937. spurningaþraut: Hvar voru fætur kvenna bundnir?

937. spurningaþraut: Hvar voru fætur kvenna bundnir?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað nefn­ist hljóð­færið sem karl­inn lengst til vinstri er að spila á?

Og svo fæst stór­sveit­ar­stig fyrir að vita hvað karl­inn heitir!

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Karl­maður sem ber nafnið Nguyễn — frá hvaða landi er lang lík­leg­ast að hann komi?

2.  Við hvað fæst Gordon Ramsey fyrst og fremst?

3.  En Franz Kafka, hvað var hans aðal?

4.  Caligula var vit­firrtur nokkuð, en réði þó ríkjum ... hvar?

5.  Hvað er stærsta landið í Vestur-Evrópu?

6.  Hvað heitir kon­ungur Spánar?

7.  Hvaða þing­maður á Alþingi Íslands hefur gefið út flestar hljóm­plötur?

8.  Einn mekt­ar­karl Gyðinga sem Biblían kann frá að greina átti 700 eig­in­konur sem allar voru af göf­ugu ætt­erni (þar á meðal ein dóttir faraós) og svo átti hann 300 konur af lægri stigum. Hvaða karl var svo vel kvæntur?

9.  Í hvaða ríki tíðk­að­ist í þús­und ár að binda fætur ungra hefð­ar­meyja svo þeir urðu smáir og sam­an­beyglaðir, því þannig þóttu þeir fagrir og líkj­ast lótus­blómum?

10.  The Seven Year Itch hét banda­rísk gam­an­mynd sem Billy Wilder leik­stýrði og Marilyn Monroe lék aðal­hlut­verkið í. Þetta þótti skemmti­leg mynd en aðal­á­stæðan fyrir því að hún hefur ekki gleymst er ein örstutt sena sem allir hafa að minnsta kosti séð ljós­myndir af. Hvað ger­ist í þeirri stuttu senu?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir kona þessi?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Víetnam.

2.  Hann er kokkur.

3.  Ritstörf.

4.  Róma­veldi.

5.  Frakk­land.

6.  Filippus eða Felipe. Hann er númer 6 en eng­inn þarf að vita það.

7.  Jakob Frímann.

8.  Salómon kon­ungur.

9.  Kína.

10.  Blástur úr loft­ræst­ingu í gang­stétt blæs upp pilsi per­són­unnar sem Marilyn Monroe leikur.

Úbs!!

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Benny Goodman að spila á klar­inettið sitt.

Á neðri mynd­inni er ofur­fyr­ir­sætan Claudia Schiffer.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár