Yfirvöldum sé fullkunnugt um slæma stöðu Husseins og fjölskyldu

Claudia Ashanie Wilson, lög­maður Husseins Hussein og fjöl­skyldu hans segir að íslenska ríkið hafi með því að segj­ast geta fundið hús­næði í Aþenu rétt á meðan skýrsla er tekin af fjöl­skyld­unni opin­berað að yfir­völd viti vel að þau séu í raun og sann heim­il­is­laus.

Yfirvöldum sé fullkunnugt um slæma stöðu Husseins og fjölskyldu
Hussein Hussein og fjöl­skylda hans hafa nú verið í Aþenu í sex daga. Þau voru flutt burt frá Íslandi aðfar­arnótt 3. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Í fyr­ir­töku mál­anna í hér­aðs­dómi Reykja­víkur síð­degis fór Claudia Ashanie Wilson, lög­maður Husseins og fjöl­skyldu fram á það við dóm­ara að fjöl­skyldan komi aftur til lands­ins til að bera vitni í málum sínum gegn íslenska rík­inu vegna þeirra for­dæma­lausu aðstæðna sem upp séu komnar í mál­inu eins og Claudia orðar það. Dómari tekur afstöðu til þessa á fimmtu­dag­inn. 

Segir fjöl­skyld­una enga aðstoð fá í Grikk­landi Claudia Ashanie Wilson, lög­maður segir stöðu Husseins og fjöl­skyldu hans afar erf­iða og að óbreyttu bíði þeirra ekki annar staður en gatan

Þetta eru tvö aðskilin mál, ann­ars vegar mál Husseins Hussein sem fer fram á að fá efn­is­með­ferð í máli sínu á Íslandi og hins vegar mál Maysoon Al Saedi mömmu Husseins og systk­ina hans þeirra, Zahraa Hussein, Yasameen Hussein og Sajjad Hussein gegn íslenska rík­inu. „Þau eru að sjálf­sögðu vitni í hvoru máli fyrir sig …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Fréttir hafa borist af einum þeirra sem flogið var með til Aþenu að hann væri kominn til landsins aftur. Vinir höfðu skotið saman í flugfar og engin vandræði, enda ferðafrelsi innan Schengensvæðisins. Væri ekki með sama hætti hægt að safna fyrir flugfari handa þessum fatlaða manni?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár