Vextir hækka enn á ný og eru orðnir sex prósent

Seðla­banki Íslands til­kynnti um vaxta­hækkun í dag um 0,25 pró­sentu­stig. Vextir bank­ans, svo­kall­aðir stýri­vextir, eru því orðnir sex pró­sent.

Vextir hækka enn á ný og eru orðnir sex prósent
Ákveðið í nefnd Stýri­vexir Seðla­banka Íslands eru ákvarð­aðir af pen­inga­stefnu­nefnd. Í henni sitja Ásgeir Jónsson, seðla­banka­stjóri sem for­maður, Rannveig Sig­urð­ar­dóttir, aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri og jafn­framt stað­geng­ill for­manns, Gunnar Jak­obs­son, vara­seðla­banka­stjóri á sviði fjár­mála­stöð­ug­leika, Herdís Stein­gríms­dóttir, dós­ent í hag­fræði við Copenhagen Business School, og Gylfi Zoëga, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands. Mynd: Seðlabanki Íslands

Seðla­banki Íslands hefur hækkað vexti sína um 0,25 pró­sentu­stig og eru stýri­vextir því orðnir sex pró­sent. Ástæðan sem pen­inga­stefnu­nefnd bank­ans gefur fyrir þess­ari nýj­ustu hækkun í til­kynn­ingu sinni er fyrst og fremst verð­bólga. 

Verð­bólga hækk­aði á milli mán­aða nú síð­ast og mæld­ist 9,4 pró­sent á tólf mán­aða tíma­bili. Bankin segir að und­ir­liggj­andi verð­bólga haldi áfram á sömu slóðum út árið og það verði ekki fyrr en á næsta ári sem hún taki að lækka. Bankinn spáir 4,5 pró­sent verð­bólgu á síð­ustu þremur mán­uðum næsta árs. 

„Vís­bend­ingar eru jafn­framt um að kjöl­festa verð­bólgu­vænt­inga í verð­bólgu­mark­miði bank­ans hafi veikst og því gæti tekið lengri tíma en ella að ná verð­bólgu í mark­mið,“ segir svo í til­kynn­ingu bank­ans. 

Sjö vikur eru síðan vextir voru síð­ast hækk­aðir, þá líka um 0,25 pró­sentu­stig. Á þessu ári hafa vextir bank­ans hækkað úr tveimur pró­sentum í nú sex pró­sent. Alltaf hefur hækk­an­irnar verið gerðar …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu