti­heim­ili er inn­réttað í Boeing 747 og dregur nafn sitt af við­ur­nefn­inu Jumbo sem fest­ist snemma við 747 þot­una.

Við Dunsfold-flug­völl­inn í Surrey á Englandi er 747 vél sem áður var í eigu British Airways. Sú vél hefur verið notuð í kvik­myndum og hefur iðu­lega brugðið fyrir í sjón­varps­þátt­unum Top Gear (sem fjalla mest um bíla) en þeir eru teknir upp í Dunsfold. Boeing 747, sem var í eigu Pakistan International Airways, hefur verið breytt í veit­inga­stað við Jinnah-flug­völl­inn í Karachi.

Árið 2019 var flaki Boeing 747 komið fyrir á hafs­botni, á 24 metra dýpi, skammt undan ströndum Barein. Til­gang­ur­inn var að gera svæðið áhuga­verð­ara fyrir kaf­ara.

Fleiri dæmi um breytt hlut­verk drottn­ingar háloft­anna mætti nefna en hér verður látið staðar numið.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár